Morgunblaðið - 03.05.1991, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.05.1991, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FQSTUDAGUR 3. MAÍ 1991 27 Verðlaunahafar Coldwater: Ishúsfélag ísfirðinga hlýtur gæðaverðlaun Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Jón Kristmannsson, yfirverkstjóri Ishússfélagsins á Isafirði með við- urkenningarskjalið ásamt Páli Péturssyni gæðasljóra Coldwater í Bandaríkjunum. Frá athöfninni sem fram fór í kaffisal íshúsfélagsins. Sjö önnur frystihús ná þessum árangri ísaflrði. PÁLL Pétursson gæðastjóri Coldwater í Bandarikjunum af- henti Jóni Kristmannssyni verð- launaskjöld í athöfn sem fram fór í kaffisal íshúsfélagsins þriðjudagsmorguninn 23. apríl. Framleiðslugæði íshúsfélagsins hafa verið mikil undanfarin ár og hefur félagið hlotið þessi verðlaun 5 eða 6 sinnum áður. Þrátt fyrir mikinn framleiðslu- samdrátt hefur tekið að halda gæðastuðlum í hámarki, en jafn- framt náð því að skila hagnaði af rekstrinum. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna leggur mikla áherslu á gæðaeftirlit. Þannig voru í för með Páli Sturlaug- ur Daðason framkvæmdastjóri gæða- og þjónustudeildar SH og Bylgja Hauksdóttir svæðaeftirlits- kona SH á Vestfjörðum. I ávarpi sem Páll flutti kom fram að gæði afurða frystihúsanna og frystitogaranna innan SH hafi gert ICELANDIC vörumerkið að þekkt- asta gæðavörumerkinu meðal sjáv- arafurða í Bandaríkjunum. Hin frystihúsin sem hlutu gæða- framleiðsluskjöldinn eru: Hrað- ftystihús Eskifjarðar, Útgerðarfé- lag Akureyringa, Skjöldur Sauðár- króki, Vinnslustöðin Vestmannaeyj- um, Heimaskagi Akranesi, Þormóð- ur rammi Siglufirði og Fiskiðjan V estmannaeyjum. íshúsfélag Isfirðinga hefur mátt horfa upp á mikinn samdrátt í vinnslu vegna breytinga^ í sölu ferskfisks undanfarin ár. Á síðasta ári var framleiðslan um 3.000 tonn af flökum úr 7-8 þúsund tonnum af hráefni en mestur varð aflinn sem unnin var um 14 þúsund tonn. Þá voru framleidd 4.300 tonn af flökum auk saltfisks og skreiðar, en saltfiskur og skreið hefur alls ekki verið unnin síðustu ár vegna hráefnisskorts. Þrátt fyrir þennan mikla samdrátt er fyrirtækið rekið með hagnaði og þar sem nú hefur verið treyst verulega hráefnisöflun- in að sögn Jóns Kristmannssonar yfirverkstjóra er útlitið afar bjart. Ishúsfélagið keypti í fyrra hálfan hlut í togaranum Framnesi frá Þingeyri auk þess sem það stóð að kaupum á mb. Fróða frá Ólafsvík sem nú heitir Hafdís og er nú gerð út á línu frá ísafirði. Þá hefur út- gerðarfélagið Hrönn sem gerir út aflaskipið Guðbjörgu nýlega keypt meirihluta í félaginu og binda menn miklar vonir við að þar með verði hráefnisöflunin enn aukin. - Úlfar. Ásdís Jenna Ástráðsdóttir Eg hugsa eins og þið í 2. útgáfu Ljóðabókin Ég hugsa eins og þið eftir Ásdísi Jennu Ástr- áðsdóttur er nú komin út í ann- arri útgáfu. Fyrri útgáfan, sem kom út fyrir síðustu jól, seldist upp. Reykjavík, Kópavogur, Garðabær og Seltjamames: Viljayfirlýsing um sameiginlega fráveitu BORGARRÁÐ Reykjavíkur og bæjarráð Kópavogs, Garðabæjar og