Morgunblaðið - 23.06.1989, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 23.06.1989, Blaðsíða 35
35 MORGUNBLAÐEÐ IÞROTTIR PÖSTUDAGUR 23. 'JÚNÍ 1989 KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNI KSÍ „Þurfum að leiðrétta smá mistök frá því í fyrra“ Hilmar Sighvatsson var fyrirliði Bikarmeistara Vals 1988, er þeir lögðu Keflvíkinga í úrslitaleik, 1:0. Hilmar leikur nú með Fylki gegn Keflavík í 16- liða úrslitunum. FRJALSIÞROTTIR Brynjúlfur náði góðu hlaupi í Svíþjóð Brynjúlfur Hilmarsson úr ÚÍA, sem er búsettur í Gautaborg, náði þriðja besta tíma íslendings í 1500 m hlaupi á móti í Gjávleí Svíþjóð á miðvikudaginn. Hann hljóp vegalengdina á 3:45.79 mín. Aðeins tveir hlauparar hafa náð betri tíma. íslandsmetshafinn Jón Diðriksson - 3:41.65 mín. ogÁgústÁsgeirsson - 3:45.47 mín. - sagði Stefán Haraldsson, formað- ur knattspyrnudeildar KR, um viður- eignina við Tindastól KR—INGAR sækja Sauðkræk- linga heim í 16-liða úrslitum í bikarkeppni KSÍ og eiga því harma að hefna frá því í fyrra er þeir töpuðu óvænt fyrir norðan. En dregið var í 16-liða úrslit í gær. Leikirnir eiga að fara fram 4. og 5. júlí. Tindastóll sigraði KR 4:3 í 16- liða úrslitum á Sauðárkróki í fyrra og voru það sennilega óvænt- ustu úrslit bikarkeppninnar 1988. Eftir það hefur Tindastóll oft verið nefnt „KR-baninn“. „Það verður gaman að fara norð- ur því vicf þurfum að leiðrétta smá mistök frá því í fyrra,“ sagði Stefán Haraldsson, formaður knattspymu- deildar KR, er hann var spurður um mótheijana og bætti við: „Það er erfitt að sækja Tindastól heim. Eg hefði frekar kosið að fá heima- leik gegn 1. deildarliði." Það er ljóst að eitt 3. deildarlið og eitt 2. deildarlið komast í 8-liða úrslit bikarkeppninnar. Þróttur Reykjavík og Huginn mætast í Reykjavík og 2. deildarliðin Víðir og Selfoss í Garðinum. Bikarmeistarar Vals mæta Víkingum að Hlíðarenda, en þessi lið mættust í undanúrslitum í fyrra. Þá sigraði Valur með marki Jóns Grétars Jónssonar. íslandsmeistar- ar Fram mæta KA á Akureyri. Valur sló Fram út í 8-liða úrlsitum í fyrra, en KA tapaði fyrir IA í 16-liða úrslitum. ÍBK, sem lék til úrslita við Val í fyrra, mætir Fylki í Árbænum. Skagamenn mæta FH á Kaplakrik- anum og Þór fær ÍBV í heimsókn til Akureyrar. Bikardrátturinn Eftirtaln lið drógust saman í 16-liða úrslitum: (Leikdagur fyrir aftan hvern leik) Fylkir—ÍBK..........5.júlí Valur—Víkingur......4. júli FH-ÍA...............5. júlí Tindastóll—KR.......5.júlí Víðir—Selfoss.......5. júlí KA—Fram.............5. júlí Þór-ÍBV............4. júlí Þróttur R.— Huginn.4. júlí KNATTSPYRNA / 4. DEILD Ögri úr leik! Ogri, sem hefur mátt þola hvern stórskellinn af öðrum í 4. deildarkeppninni í knattspyrnu, er úr leik. Forráðamenn félagsins mættu á skrifstofu Knattspyrnu- sambands íslands í gær og drógu liðið úr keppni. Þar með eru öll úrslit í leikjum liðsins fram til þessa ógild. Ögri var búið að leika flóra leiki og fá á sig 83 mörk, en skor- að tvö. Ögri tapaði t.d. 0:28 fyrir Njarðvík og skoraði Einar Einars- son þá tólf mörk fyrir Njarðvík- inga. Einar er því ekki lengur markahæsti leikmaður 4. deildar- keppninnar. Ógri tapaði 0:19 fyrir Stokks- eyri, 2:21 fyrir Augnablik og 0:15 fyrir Skotfélagi Reykjavikur. Staðan er nú þannig í A-riðlinum - eftir að leikir Ögra hafa verið teknir frá: Augnablik..........2 2 0 0 4:0 6 Ægir...............4 2 0 2 2:4 6 Njarðvík...........3 1 1 1 4:3'4 Skotf.Reyk.........3 1 1 0 3:2 4 Fyrirtak...........3 1 1 1 4:4 4 Stokkseyri.......4 0 1 3 7:11 1 ÍH&nR FOLK ■ ÞAÐ kemur í hlut breska dómarans Alans Snoddy að dæma síðari leik Austurríkis og Islands í heimsmeistarakeppninni í knatt- psymu, sem fram fer í Salzburg í haust. Þetta verður annar jeikurinn sem Snoddy dæmir hjá Islandi í riðlinum — hann var við stjómvölinn þegar Sovétmenn náðu jafntefli á Laugardalsvelli í fyrravor. H ALFREÐ Gíslason, landsliðs- maðurinn kunni í handknattleik, ^ hefur ákveðið að draga fram knatt- spyrnuskó sína, sem legið hafa uppi á hiilu í áraraðir, og leika um mán- aðartíma