Morgunblaðið - 23.06.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.06.1989, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLÁÐIÐ FÖSTUDÁGUR 23. JÚNÍ 1989 Talið er að 300.000 Tyrkir flýi Búlgaríu Sofíu. Reuter. BÚLGÖRSK stjórnvöld skýrðu frá því í per að 150.000 Tyrkir í Búlg- ariu hefðu fengið vegabréf til að fara til Tyrklands og að verið væri að afgreiða 100.000 umsóknir tii viðbótar. Um 60.000 Tyrkir hefðu þegar yfirgefið Búlgaríu og talið væri að alls myndu 300.000 manns fara úr landi áður en yfir lyki. Þessar tölur voru kynntar á blaða- mannafundi í Sofíu og skýrðu þar búlgarskir embættismenn ennfremur frá því að gripið yrði til neyðarráð- Maxím Gorkíj; Viðgerð hafin við Svalbarða Osló. Reuter. Bráðabirgðaviðgerð hófst á skemmtiferðaskipinu Maxím Gorkíj er það lagðist við festar á Coles-flóa á Svalbarða í gærmorg- un, miðja vegu milli Longyearby- en, helsta bæjar eyjanna, og so- vésku byggðarinnar í Barents- búrg. Að sögn sovéska ræðismannsins í Barentsbúrg komu tvær rifur neðan sjólínu á stjómborðshlið skipsins fram undir stefni er það sigldi á ísspöng um 200 sjómílur suðvestur af Svalbarða aðfaranótt þriðjudags. Önnur var sex metra löng og hin tæplega þriggja metra löng. Tvö sovésk skip aðstoðuðu Maxím Gorkíj á siglingunni upp að strönd Svalbarða, flutningaskip og dráttar- bátur. Að lokinni bráðabirgðaviðgerð verður skemmtiferðaskipinu siglt til Bremerhaven í Vestur-Þýskalandi þar sem það verður tekið í slipp til fullnaðar viðgerðar. Norskur læknir, sem tók þátt í þjörgun farþega og skipveija á Maxím Gorkíj eftir ásiglinguna, full- yrti í gær að margir skipverja hefðu verið ölvaðir en fulltrúi norska sjó- hersins sagði ástæðulaust að ætla að áfengisneysla hefði leitt til óhappsins. stafana vegna efnahagslegra áhrifa landflóttans. Vinnutíminn í verk- smiðjum og búgörðum yrði lengdur, ríkisstarfsmenn yrðu látnir hefja störf við framleiðsluna, vinnuafl yrði sent til vérst settu svæðanna og or- lofsdögum yrði fækkað. Námsmenn yrðu einnig kvaddir til hjálpar, svo og ellilífeyrisþegar. Flestir þeirra, sem fara úr landi, væru með mikla starfsreynslu í landbúnaði og iðnaði. Landflóttinn hófst eftir að óeirðir bratust út í landinu í síðasta mán- uði, er Tyrkir kröfðust þess að fá að viðhalda menningu sinni. Óeirð- imar kostuðu sjö manns lífið að sögn búlgarskra stjómvalda, en vestrænir stjómarerindrekar og Tyrkir segja að 10-30 hafí týnt lífi. Peking-búar mynda biðraðir til að afhenda umsóknir um vegabréfsáritanir við kanadíska sendiráðið Peking í gær. Kínversk stjómvöld reyna nú af fremsta megni að torvelda Kínverjum að komast úr landi. Aftökurnar í Kína fordæmdar harðlega víðs vegar um heim: Thatcher útilokar eftiahagsleg- ar refsiaðgerðir gegn Kínverjum Peklng, Lundúnum, Brussel, Austur-Berlín, Tókió. Reuter, Daily Telegraph. MARGARET Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær að ekki kæmi til greina að Bretar gripu til efnahagslegra refsiaðgerða gegn Kínveijum til að mótmæla aftökum á 27 kínverskum andófs- mönnum undanfarna tvo daga. Leiðtogar flestra ríkja heims, þar á meðal ríkisstjórn íslands, og ýmsar alþjóðlegar stofiianir hafa for- dæmt atburðina í Kína harðlega, en því hafa kínversk stjómvöld aðeins svarað með því að segja að erlend ríki eigi ekki að skipta sér af innanríkismálum Kínveija. Lítil flugvél ferst í Perú Líma, Perú. Reuter. TVEGGJA hreyfla herflugvél með um 40 farþega rakst á fjallshlíð í Perú á miðvikudag. Talið er að enginn hafi lifað slysið af. Vélin brotnaði í tvennt við slysið sem varð í afskekktum hluta Andes- fjallanna í Perú. Verið var að flytja heim fólk sem býr á svæðum sem era úr alfaraleið og þar