Seltjarnarness hafa undirritað viljayfirlýsingu um að standa sameigin- lega að fráveituframkvæmdum við Skeijafjörð, Ægisíðu og Eiðsgranda í þeim tilgangi að hreinsa Skeijafjörð og innvoga af öllu frárennsli. Áætlaður kostnáður vegna framkvæmdanna er 1.235 miHj. Gert er ráð fyrir að Reykjavíkurborg greiði 840 millj., Kópavogsbær 252,1 miiy., Garðabær 121,3 millj. og Seltjarnarnes 21,7 millj. í framkvæmdaáætlun embættis vogi þarf að breyta lögnum innan gatnamálastjóra í Reykjavík kemur fram, að verkinu á að ljúka árið 1998. Framkvæmdir eru þegar hafn- ar við Ægisíðu og er kostnaður vegna þeirra um 100 millj. Á þessu ári verður hafist handa við dælustöð við Faxaskjól og verður varið um 75 millj. til hennar á árinu en heildar- kostnaður er áætlaður um 175 millj- ónir. Til áframhaldandi framkvæmda við Ægisíðuræsi er gert ráð fyrir 45 millj. á þessu ári. Gert er ráð fyrir að frárennsli frá nágrannasveitarfélögunum komi að hluta til um Kópavog og verði dælt um neðansjávarlögn í Skeijafírði frá Kársnesi að dælustöð sem reist verð- ur til móts við athafnarsvæði Skelj- ungs. Þaðan fer frárennslið um Ægisíðuræsið að dælustöð við Faxa- skjól og áfram yfír grandann að dælustöð við Boðagranda og þaðan dælt á haf út. Að auki mun núver- andi Fossvogsræsi tengjast Ægisíðu- ræsi. Gert er ráð fyrir að Garðbæingar og Kópavogsbúar vinni saman að lagningu ræsis milli Garðabæjar og Kópavogs og til Reykjavíkur. í Kópa- bæjarmarkanna að dælustöðinni á Kársnesi. „Við getum ekki tengt inn Foss- vogsræsið, sem tekur við allri frá- veitu úr Breiðholti, fyrr en byggð hefur verið hreinsistöð við Boða- granda árið 1998 en þá er einnig gert ráð fyrir tengingu frá Kárs- nesi,“ sagði Sigurður Skarphéðins- son, aðstoðargatnamálastjóri. „Það sem verið er að framkvæma núna er nýtt ræsi við Ægisíðu, sem hreinsa mun fjöruna. Til að byija með verður frárennslinu dælt þaðan og verulega langt út frá landi við Eiðsgranda um dælustöð við Faxaskjól. Þegar dælu- stöðin við Eiðsgranda er risin verður hægt að koma því marga kílómetra frá landi. Jafnframt er ætlunin að reisa hreinsistöð við Boðagranda og fyrr verður ekki farið út með veru- legt magn af frárennsli. Samkvæmt framkvæmdaáætlun á hreinsistöðin að vera tilbúin árið 1998 en það ár hefur Reykjavíkurborg skuldbundið sig til að sjá til þess að möguleikar á tengingu frá nágrannabyggðunum verði til staðar.“ * Um 6 kg á 486,- kr/kg 1 SAMSTARFSHÓPUR UM SOLU LAMBAKJOTS Ef þú vilt lækka matarreikning heimilisins, þarftu ekki að velta lengi fyrir þér verði og kostum lambakjöts á lágmarksverði til að sjá augljósa leið til sparnaðar. Gæði kjötsins hafa verið stóraukin með mun meiri snyrtingu, auk þess sem öllu kjötinu í pokanum er nú sérpakkað í fjóra minni poka, tilbúið í ísskápinn. I hverjum poka eru: 6-7 supukjötsbitar 4-5 framhryggjarsneiðar eða griilsneiðar 12-14 kótilettur eða hálfur hryggur 1/1 heilt læri abeins 2.900,- kr.* Sparaðu og kauptu poka af lambakjöti á lágmarksverði þvt það er - náttárulega gott
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.