Morgunblaðið - 10.07.1991, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 10.07.1991, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991 9 einbýlishOs til leigii frá og með 1. sept. nk. Húsið er á einni hæð, um 150 fm, með fallegum garði og í fallegu umhverfi nálægt Hrafnistu í Hafnarfirði. Upplýsingar, ertilgreini fjölskyldustærð og annað sem máli skiptir, sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 20. júlí 1991, merktar: „Reglusemi og góð umgengni - 7899". Nú eru raunvextir á spariskírteinum ríkissjóðs í áskrift 8,1%. Pantaðu áskrift núna og þá færðu þessa háu vexti, á þeim skírteinum sem þú kaupir til áramóta, þótt vextir lækki aftur síðar á árinu. Hringdu eða komdu í Seðlabanka íslands eða Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa og pantaðu áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs. i ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Hverfisgötu 6, sími 91- 626040 Kringlunni, sími 91- 689797 Kalkofnsvegi 1, sími 91-699600 Stórsvika- kenningin Guðmundur Ólafsson, viðskiptafræðingur, ritar grein í fréttabréfið, sem hann nefnir „Nýja línan i íslenzkum stjónmiálum í kjölfar stjómarmynd- unar.“ Kaflar úr grein Guðmundar eru birtir hér á eftir: „Á síðasta fundi FFJ (þann 12. júni sl.) reifaði Ossur Skarphéðinsson hugmyndir sínar um ný- afstaðna kosningabar- áttu og þá pólitísku nið- urstöðu sem kosningam- ar fæddu af sér. í máli hans kom fram að ekki hefðu verið í boði þeir kostir sem núverandi stjórnarandstiiða léti í veðri vaka, annars vegar viðreisnarstjóm og hins vegar vinstri stjóm með hugsanlegum stuðningi Kvennalista. Kostimir hefðu verið Sjálfstæðis- flokkur + Alþýðuflokkur eða Sjálfstæðisflokkur + Alþýðubandalag. Fleiri hafa raunar sett fram svipuð sjónarmið, sbr. skrif Þrastar Ólafssonar og Birgis Amasónar. Menn hafa með öðrum orðum svarað stórsvika- kenningu Ólafs Ragnars með því að hann hafi misst af „svikunum“ sjálfur. Þannig hafa rök- in fyrir núverandi ríkis- stjóm mótast nokkuð af flokkspólitískum sjón- armiðum, þótt margt fleira hafi borið á góma. f lok fundarins gerði ég nokkuð að umræðu- efni þau verkefni sem framundan em í íslensku efnahagslifí og hélt því fram að einnig af þeim ástæðum væri samvinna Alþýðufíokksins við Kvennalista, Alþýðu- bandalag og Framsókn- arflokk (hér skammstaf- að KAF) út í hött. Nú hefur orðið úr að halda umræðunni áfram þar sem frá var horfið og fjalla nánar um þessi mál á fundi miðvikudaginn 10. júlí næstkomandi. I millitíðinni hefur einnig það gerst, að Margrét Bjömsdóttir birtí grein um þessi mál í Morgun- blaðinu undir nafninu Ný l viíglírta í íslenskum ERLENDIR VÍSITÖLUSJÓÐIR Fjárfestið í helstu kauphöllum heimsins með VIB VÍB býður viðskiptavinum sínum og öðrum fjárfestum að taka þátt í ávöxtun hlutabréfa í helstu kauphöllum heim- sins með kaupum í verðbréfasjóðum VIB. Erlendar eignir þessara sjóða eru ávaxtaðar í hlutabréfum erlendra fyrirtækja með því sem næst sama vægi og fyrirtækin hafa í hlutabréfavísitölum á viðkomandi markaði. Sjóðir sem þessir nefnast vísitölusjóðir. Ráðgjafar VÍB veita nánari upplýsingar um ávöxtun í erlendum hlutabréfum. Verið velkomin í VIB. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Ný lína í stjórnmálum ? Þeir, sem geta og eiga að fást við aðkallandi vanda efnahags- mála, eru frjálslyndir menn og jafnaðarmenn í öllum flokkum, segir í grein í fréttabréfi Félags frjálslyndra jafnaðarmanna. Þar segir ennfremur, að það þýði ekkert að leita til Kvennalista, Alþýðubanda- lags eða Framsóknarflokks (KAF-flokkanna) um samstarf, því þeir flokkar séu hluti þeirrar meinsemdar, sem vinna þurfi bug á. í Stak- steinum í dag eru birtir kaflar úr þessari grein. stjórnniálum. Kemst hún þar að svipuðum niður- stöðum og þeim er ég tæptí á um eðli KAF- flokkanna og pólitískt hlutverk Alþýðufíokks og er varla ofmælt að grem Margrétar sé ein sú mikilvægasta i íslensk- um stjórnmálum hin síðari ár.“ Smákónga- klíka „Strax og stjómar- myndun lauk kom í (jós að tveir ráðherrar Sjálf- stæðisflokksins virtust ráðnir i að hundsa samn- ingaviðræður formanns sins og fljótlega kom á daghm að innan þing- flokksins varð ráðandi smákóngaklika, sem hef- ur gert formanninum erfitt fyrir, auk þess sem losnaði um þau tök sem Davíð hefur hingað til haft á borgarstjómar- fíokki sínum. Þetta leiddi til þess að ekki hefur náðst samstaða um sjálf- sagðar umbætur í land- búnaðarmálum og sjáv- arútvegsmálum og þar með takmarkast geta ríkisins verulega í því að ná niður hinum króniska fjárlagahalla. Þess vegna neyddist rikisstjómin til þess að hækka vexti á ríkisbréfum, til þess að fjármagna halla sem hefði verið hægt að losna auðveldlega við, ef farið hefði verið að tillögum Alþýðuflokksins í þessu efni. Þessi vaxtahækkun ríkisins leiddi hins vegar til almennrar vaxta- hækkunar með ófyrirsjá- anlegum afleiðingum hvað snertir verðbólgu og hagvöxt. Þamiig má segja að niðurstaða fyrstu mán- aða stj ómarsamstarfsins sé nyög í þeim dúr sem orðið hefði ef Alþýðu- flokkurinn hefði farið í stjóm með KAF-flokkun- mn. Eftir að framsóknar- liluti þingflokks Sjálf- stæðisflokksins fór heim í sveitina að afíoknu vor- þingi, þá hefur rikis- stjómin samt sem áður náð að marka örlítið heil- brigðari stefnu sbr. Ála- foss og rælq'uvinnslu svo dæmi séu tekin.“ Hin nýja lína „Frá stríðslokinn hef- ur íslenska hagkerfið um margt svipað til annarra nýfijálsra nýlenduríkja. Atvinnulíf hefur lengst af verið fábrotíð og byggst að verulegu leytí upp á hráefnasölu úr landi samfara afar ófull- komnurn viðskiptahátt- um og markaöslegri ein- angrun. Mikili hagvöxtur hefur að mestu byggst á aukinni sókn í fiskistofna og aukinni atvinnuþátt- töku kveirna. Sveiflm- i sjávarútvegi og mark- aðseinangrun hafa leitt til mun þrálátari verð- bólgu en þekkist í þró- aðri löndum. Fram á miðjan síðasta áratug hefur þjóðin getað bætt sér upp öll efnahagsmein með aukhmi sókn í stofn- ana, hvort sem um hefur verið að ræða verð- bólguóhagræði, við- skiptahalla eða óhag- kvæmni í atvinnulifi. Verðbólgan var nánast það eina sem skyggði á þennan hagvöxt. Nú er svo komið að ekki verður gengið lengra í ofnýtingu físki- stofna eða mannafla. Aðkallandi efnahags- vandamál krefjast ann- arra úrlausna en þjóðar^ sátta og verðstöðvana. I þeim efnum þýðir ekki að leita til KAF-flokk- anna um samstarf; þeir eru hluti þeirrar mein- semdar sem vinna þarf bug á. Þeir sem geta og eiga að fást við hinn nýja vanda eru fijálslyndir menn og jafnaðarmenn i öllum flokkum.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.