með TBA frá Akureyri í 4. deild D. Alfreð verður í fríi á Akureyri í júlí og ætlar að halda sér í æfíngu þann tíma með því að æfa og leika fyrir TBA. M ÞORVALDUR Flemming Jensen skoraði mark Augnabliks í bikarleiknum gegn ÍBV í fyrra- kvöld, ekki Guðmundur Halldórs- son, eins og sagt var. Beðist er velvirðingar á j)essu. ■ KRISTJAN Sverrisson, 15 ára kylfingur í Keili, fór holu í höggi á 16. braut á innanfélags- móti þann 21. júní. Hann notaði 5-tré við að ná draumahögginu. M GUNNAR Valgeirsson, körfuknattleiksdómari, vérður ekki í sviðsljósinu í íþróttahúsum lands- ins næsta vetur. Gunnar fer til Bandaríkjanna í haust, þar sem hann hyggst ljúka doktorsnámi í félagsfræði. ■ REAL Madrid vann seinni leik sinn gegn Atletico Madrid, 1:0, í undanúrslitum spönsku bik- arkeppninnar, en félagið vann fyrri leikinn, 2:0. Emilio Butragyeno * skoraði eina mark leiksins. Real Madrid mætir Valladolia í úrslita- leiknum, sem fer fram 30. júní. ■ FRANKFURT vann, 2:0, fyrri leik sinn gegn Sarbriiggen í keppn- inni um sæti í „Bundesligunni." Félagið mun að öllum líkindum halda sæti sínu. Tvö ný lið leika í „Bundesligunni“ næsta vetur — Dusseldorf og Homburg. É JEAN-Marie Pfaff, fyrrum landsliðsmarkvörður Belgíu, hefur hug á að gerast leikmaður með tyrkneska félaginu Trabzonspor. ■ ALLT bendir til að Ottavio Bianvhi, þjálfari Napolí, segi starfí sínu lausu eftir síðasta leik Napolí um helgina. Hann hefur oft verið^ upp á kant við Diego Maradona. ■ JULIO Cesar Romero, sem Barcelona fékk lánaðan frá bras- ilíska félaginu Fluminense, er ekki lengur inn í myndinni hjá Johann Cruyff, þjálfara félagsins. Romero segist vilja vera áfram á Spáni. ■ BÚLGARSKI leikmaðurinn Khristo Stoichkov, sem leikur með Sreders Sofía, er nú kominn ofar- lega á lista yfír leikmenn sem Cru- yff vill fá til Barcelona. KNATTSPYRNA / FÆREYJAR „Fyrir opnu máli svíkur hann ikki“ Knaftspyrnuskóli KSÍ verður starfræktur á Laugarvatni dagana 7.-14. júlí nk. og í sambandi við skólann boðar Knatt- spyrnusambandið til fundar þar með unglingaþjálf- urum og unglingaleiðtogum sunnudaginn 9. júlí. Dagskrá: Egill Steinþórsson markhæsturítyrstu deildfærsku knattspyrnunnar FYRRUM Ármenningurinn Egill Steinþórsson gerir það gott í færeysku knattspyrnunni um þessar mundir. Eftir leikhelg- ina 10. júnf var hann mark- hæstur ífyrstu deildinni með 9 mörk eftir 7 umferðir. Lið hans Vágs boltf elag er í f jórða sæti heildarinnar með 9 stig. Efsta sætið skipuðu þá HB og B71, en B71 spilar nú ífyrsta sinn í fyrstu deild. Þeim Vágsmönnum hefur gengið misjafnlega í sumar, en í 7. umferð gerðu þeir góða ferð til Þórshafnar og burstuðu toppliðið Havnar bolt- felag 4:0. Egill Steinþórsson fór þar á kostum, skoraði 3 mörk og fjórða markið gerðu Havnarmenn sjálfír eftir að Egill hafði þrengt að þeim. í færeyska Dagblaðinu segir meðal annars svo frá athöfnum Egils í leiknum: „í 28. minutti varð Egill aftur spældur fríur í brotsteiginum hjá HB, og við sera góðum skoti upp undir netaloftið legið hann VB á odda 1:0. Tá var fröi á vágbing- um. í 35. minutti slapp Egill aftur leysur. Ein bóltur kemur fram móti brotsteiginum hjá HB, har Egil stendur. Kaj Leo í HB-málinum kemur út, men ovseint. Egil fær prikað bóltin fram við honum og fyrir opnum máli svíkur hann ikki...“ HB var eftir 7. umferð efst með 11 stig og B71 hafði jafnmörg stig í öðru sæti. B68 var í því þriðja, VB í f[órða, B36 í fímmta, SÍF í sjötta, KÍ í sjöunda, ÍF í áttunda, GÍ í níunda og lestina rak LÍF með 1 stig. B71 og SÍF leika nú í fyrsta sinn í fyrstu deild og hefur frammistaða þeirra vakið athygli. 1. Staða unglingaknattspyrnunnar. 2. Mótafyrirkomulag. 3. Verkefni yngri landsliðanna. 4. Kynning á starfsemi knattspyrnuskólans. 5. Önnur mál. Rútuferð verður frá skrifstofu KSÍ í Laugardal kl. 9.00 og til baka frá Laugarvatni um kl. 17.00. Þeir, sem hug hafa á þátttöku, eru beðnir um að tilkynna hana til skrifstofu KSÍ fyrir 30. júní nk., sími 84444. Æskulýðsnefnd KSÍ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.