Morgunblaðið - 19.07.1991, Page 43
43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1991
KNATTSPYRNA
Fylkismenn
kæra Guðjón
Knattspyrnudeild Fylkis hefur kært Guðjón Þórðarson, þjálfara
Akurnesinga, fyrir að hafa komið nálægt stjórn liðs síns í viður-
eigninni við Fylki í 2. deild 25. júní sl. Málið var tekið fyrir í héraði í
gær, og málsaðilum veittur frestur þar til á þriðjudag til að skila grein-
argerð. Guðjóni var sýnt rautt spjald í leik liðanna nokki-um dögum
áður í bikarkeppninni, og var því í eins leiks banni í deildarleiknum.
En Fylkismenn halda því fram að hann hafi staðsett „sig við handrið
rétt við völlinn og þaðan hrópaði hann fyrirskipanir og leiðbeiningar
til leikmanna ÍA,“ eins og segir i kærunni. „Þá var Guðjón inni í klefa
ÍA fyrir leik og í hálfleik," sagði Ásgeir Ólafsson, einn stjórnarmanna
knattspyrnudeildar Fylkis við Morgunblaðið í gærkvöldi. Gunnar Sig-
urðsson, formaður Knattspyrnufélags ÍA, vildi ekki tjá sig um málið
í gærkvöldi.
Guðmundur Benediktsson verð-
ur yngsti atvinnumaður Islands.
Ekeren og
Þor buin
ad semja
Þór á Akureyri og belgíska 1.
deildar félagið Ekeren hafa
náð samkomulagi um kaupverð og
fleira sem lýtur að því að Guðmund-
ur Benediktsson gerist atvinnumað-
ur hjá belgíska félaginu. Samningur
verður undirritaður fljótlega og
líkur eru á að Guðmundur fari utan
í næstu viku. Hann verður fyrst
undir læknishendi, vegna meiðsl-
anna sem hafa htjáð hann undan-
farna mánuði, en hefur síðan æfing-
ar með liðinu í haust eða vetur.
Guðmundur er yngsti íslendingur-
inn sem gerist atvinnumaður í
knattspyrnu.
GOLF / OPNA BRESKA MEISTARAMOTIÐ
Ballesteros
með forystuna
eftir fyrsta dag
Reuter
Seve Ballesteros fagnar hér eftir að hann setti niður langt pútt á 18.
braut. Hann lék á 66 höggum, fjórum undir pari og hefur forustu.
SEVE Ballesteros f rá Spáni
hefur forustu eftir fyrsta dag á
Opna breska meistarmótinu.
Ballesteros iék á 66 höggum,
fjórum höggum undir pari, og
rifjaði upp góða byrjun sína frá
því fyrir 15 árum þegar hann
tók fyrst þátt í mótinu. Mótið
er nú haldið í 120. sinn.
Veðrið var ekki eins og keppend-
ur hefðu helst kosið, nokkur
vindur sem færðist íaukana er líða
tók á daginn og rigningarsuddi.
Ballesteros var einn undir pari
þegar hann átti tvær holur eftir. Á
17. fékk hann öm og fugl á þeirri
síðustu þannig að hann kom inn á
fjórum undir pari.
Spánverjar virðast kunna vel við
sig í þannig veðri því Santiago
Luna kom inn á 67 höggum. „Eg
er ekki taugaspenntur, ég geng um
í svefín. Ég veit ekkert hvaða kylf-
ur ég notaði á hringnum enda vil
ég ekki hugsa of mikið,“ sagði
Luna eftir að hann lauk leik í gær.
Luna varð að hafa fyrir því að kom-
ast í mótið og tryggði sér ekki rétt
til þátttöku fyrr en um síðustu helgi.
Martin Gates frá Bretlandi gerði
slíkt hið sama og hann lauk einnig
leik á 67 höggum. Hann nýtur að-
stoðar golfskóla sem David Lead-
better rekur, en sá þjálfar Nick
Faldo, sem á titil að veija. Faldo
byijaði illa í gær en náði sér síðan
á strik og kom inn á 68 höggum,
en hann hefur ef til vill haft um
annað að hugsa í gær því þá varð
hann 34 ára.
Nokkrir þekktir kylfingar voru
aftarlega á merinni í gær. Greg
Norman og Jose Maria Olazabal
komu báðir inn á 74 höggum. Þre-
faldur meistari, Gary Player lék á
75 og Tom Kite á 77 höggum.
Sandy Lile lauk leik í gær á 79 og
TRIMM
Borgarhlaupið
Borgarhlaupið verður haldið á göt-
um Reykjavíkur á morgun og
hefst klukkan 12. Hlaupnir verða 5
km, og er uppákoman hugsuð sem
létt æfing fyrir þá sem ætla að taka
þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst.
