Morgunblaðið - 10.07.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.07.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JULI 1991 JL9 Reuter Barbara Cartland níræð Breski rithöfundurinn Barbara Cartland varð níræð í gær og þótt hún sé önnum kafin um þessar mundir við að skrifa 543. bók sína gaf hún sér tíma til að halda upp á afmælið á veitingahúsinu Claridge í Lundúnum, þar sem þessi mynd var tekin. Cartland skrifar enn meira en tuttugu ástarsögur á ári. Ítalía: Deilt um endurskoðun eftirlaunaffreiðslna Róm. Reuter. —** FRANCO Marini, atvinnumálaráðherra Ítalíu, ætlar á fimmtudag að leggja fram tillögur í ríkisstjórn Ítalíu sem miða að því að breyta fyrirkomulagi efturlaunagreiðslna í landinu til að draga úr halla rikissjóðs. I tillögum Marinis felst m.a. að eftirlaunaaldur verður hækkaður og lífeyrissjóðsgreiðslur launþega verða auknar. Verður breytingun- um komið á í nokkrum áföngum og munu þær ekki byrja að spara fé fyrir ríkissjóð fyrr en árið 1996. Guido Carli, fjármálaráðherra, hefur gagnrýnt tillögur Marinis og segir þær koma til framkvæmda of seint og ganga of skammt til að stuðla að minni- fjárlagahalla. Seg- ist Carli hafa viljað sjá mun róttæk- ari tillögur. Marini svaraði þessari gagnrýni þannig að afstaða Carlis tæki mið af því að hann þyrfti að fjármagna gífurlegan halla á ríkis- sjóði. „Mín afstaða byggist hins vegar á því að ef við gerum þetta ekki í áföngum og að ef ekki er samstaða um aðgerðirnar þá verður ekkert úr þessu,“ sagði Marini. Eftirlaunagreiðslur ítala eru meðal þeirra ríflegustu í heimi og hafa þær löngum verið þung byrði á ríkissjóði landsins. Nema þær allt að fjórðungi útgjalda ríkisins. Stjórnmálamenn hafa samt sem áður ekki þorað að taka af skarið í þessum efnum af ótta við að styggja kjósendur. hringhraðli, eða öreindahraðli, og hraðar sameindinni um rafsegul- sviðið, þar sem þyngri og léttari samsætur úransins fara eftir örlítið mismunandi brautum þannig að hægt er að skilja þær að. Uran- oxíð breytist á þessum ferli í klór- samband með fjögur klóratóm (uranium tetrachloratom). Sam- eindir klórsambandsins breytast síðan í gufu, hlaðast og verða að bunum með aukinni hröðun. Buna hlöðnu gufunnar er síðan látin fara um segulsvið í lofttæmdum klefa. Braut jónanna verður þá bogalaga vegna segulsviðsins. Sameindir úr- ans-235 lenda á öðrum stað en sam- eindir þyngri samsætunnar, úrans- 238. Tækjum er að lokum komið fyrir í lofttæmdum tanki til að ein- angra úran-235 og safna því. Bandarísku vísindamennirnir í Kaliforníuháskóla þurftu að nota tíu kalutron-búnaði til að fiamleiða um 2,8 grömm af úran-235 á dag. Góðir bandaskór fyrir sumarið Bláir, svartir og hvítir Verö kr. 390.- Lmms5»siw:i2m MilZll mm\m Arsskýrsla Amnesty International: Mannréttindi brotin í 141 ríki á síðasta ári London. Reuter. I ARSSKYRSLU mannréttindasamtakanna Amnesty International kemur fram að mannréttindi voru brotin í alls 141 ríki á síðasta ári og fjölgaði mannréttindabrotum í mörgum þeirra. Fjöldaaftökur og pyntingar i kjölfar innrásar íraka í Kúveit beri því einnig vitni að ekki hafi verið brugðist nógu hart við af sljórnvöldum annarra ríkja vegna fyrri mannréttindabrota í írak. í yfirlýsingu sem