Morgunblaðið - 29.05.1990, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1990
51
vilja og baráttu. Hún átti mikið
skap sem var vel agað og kunni
hún að beita því sem og öðrum
hæfileikum sínum. Hún gat verið
ráðrík og skapbráð en kærleikur
hennar og umhyggjusemi stóð
ávallt djúpum rótum. Hun hafði ríka
réttlætiskennd ásamt heiðarleika
og áreiðanleika sem einkenndi far
hennar. Það fór enginn í grafgötur
um hvar hann hafði hana og stóð
hún fast á sínu enda sterk og ákveð-
in og bugaðist aldrei.
Þó kynntist hún hinum ýmsu
hliðum mannlegs lífs og víst er að
hún lifði bæði mótvind og meðbyr
í dvöl sinni hér á meðal okkar.
Hún var vel látin og virk í þeim
félagsmálum sem hún starfaði í
enda dugleg og íjölhæf þar sem og
annars staðar. I september 1988
áttum við því láni að fagna að fá
þau hjón út í Hrísey og fagna sex-
tugs afmæli móður minnar. Það var
eftirminnileg og yndisleg stund. Þar
léku allir á als oddi og ekki vantaði
skagfirska gleði og hlýju sem fýlgdi
þeim hjónum ávallt sem og virðing
og væntumþykja.
Engan grunaði þá að elsku Edda
gengi ekki heil til skógar og að
þetta væri í síðasta skiptið sem við
hittum hana heila heilsu, enda var
hún að venju ekki að kvarta eða
ræða, sem hún kallaði lítilræði. Hún
bar frekar hag og heilsu annarra
fyrir brjósti heldur en að bera byrð-
ir sínar á torg.
En raunin var önnur. Fljótlega
kom í ljós sá sjúkdómur sem lagði
hina sterku og miklu konu að velli.
í langri baráttu sinni við erfiðan
sjúkdóm sýndi hún slíkan dugnað
og sjálfsaga að engin orð fá lýst.
í þeirri baráttu átti ekki síður
eftir að koma í ljós hvaða kostum
og dugnaði hún var gædd.
Erfiði, þunga og áhyggjur sam-
fara veikindum sínum kaus hún að
mestu ein að bera fremur en að
valda öðrum kvíða og áhyggjum.
Aldrei brást von hennar og kjarkur
í langri og strangri sjúkdómslegu.
Aldrei lét hún sína tryggu og um-
hyggjusömu ástvini finna á sér bil-
bug né uppgjöf.
Að vera samtíða og fá að kynn-
ast konu sem henni var lær-
dómsríkt hveijum og einum, þar fór
kona sem mikið gaf og mikið mátti
af læra enda er margt sem sýnir
það og sannar eftir dvöl hennar hér
með okkur á jarðríki.
Með þessum fátæklegu orðum
vil ég þakka henni allar góðar
stundir. Ég er sannfærð um að hún
fær góða heimkomu og henni líður
vel núna. Ég bið guð að blessa
minningu um góða konu og varð-
veita sálu hennar.
Elsku Valli, böm, tengdabörn,
barnaböm og aðrir ástvinir, ykkar
missir er mikill.
Megi algóður guð styrkja ykkur
og varðveita.
Svava Víglundsdóttir,
Vopnafirði.
+ Ástkær móðir mín, amma og langamma, GÍSLÍNA MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR frá Baldurshaga, Vestan tanneyjum, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði miðvikudaginn 30. maí kl. 13.30. Sesselja Andrésdóttir, Arndís Friðriksdóttir, Ingimundur Helgason, Andrés Haukur Friðriksson, Helga Pétursdóttir og barnabarnabörn.
Hinar innilegustu þakkir færum við öll- um þeim fjölmörgu, sem sýndu okkur vináttu og hlýhug og vottuöu okkur samúð, við óvænt andlát og útför eigin- konu minnar, móður okkar, tengdamóð-
Hafsteinn Auðunn Hafsteinsson, Hjördfs Magnea Guðmundsdóttir, Halldór Ágústsson, Sigurður Hafsteinsson, Maríanna Björg Arnardóttir, Arnar Hafsteinsson, Eva Hrönn Hafsteinsdóttir og barnabörn.
t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN EIRÍKSDÓTTIR, Tómasarhaga 46, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 30. maí kl. 13.30. Guðrún Egilsdóttir, Björn Björnsson Sigurður Egilsson, Guðbjörg Valdimarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, HELGA KRISTÍN BJARNADÓTTIR, Vesturgötu 141, Akranesi, sem andaðist aðfaranótt 27. maí, verður jarðsett frá Akranes- kirkju föstudaginn 1. júní kl. 11.00 fyrir hádegi. Snorri Hjartarsson Ásthildur Bjarney Snorradóttir.Þorsteinn Sigurjónsson, Hjörtur Snorrason, Ingibjörg Jóhannsdóttir, Margrét Snorradóttir, Ármann Hauksson og barnabörn.
+ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og bróður, FREYSTEINS ÁSTVALDAR JÓNSSONAR, Efstasundi 48. Guð blessi ykkur öll. Hrefna Valdemarsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn, og Marín Jónsdóttir.
t
Þökkum öllum þeim, sem sendu okkur kveðjur og sýndu okkur
mikla vinsemd, vegna andláts okkar hjartkæru móður, tengda-
móður, ömmu, langömmu og langalangömmu,
PETREU IIMGIMARSDÓTTUR HOFFMANN.
Inga Harðardóttir,
Hermann Pétursson,
Sveinbjörg Pétursdóttir,
Gunnar Pétursson,
Sigurdís Pétursdóttir,
Sigfús Þorgrímsson,
Pétur Jónsson,
Selma Eyjólfsdóttir,
dætur
og aðrir aðstandendur.
t
Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur sam-
úð og vináttu og veittu okkur hjálp við skyndilegt fráfall og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
HELGA ÁRNASONAR
vélstjóra,
Æsufelli 6.
Þorbjörg Kjartansdóttir,
Helga B. Helgadóttir, Smári J. Friðriksson,
Lilja Helgadóttir, Björn Björnsson,
Fjóla Helgadóttir, Sigurður H. Jónsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför
SIGURJÓNS ÞÓRÐARSSONAR,
Æsufelli 6.
Sigrún Sigurðardóttir,
Þórður Sigurjónsson, Þórhildur Hinriksdóttir,
Auður Björg Sigurjónsdóttir, Kristinn Gísiason
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug
við andlát og útför
VILBERGS ÞORLÁKSSONAR,
Hávegi 15,
Siglufirði.
Rósa Jónsdóttir,
Jóhann Vilbergsson, Þóra Vilbergsdóttir,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Lokað
vegna jarðarfarar MAGNEU ALDÍSAR
DAVÍÐSDÓTTUR. Gullsmiður
Jóhannes Leifsson.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — sími 681960
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi okkar,
INGIMUNDUR GUÐMUNDSSON
fyrrverandi verkstjóri,
Langholtsvegi 96,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtudaginn 31. maí
kl. 15.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þeim, sem vildu minnast hans,
er bent á hjúkrunarheimilið Skjól.
Ástríður Guðmundsdóttir,
Guðrún Ingimundardóttir,
Guðni Ingimundarson, Kristín Sigmundsdóttir,
Guðmundur Ingimundarson, Jóhanna M. Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
BRÉFA- S
BINDIN j
frá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað. s
Múlalundur
SÍMI: 62 84 50
Tölvusumarskóli
Sumarnámskeið fyrir börn og unglinga 10-16 ára i Tölvusumarskólanum.
Einstakt tækifæri til aö fá á 2. eða 3. vikna námskeiði þjálfun í öllum
grunnatriðum tölvunotkunar i starfi og leik.
Börn og unglingar hafa gaman af tölvum, því tölvur efla sköpunargleði, heilbrigöa og rökrétta hugsun.
Oftar en ekki hafa börn og unglingar ekki tækifæri til að nálgast þá þekkingu sem þarf til að nota tölvur.
Til að koma til móts kröfur þeirra höfum viö komið á fót námskeiöi sem sniðiö er að þörfum þeirra.
Dagskrá:
• Ritvinnsla og vélritun
• Tölvuteiknun og myndgerð
S3>
e&
%
%
• Almenn tölvufræði og umgengni við tölvur
• Leikjaforrit
• Gagnagrunnar og töflureiknar
• Tölvusamskipti og gagnabankar
• Heimsókn í tölvufyrirtæki
Við bjóöum upp á 45 eða 67 kennslustunda hagnýtt nám með úrvalskennurum. í hverjum hóp eru 10
nemendur. Hægt er að velja um hóp kl. 9-12 eða kl. 13-16. Námsgögn og hressing á námskeiði innifalin í
verði. Kennt er á Macintosh tölvur.
Námskeið byrja 5. júnf, 11. júní, 25. júní, 16. júlí, 7. ágúst, 13. ágúst og 20. ágúst.
Tolvu- og
verkfrœðiþjónustan
Tölvuskóli Halldórs Kristjánssonar
Skráning og allar frekari upplýsingar I
sfma 688090 eða á Grensásvegi 16
Hringdu og fáðu
bækling sendann