Morgunblaðið - 23.06.1989, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.06.1989, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1989 Leikfélag Akureyrar: Vill kaupa eða eða leigja iðn- aðarhúsnæði LEIKFÉLAG Akureyrar hefur óskað eftir að kaupa eða leigja um 200 fermetra iðnaðahúsnæði -sem nota á sem smíðaverkstæði og geymslur. Sigurður Hróarsson leikhússtjóri sagði að smíðaverkstæðið hefði hingað til verið í leikhúsinu sjálfu og það væri fyrir löngu búið að að sprengja starfsemina utan af sér. Hann sagði að allir möguleikar yrðu skoðaðir, en þörf væri fyrir húsnæðið, þvi vegna plássleysis væri ekki hægt við núverandi að- stæður að smíða leikmyndir í heilu lagi. Þá væri einnig þörf fyrir meira geymslurými, ef það væri fyrir hendi yrði hægt að geyma ýmsa hluti og nota aftur síðar í stað þess að þurfa að henda hlutunum. Frá aðalfúndi Kisiliðjunnar í gær. Kísiliðjan: Morgnnblaðið/Rúnar Þór Manville kaupir 8,7% af ríkinu Nýr, glæsilegur sumarmatseðill. ★ Dansleikur á laugardagskvöld. ★ Heimilislegur matseðill. y HótelKEA. Kísiliðjumenn vilja geta gert fleira en vinna kísilgúr Rekstrarfjárstaða Kísiliðjunnar hf. í Mývatnssveit er mjög góð, en langtímaskuldir hennar nema einungis 560 þúsundum króna. Aðalfúndur Kísiliðjunnar hf. var haldinn á Hótel Reynihlíð í gær, fímmtudag, og þar var meðal annars ákveðið að Manville kaupi 8,7% hlut af rikinu. Samningar þar um verða undirritaðir í iðnaðarráðu- neytinu nú í dag. Kísiliðjan hefur skilað hagnaði frá árinu 1983, en hagnaður síðasta árs nam 8,9 milljónum króna eftir að skattar hafa verið greiddir. „Það er vel viðunandi efns og ástandið er í landinu nú,“ sagði Róbert B. Agn- arsson framkvæmdastjóri Kísiliðj- unnar hf. í samtali við Morgun- blaðið. Heildarvelta síðasta árs var 438,6 milljónir króna. Eigið fé fyrir- tækisins er 95% og veltufjárhlut- fall, þ.e. hlutfall á milli veltufjár- muna fyrirtækisins og skammtíma- skulda, er 7, sem er mjög gott, að sögn Róberts. „Rekstrarfjárstaðan er mjög góð og Iangtímaskuldir okkar eru 560 þúsund krónur. Þannig að þetta lítur vel út,“ sagði Róbert. Kísiliðjan hefur skilað hagnaði frá árinu 1983, uppreiknað með byggingarvísitölu var hagnaður ársins 1983 24 milljónir, 24 milljón- ir 1984 og ári síðar 41 milljón, 1986 var hagnaðurinn 28 milljónir og 14 milljónir fyrir árið 1987. Á síðasta ári framleiddi verk- smiðjan rúmlega 25 þúsund tonn af kísilgúr. Útflutningur nam tæp- um 26 þúsund og fimm hundruð tonnum og á innanlandsmarkaði voru seld um 40 tonn. Róbert sagði að framleiðslan hefði verið 7,7% meiri á síðasta ári en á árinu á undan og rúmlega 15% aukning á útflutningi að magninu til. Hann sagði innanlandsmarkaðinn nokkuð stöðugan, en með tilkomu bjórsins gæti aukningin orðið nokkur, þar sem kísilgúr er notaður til síunar á bjór. Aukningin yrði þó ekki umtals- verð. Á aðalfundinum var ákveðið að ríkið seldi Manville 8,7% hlutaQár í Kísiliðjunni, þannig að eftir söluna á ríkið 51% hlut í fyrirtækinu, sem er sama hlutfall og það átti fyrir hlutafjáraukninguna árið 1982. Manville mun þá eiga 48,6% í fyrir- tækinu, en 17 sveitarfélög á Norð- urlandi eiga 0,4% hlut. Róbert sagði að nú væri unnið að því að auka fjölbreytni hjá Kísiliðjunni, en hingað til hefði hún haft þann tilgang einan að fram- leiða kísilgúr. „Menn eru sammála um að breikka starfssviðið þannig að Kísiliðjan geti ijárfest í svo að segja hveiju sem er. Þetta hefur verið til umræðu í stjóminni um nokkurn tíma og á hluthafafundi var samþykkt ályktun um að beina því til iðnaðarráðuneytisins að gangast fyrir breytingu á lögum fyrirtækisins.