samtökin sendu frá sér með ársskýrslunni segir að mannréttindabrot hafi oft fallið í skuggann af diplómatískum hags- munum, viðskiptahagsmunum eða pólitískri tækisfærisstefnu. Þá hafi mannréttindabrot íraka fengið mik- inn uppslátt í fjölmiðlum en aftur á móti hafi lítil umræða verið um mjög alvarleg brot sem áttu sér stað í öðrum löndum s.s. Chad, Kína, Kól- umbíu, Malí, Búrma, Sýrlandi og Tyrklandi. Þá segir að mannréttindabrot hafi aukist í Afríku þrátt fyrir þá bjart- sýni sem hafi vaknað í upphafi árs- ins eftir að pólitískir fangar voru leystir úr haldi í Suður-Afríku og dauðarefsing var afnumin í Namibíu. Nefnir Amnesty sérstaklega til mjög gróf brot í Mauritaníu þar sem her- menn tóku þúsundir óvopnaðra þorpsbúa til fanga og myrtu fjölda manns. í Sýrlandi eru þúsundir pólitískra fanga í haldi án þess að nokkur ákæra hafi verið lögð fram á hendur þeim. Eru sumir í haldi vegna þess að þeir eru grunaðir um tengsl við hópa sem hafa haldið uppi gagnrýni á stjómvöld. Um 25.000 Palestínumenn voru handteknir í ísrael og á hernumdu svæðunum, en þar af voru 4.000 í haldi án þess að ákæra hafi verið lögð fram eða réttað hafi verið í máli þeirra. Mannréttindabrot í Asíu eru mjög mikil og alvarleg, að sögn Amnesty. Þannig hafa þúsundir almennra borgara verið teknar af lífí á Sri Lanka eða þeirra er saknað. Þá hef- ur í kjölfar gífurlega aukins ofbeldis aðskilnaðarsinna í ýmsum héruðum Indlands fylgt sambærileg aukning valdbeitingar af hálfu stjórnvalda sem kostað hefur hundmð manna lífið. í Kína var þúsundum manna sem handteknir vom 1989 fyrir mótmæli gegn stjórnvöldum enn haldið í haldi í fyrra. Þá skráði Amnesty 750 aftökur í Kína en þær hafa ekki verið fleiri síðan 1983. í skýrslunni kemur einnig fram að fjöldi barna var myrtur af dauða- sveitum í Suður-Ameríkuríkjunum Guatemala og Brasilíu. Segir að af 500 börnum sem létust á vofeiflegan hátt í Rio de Janeiro hafi flest verið drepin af dauðasveitum. Danir em einnig gagnrýndir af Amnesty International og er það í fyrsta skipti sem Danir fá neikvætt umtal í skýrslum samtakanna, að sögn Berlingske Tidende. Er því haldið fram að flóttamenn sem leitað hafa hælis í Danmörku hafi verið illa meðhöndlaðir í dönsku fangelsi, Vestre Fængsel. Suzuki Vitara Jlxi 3|a dyra lipur og öflugur lúxusjeppi Staðalbúnaður í Suzuki Vitara • 1.6 I 80 ha vél með rafstýrðri bensínsprautun • 5 gíra með yfirgír eða 3ja gira sjálfskipting • Samlæsing hurða • Rafmagnsrúðuvindur • Rafstýrðir speglar • Snertulaus kveikja • Vökvastýri • Veltistýri • Halogen ökuljós með dagljósabúnaði • Þokuljós að aftan • Útvarpsstöng • Gormafjöðrun á öllum hjólum • Diskahemlar að framan, skálar að aftan • Grófmynstraðir hjólbarðar 195x15 • Varahjólsfesting • Snúningshraðamælir • Klukka • Vindlingakveikjari • Hituð afturrúða • Afturrúðuþurka og sprauta • Kortaljós • Fullkomin mengunarvörn, (Catalysator) • Samlitir stuðarar, hurðar- húnar og speglar • Vönduð innrétting • Litaðar rúður • Sílsahlífar • Eyðsla frá 8.0 I á 100 km • Verð 5 gíra: 1.388.000 stgr. Sjálfskiptur: 1.473.000 stgr. Til afgreiðslu strax. SUZUKI MINNI MENGUN SUZUKIBÍLAR HF SKEIFUNN117 - SÍMI 68 51 00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.