Morgunblaðið - 09.02.1988, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.02.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988 25 Akranes: Ákveðið að stofna fisk- markað á Vesturlandi GERT er ráð fyrir að fiskmark- aður á Vesturlandi verði form- lega stofnaður 14. febrúar nk. og er »11 undirbúningsvinna nú í fullum gangi. Eins og komið hefur fram hér í blaðinu áður er nú unnið að stofnun fiskmarkaðar á Vesturlandi og eru frumkvöðlar að því aðilar á Akra- nesi. Á undanfömum dögum hafa fleiri bæst í hópinn og meðal þeirra aðilar hvaðanæva af Vesturlandi. Áætlað er að afli verði boðinn upp í gegnum fjarskiptamarkað eða gólfmarkað, en það fer töluvert eft- ir því hvað hluthafafundur ákveður. Kerfið sem notað verður er tengt gagnabanka sem býður upp á ýmsa möguleika. í gagnabankanum er dagleg gengisskráning sem og verð og sölur annarra fiskmarkaða. Einnig býður kerfíð upp á telex- sendingar og notendur geta haft samband sín á milli. Þá verður þjóð- skráin einnig í bankanum og mun það spara starfsfólki bæði tíma og fýrirhöfn. Þá er þess ógetið að gagnabankinn mun einnig verða tengdur Fiskifélagi íslands, Fisk- veiðisjóði og Skýrsluvélum ríkisins. Starfsemi þessa fiskmarkaðar verður fyrst og fremst hugsuð fyrir Vesturland. Að sögn Viðars Magn- ússonar eins af foiystumönnum fyrir stofnun markaðarins er áhugi manna á fyrir honum almennur. Við leggjum mikla áherslu á að fá sem flesta útgerðarmenn og físk- verkendur á Vesturlandi sem hlut- hafa sagði Viðar, og bætti við, að það hlyti að vera hagur notenda að geta fylgst betur með gangi markaðarins og haft áhrif á ákvarð- anir um söluþóknun. Viðar sagðist sannfærður um að aðilar á Vestur- landi geti rekið fiskmarkað jafn vel og aðilar í öðrum landshlutum og því væri það ánægjulegt að sjá þess- ar góðu undirtektir. Við höfum munnlegt loforð fyrir álitlegu hluta- fé og við höfum ákveðið að boða til stofnfundar í Hótel Borgamesi sunnudaginn 14.febrúar nk. sagði Viðar Magnússon að lokum. - JG íris Gústafsdóttir og Fanney Sigurgeirsdóttir á Hársnyrtistofu írisar sem opnaði nýlega i Hafnarstræti 16. Ný hársnyrtí- stofa í Hafn- arstræti OPNUÐ hefur verið ný hár- snyrtistofa í Hafnarstræti 16 í Reykjavík, Hársnyrtistofa frisar. Eigandi stofunnar er Iris Gúst- afsdóttir en auk hennar starfar þar Fanney Sigurgeirsdóttir. Á stofunni er boðin öll almenn hársnyrtiþjónusta fyrir dömur og herra. Stofan er opin virka daga kl. 9.00-18.00 og laugardaga kl. 10.00-14.00. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Hér er Leif Jacobsen að meta pelsgæði minkanna í Litladal. Blönduós: Minkabændur í starfsþjálfun Blönduósi. ALLA síðustu viku hefur verið hér á norðurlandi vestra danskur minkabóndi, Leif Jacobsen að nafni, til að sýna minkabændum á svæðinu réttu vinnubrögðin í minkaræktinni. Eins og kunnugt er byrjuðu rúmlega 30 bændur á Norðurlandi vestra með mink i vetur og sl. sumar var byggt yfir dýrin. Leif Jacobsen var meðal austur- húnvetnskra minkabænda sl. þriðju- dag og leiðbeindi þeim um umhirðu og fóðrun minkanna. Það kom fram hjá hinum danska minkabónda að það er stutt á milli feigs og ófeigs í þess- ari búgrein ef ekki er staðið rétt að hlutunum. Ennfremur taldi Leif að svo mikil fiölgun minka á einu ári úr tiltölulega litlum stofni eins og nú á sér stað, ieiddi til þess að minka- stofninn yrði lakari. Það voru átta bændur í Austur-Húnavatnssýslu, sem byijuðu með mink í vetur og komu þeir allir á þetta námskeið. Það er ljóst að þekking í minkaræktinni er enn lítil hér á landi en miklu skipt- ir að öll umhirða dýranna sé reglu- bundinn og skýrsluhald sé viðhaft frá upphafi. — Jón Sig. Kr. 52.94B- ATH.: Ýmsar vörur lækka, aörar á óbreyttu verði meðan birgðir endast. OKKAR FRÁBÆRU GREIÐSLUKJÖR ! Útborgun aöeins 25°/< o. Eftirstöövar á allt að 12 mánuöum. 5% staögreiöslu afsláttur. LÆKKUN Viftur s Frystisskápar =r Þurrkarar ÓBREYTT ísskápar Þvottavétar Örbylgjuofnar liURC KREPIT éfxfiMornr í pÍM LÆKJARGÖTU 22 HAFNARFIRÐI SÍMI 50022
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.