Morgunblaðið - 23.06.1989, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.06.1989, Blaðsíða 7
pspr ím ’i íííTD/.n vp.m MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1989 am/..T.qVTTntfolv 7 ÍSAL; 3-400 tonn af gljááli framleidd á mánuði ÍSAL framleiðir nú 3-400 tonn af gljááli á mánuði. Um er að ræða ál sem er hreinna og lausara við snefile&ii en hin venjulega framleiðsla. Gljáálið er 5-10% verðmætara en venju- Tegt ál. Á móti kemur að nokkur dýrara er að framleiða það. Syst- urfyrirtæki ISAL, Alusingen, hefiir þróað markaði fyrir þessa vöru víða um heim. Einar Guðmundsson tæknilegur framkvæmdastjóri ÍSAL segir að gljáál sé einkum notað í ýmiskonar ljósabúnað til að endurkasta ljósi og fá þannig meiri lýsingu úr lömp- um. „Þetta er ekki í fyrsta sinn sem við framleiðum gljáál. Slíkt var gert hér fyrir nokkrum árum en lagðist svo af þar sem markaðir fyrir þetta voru takmarkaðir,“ segir Einar. „Með aukinni tölvuvæðingu á skrifstofum og kröfum um betri lýsingu í kjölfar hennar hafa mark- aðir hinsvegar skapast fyrir þessa vöru.“ í máli Einars kemur fram að áform eru uppi hjá ISAL um að auka þessa framleiðslu gljááls frek- ar en nú er. Hve mikil sú aukning verður fer hinsvegar eftir hvemig markaðir fyrir vöruna munu þróast. Forsætisráð- herra Finna ■ A til Islands HARRI Holkeri, forsætisráð- herra Finnlands, og kona hans Maija-Liisa Holkeri koma í opin- bera heimsókn til íslands 26. júní. Ekki hefur verið gengið frá form- legri dagskrá heimsóknarinnar en að sögn Jóns Sveinssonar, aðstoðar- manns forsætisráðherra, munu Steingrímur Hermannsson, forsæt- isráðherra, og Edda Guðmunds- dóttir, kona hans, halda finnsku forsætisráðherrahjónunum kvöld- verðarboð þann 26. júní. Annan dag heimsóknarinnar munu Harri Hol- keri og Steingrímur Hermannsson funda. Lokadag heimsóknarinnar halda finnsku forsætisráðherra- hjónin kvöldverðarboð til heiðurs íslensku forsætisráðherrahjónun- um. Menntamála- ráðherra kærður til Jafhréttisráðs KÆRT hefur verið til Jafnréttis- ráðs, veiting menntamálaráð- herra í stöðu yfirkennarar við Víðistaðaskóla í Haftiarfirði. Er þetta í annað sinn á skömmum tíma, sem kært er til ráðsins vegna stöðuveitinga mennta- málaráðuneytisins. Tveir umsækjendur voru um stöðu yfirkennara við Víðistaða- skóla, þau Vený Lúðvíksdóttir og Magnús Jón Árnason, sem mennta- málaráðherra veitti stöðuna og hef- ur Véný nú kært veitinguna til Jafn- réttisráðs. Véný kærir á þeirri for- sendu að hún hafi í forföllum á undanfömum árum, gegnt störfum yfirkennara og skólastjóra við skólann. Kæran verður tekin fyrir á fundi ráðsins í næstu viku og þá verður jafnframt fjallað um kæru Valgerð- ar Selmu Guðnadóttur vegna stöðu skólastjóra við Ölduselsskóla í Breiðholti. Nú segir af horfnum heimi eyjaskeggja í nýrri útgáfu af Sögu Vestmannaeyja færð þú innsýn í heim sem gegndi lykilhlutverki í þróun nútímasamfélags á íslandi. Heim sem hvarf í þeim miklu umbrotum, sem komu í kjölfar eldgossins á Heimaey 1973. Umbrotum sem gera „Eftir gos kynslóðum" örðugra að tengjast sögu og stað- háttum fyrri tíma í Eyjum. í tilefni af 70 ára kaupstaðar- afmæli Vestmannaeyja hefur Fjölsýn forlag gefið út að nýju, Sögu Vestmannaeyja eftir Sigfús M. Johnsen rithöfund og fyrr- verandi bæjarfógeta í Eyjum. Bókin hefur verio ófáanleg um árabil en hún kom út 1946. í þessari endurbættu útgáfu eru m.a. fjölmargar litmyndir sem ekki hafa birst áður á prenti og eru því mikill fengur Fjölsýn Forlag Faxafeni 10, 108 Reykjavík. fyrir menningarsögu Vestmannaeyja og alla þá sem tengjast Eyjunum. Bókin er um 800 síður í 2 bindum og hefur að geyma merkar heimildir um sögu og mannlíf Eyjanna fram að seinna stríði. Lifandi framsetning í máli og myndum gera þessa bók um sögu Eyjanna að ómetanlegum arfi fyrir komandi kynslóð og skýrir þá sérstöðu sem Vest- mannaeyjar og Eyjamenn hafa haldið í gegnum aldimar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.