sem sam- göngur á landi era lélegar, en herinn veitir slíka þjónustu gegn vægu gjaldi. Þessar vélar þurfa því oft að lenda með farþega eða taka nýja og þess vegna er ekki vitað með vissu hve margir vora um borð en álitið er að þeir hafi verið 42. Talið er að allir um borð hefðu farist. Neil Kinnock, leiðtogi Verka- mannaflokksins á Bretlandi, hvatti Margaret Thatcher til þess að hafa frumkvæði að því að Evrópuríki gripu'til efnahagslegra refsiaðgerða gegn kínverskum stjórnvöldum til að fylgja eftir fordæmingu hennar á aftökunum í Kína. Thatcher sagði að slíkar aðgerðir væru stórhættu- legar og myndu skapa mikinn glundroða í bresku nýlendunni Hong Kong. Bresk stjómvöld frestuðu fyrr í mánuðinum viðræðum við kínversk stjómvöld um stjómarskrá Hong Kong eftir að Kínveijar taka við nýlendunni árið 1997. Thatcher minntist á að breska stjórnin hefði bundið enda á vopnasölu Breta til Kína og samskipti breskra ráðherra við kínversk stjórnvöld. „Frekari aðgerðir eru nú í athugun," bætti forsætisráðherrann við. Útflutning- ur Breta til Kína nemur 412 milljón- um punda (37 milljörðum ísl. kr.) og innflutningur þeirra frá Kína nemur 444 milljónum punda (40 milljörðum ísl. kr.). Bandaríkjastjóm hefur einnig fordæmt aftökumar, sem hófust nokkrum klukkustundum eftir að George Bush Bandaríkjaforseti hafði hvátt kínversk stjórnvöld til þess að þyrma lífi andófsmannanna. Bandarísk stjómvöld hyggjast ekki grípa til frekari refsiaðgerða gegn kínverskum stjómvöldum. Tals- menn Bandaríkjaforseta segja að þótt Bandaríkjamenn fordæmi at- burðina í Kína vilji þeir ekki skaða kínversku þjóðina. Kínveijar geti enn keypt kom og aðrar vörur frá Bandaríkjunum. Leiðtogar Frakklands, Spánar og Hollands hafa látið þá skoðun í ljós að Evrópubandalagið eigi að endur- skoða samskiptin við Kína á fundi leiðtoga bandalagsins í Madrid í næstu viku. Sosuke Uno, forsætis- ráðherra Japans, sagðist harma aftökurnar en lýsti því þó yfir að efnahagslegar refsiaðgerðir kæmu ekki til greina. „Okkur þykir afar miður að aftökumar skyldu hafa átt sér stað á sama tíma og augu allra þjóða heims beindust að landinu,“ sagði forsætisráðherrann. Fjölmiðlar í Austur-Þýskalandi minntust aðeins lítillega á aftökum- ar, en Austur-Þjóðveijar hafa lýst yfir stuðningi við aðgerðir kínverska hersins gegn mótmæl- endum í Peking, sem kostuðu þús- undir manna lífið. Austur-þýsk blöð birtu í gær stuttar fréttir um að erlendir kaupsýslumenn hefðu snúið til Kína á ný, en hins vegar var mikið gert úr því að fjórir verkalýðs- leiðtogar í Dóminíska lýðveldinu hefðú verið myrtir. Mannréttindahreyfmgin Amn- esty International hefur hvatt fé- laga sína um heim allan til þess að senda kínverskunr stjómvöldum mótmælabréf. Þá hafa Alþjóðasam- tök fijálsra verkalýðsfélaga, ICFTU, fordæmt aftökurnar og sakað kínversk stjórnvöld um grimmdarlega herferð gegn þegn- um sínum og þá einkum óháðu verkalýðshreyfingunni í landinu. Um 88 milljónir launþega eru í sam- tökunum. Slóvenía: Hóta að segja skil- ið við Kommúnista- flokk Júgóslavíu Belgrað. Reuter. LEIÐTOGAR kommúnista í júgóslavneska lýðveldinu Slóveníu hafa varað við, að svo geti farið, að þeir segi skilið við Kommúnistaflokk Júgóslavíu. Er þessi hótun talin enn ein ógnunin við einingu landsins. Sovétmenn heita írönum að- stoð við hernaðaruppbyggingu Dauðadómurinn yfir Rushdie óumbreytanlegur, segir Rafeanjani Moskvu. Reuter. ALI Rafsanjani, forseti íranska þingsins, sagði á blaöamannafundi á þriðja degi opinberrar heimsóknar sinnar til Moskvu að dauðadómur Khomeinis erkiklerks yfir Salman Rushdie, höfimdi Sön&Va Satans, væri óumbreytanlegur. í sameiginlegri yfirlýsingu Rafsanjanis og Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta í gær segir að Sovétríkin heiti Irönum stuðningi við að efla varnir sínar. Rafsanjani sagði að sam- komulag hefði tek- ist á milli ríkis- sljóma landanna um samvinnu í efnahagsmálum, tækni og vísind- HT um. Hann og Gorbatsjov hefðu verið á einu máli Um að leggja Rafeanjani ágreiningsefni ríkjanna til hliðar í því skyni að „hefja nýtt tímabil í samskiptum þjóðanna“.Aðspurður um hvort írönsk stjómvöld hygðust breyta afstöðu sinni til Rushdie sagði Rafs- anjani að Vesturlandabúar skildu ekki í hveiju vandinn fælist. „Dóm- urinn er í samræmi við Sharia, (íslömsk lög).. .í íran getur enginn og vill enginn ógilda dóminn," sagði hann. Rafsanjani sagði að írönsk stjórnvöld stefndu að því að auka vopnaframleiðsluna í landinu og að nú væru smíðaðar orrustuvélar, eld- flaugar og stórskotaliðsvopn í íran. TASS-fréttastofan greindi frá því að Gorbatsjov og Rafsanjani hefðu undirritað samkomulag um samyinnu á sviði efnahagsmála, vísinda og tækni sem gildir til árs- ins 2000. í samkomulaginu fælist m.a. að hafin yrði samvinna á sviði kjarnorkumála og innan skamms yrði samningur um gassölu undir- ritaður. Þá er gert ráð fyrir því í samkomulaginu að hugað verði að samvinnu í geimvísindamálum og að komið verði upp beinum lestar- samgöngum milli Moskvu og Teher- an. Vestrænir stjórnmálaskýrendur telja að ráðamenn í Kreml hyggist nýta sér það stjómmálalega tóma- rúm sem myndast hefur í íran í kjölfar versnandi samskipta vest- rænna ríkisstjóma við klerkaveldið þar í landi. Júgóslavneska dagblaðið Borba skýrði frá því í fyrradag, að leið- togar kommúnistaflokksins í Sló- veníu krefðust þess að öll júgóslav- nesku lýðveldin sex þyrftu að leggja blessun sína yfir helstu ákvarðanir neyðarfundar Kommúnistaflókks Júgóslavíu, sem fyrirhugaður er í desember. Þeir væru á móti því að meirihlutinn yrði látinn ráða eins og tíðkast hefur. Blaðið vitnaði í yfírlýsingu frá stjórmálaráði flokks- ins í Slóveníu, þar sem segir að leiðtogar lýðveldisins muni rjúfa öll tengsl við Kommúnistaflokk Júgó- slavíu verði ekki gengið að kröfu þeirra. Slóvenar óttast að leiðtogar Serbíu, stærsta lýðveldisins í Júgó- slavíu, reýni að fá meirihlutastuðn- ing við aðgerðir til að bijóta á bak aftur fijálslynd öfl í Slóveníu. Óháð- ar stjórnmálahreyfingar, sem betj- ast fyrir því að valdaeinokun komm- únistaflokksins verði afnumin, hafa orðið nokkuð áberandi í Slóveníu og valdið leiðtogum Serba miklum áhyggjum. Þing Slóveníu undirbjó fyrr í mánuðinum breytingar á stjómar- skrá lýðveldisins, þar sem Slóvenar áskilja sér rétt til þess að lýsa yfir sjálfstæði frá Júgóslavíu. Talið er að nýja stjómarskráin taki gildi í ágúst eða september. Margir Slóv- enar vilja að lýðveldið verði sjálf- stætt ríki með sterk tengsl við Vest- ur-Evrópu. Borba sagði einnig frá því í gær, að fyrsta óháða fréttablaðið væri komið út í Slóveníu. Heitir það Demokracija og standa að þvf sam- tök stjómarandstæðinga, Sló- venska lýðræðisfylkingin. Færeyjar: Ný sljórn tekur við Þórshöfn. Frá Snorra Halldórssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins. NÝ STJÓRN þriggja flokka; Fólkaflokksins, Sambands- flokksins og Þjóðveldisflokks- ins, tók við völdum í Færeyj- um í gær. Lögmaður verður sem fyrr Jógvan Sundstein úr Fólkaflokknum. Nýir ráðherrar era Jóngerð Purkhús, úr Þjóðveldisflokknum, sem verður efnahagsmálaráð- herra, Olaf Olsen, Fólkaflokkn- um, sem annast mun iðnaðar- og fiskeldismál, Jógvan Olsen, Sambandsflokknum, er tekur við sjávarútvegsmálum, og Ivan Jo- hannessen, Sambandsflokknum, er verður fjármálaráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.