“ Róbert sagði að ýmislegt kæmi til greina varðandi breiðara starfssvið Kísiliðjunnar, m.a. frekari vinnsla á kísilgúr auk fleiri atriða. Á fundinum í gær var samþykkt að styrkja átak Landgræðslu ríkis- ins með 300 þúsund króna fram- lagi, en fyrirhugað er að girða um 17 kílómetra af landi upp frá Reykjahlíðarlandi og að Námafjalli og helja átak í landgræðslumálum í framhaldi af því. Þá má nefna að á síðasta ári gaf Kísiliðjan Land- græðslunni 3,5 tonn af kísilgúr og í ár verða það 10 tonn, en kísilgúr- inn er notaður til að úða grasfræ, þau verða þyngri og dreifing þeirra þar með markvissari. Að lokum má svo nefna að í ár verða settar niður plöntur í umhverfi Kísiliðjunnar og starfsmannabústaða hennar fyrir nokkur hundruð þúsunda, að sögn Róberts. Starfsmenn Kísiliðjunnar voru að meðaltali 64 á síðasta ári. Átthagamót Arnarneshrepps Þetta árið látum við duga að halda okkar vinsæla átt- hagaball. Það verður í Hlíðarbæ laugardaginn 8. júlí og hljómsveit llluga leikur fyrir dansi. Allir búsettir og brottfluttir Arnarneshreppsbúar velkomnir og allt í lagi að taka með sér gesti. Sjáumst í stuði. Nefndin. Stýrimannadeild WiF Dalvíkurskóla °4LVÍK Kennara vantar í siglinga- og sjómennskugreinum. Umsóknarfrestur til 27. júní. Upplýsingar gefnar í símum 96-61380, 96-61162 og 96-61355. Skólanefnd Dalvíkur. DalVÍkurSkÓIÍ dalvkurskd Yfirkennari Staða yfirkennara við Dalvíkurskóla er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur til 4. júlí 1989. Upplýsingar gefnar í símum 96-61380, 96-61162 og 96-61355. Skólanefnd Dalvíkur. Saga sýnir á Norðurlöndum Leikklúbburinn Saga frá Akur- eyri tekur þátt í samnorrænu leik- verkefni nú í sumar. Leikverkefni þetta ber nafnið Fenris 2 og taka unglingaleikhópar frá öllum Norð- urlöndunum þátt í því. Leikritið er ævintýri og er samið af öllum leikhópunum í sameiningu. Þátttakendur eru 101, þar af 22 frá Islandi. Islenski leikhópurinn lagði af stað 21. júní. Frumsýnt verður í Humlebæk í Danmörku fimmtudag- inn 29. júní. Þá verður sýnt í Svíþjóð, Finnlandi, Noregi og Færeyjum og endað á íslandi. Hópurinn kemur til Islands 20. júli. Sýnt verður á Húsavík 22. júlí og á Akureyri 24. og 25. júlí í íþrótta- skemmunni. (Frcttatilkynning) Golfklúbbur Akureyrar: Ekkert verður af Evrópu- móti atvinnukvenna í golfi STJÓRN Golfklúbbs Akureyrar hefúr ákveðið að falla frá því að halda Evrópumót atvinnukvenna í golfi á Jaðarsvelli í ágúst í sumar þar sem fjárhagslegan stuðning við mótið skorti. „Vissulega erum við svekktir. Þetta hefði verið meiriháttar við- burður og keppendur voru mjög áfjáðir í að koma hingað," sagði Gunnar Sólnes, formaður Golfklúbbs Akureyrar. Mótið átti að standa dagana 10.-13. ágúst næstkomandi og var búist við 80-100 keppendum, eða um 150 manns þegar allt er talið. Gunnar sagði að fjárhagslegan stuðning við mótið hefði skort og því hefði verið ákveðið að hætta við að halda mótið. Áætlaður kostnaður við mótið var um 10 milljónir króna og hafði Golfklúbburinn fengið vilyrði frá Akureyrarbæ fyrir þremur millj- ónum, einni frá ýmsum fyrirtækjum og þá hafði einnig fengist vilyrði frá ríkinu um stuðning. Hins vegar vant- aði um tvær milljónir króna svo mögulegt yrði að halda mótið og ekki gekk að fá það fjármagn sem upp á vantaði. Gunnar sagði enn ekki ákveðið hvort reynt yrði að halda samskonar mót að ári liðnu, en menn væru að velta því fyrir sér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.