Það eru Austurbakki og Reykjavík-
urmaraþon sem standa að hlaupinu
sem hefst við verslunina Frísport neðst
á Laugarveginum á hádegi. Hlaupið
verður um miðbæinn, síðan um Miklu-
braut sem leið liggur að Kringlunni
þar sem hlaupinu lýkur við Kringlu-
sport.
Verðlaun verða veitt. Skráning
rennur út í dag og hægt er aðská sig
í fyrrnefndum verslunum og í íþrótta-
búðinni í Borgartúni.
fyrirliði Bandaríkjanna í Rydere
keppninni, Ray Floyd lék á 80 högg-
um.
Skor á fyrsta degi
66 Seve Ballesteros, Spáni.
67 Martin Gates, Chip Beck, Bandar., Sant-
iago Luna, Spáni.
68 Nick Faldo, Barry Lane, Gary Hallberg,
Mike Reid, Bandar., Constantino Rocca,
Ítalíu, Mark Mouland, Michael Harwo-
od, Ástralíu
69 Tom Watson, Bandar., Wayne Grady,
Ástralíu, Graham Marsh, Ástralíu, Tony
Johnstone, Zimbabwe, Carl Suneson,
Niek Price, Zimbabwe
70 Ian Woosnam, Eduardo Romero, Ar-
gengínu, Fulton Allem, S-Afríku, Peter
Allan, Danny Mijovic, Kanada, Curtis
Strange, Bandar., Jamie Spence, Steve
Jones, Bandar., Jack Nicklaus, Bandar.,
Rodger Davis, Australia, Donnie
Hammond, Bandar.
71 Lee Trevino, Bandar., Lanny Wadkins,
Bandar., Mark Calcavecchia, Bandar.,
Bemhard Langer, Þýskalandi, Gordon
Brand jnr., Davis Love III, Bandar.,
Robert Gamez, Bandar., Ricky Kawag-
ishi, Japan, Gavin Levenson, S-Afríku,
Jeff Sluman, Bandar., Craig Parry,
Ástralíu, Richard Boxall, Colin Montgo-
merie, Miguel Martin, Spáni, Michael
McLean, Vijay Singh, Fijieyjum, Paul
Broadhurst, Steve Elkington, Ástralíu,
Andrew Magee, Bandar., Mark O’Me-
ara, Bandar., Andrew Oldcorn, Henry
Roblin, Des Smyth, írlandi, Ben Crens-
haw, Bandar., Malcolm Mackenzie, Pet-
er Teravainen, Bandar. Paul Mayo, Ian
Baker-Finch, Ástralíu, John Bland, So-
uth Africa, Anders Forsbrand, Svíþjóð,
Massy Kuramoto, Japan, Howard Clark,
Martin Poxon.
72 Sam Torrance, Jodie Mudd, Bandar.,
Payne Stewart, Bandar., David Gilford,
Magnus Sunesson, Svíþjóð. Tim Simp-
son, Bandar., Fuzzy Zoeller, Bandar.,
Fred Couples, Bandar., Gil Morgan,
Bandar., Peter O’Malley, Ástralíu, Mark
James, Brian Marchbank, Christy 0’
Connor yngri, írlandi, Yago Beamonte,
Spáni, Jim Payne.
73 Andrew Coltart, Robin Mann, Rick Gib-
son, Canada, Brett Ogle, Ástralíu, Mark
Brooks, Bandar., Andrew Sherborne,
Steve Pate, Bandar.
74 Miguel Angel Jimenez, Spáni, Johnny
Miller, Bandar., Jimmy Heggarty, Jose
Maria Olazabal, Spáni, Jose Rivero,
Spáni, Cory Pavin, Bandar., Peter Seni-
or, Ástralíu, Philip Walton, írlandi, Pet-
er Hedblom, Svíþjóð, Roger Chapman,
John Hoskison.
75 Rolf Muntz, Hollandi, Sahdy Stephen,
Bob Tway, Bandar., David Graham,
Ástraliu, Larry Mize, Bandar., Gary
Player, S-Afríku, Tony Charnley, Marc
Farry, Frakklandi, Lucien Tinkler, Ástr-
alíu.
76 David Frost, S-Afríku, Rocco Mediate,
Bandar., Mark McNulty, Zimbabwe,
Jonathan Wilshire.
77 Jose Maria Canizares, Spáni, Phil Mic-
kelson, Bandar., Nolan Henke, Bandar.,
Patrick Hall, John Hawksworth, Magn-
us Persson, Svíþjóð.
78 Magnus Persson, Sviþjóð, Peter Smith,
Mikael Högberg, Svíþjóð, Simon Townend.
79 Sandy Lyle, Darren Clarke, Ireland,
Stephen McAIlister, Fredrik Lindgren,
Svíþjóð.
80 Raymond Floyd, Bandar.
ÍÞRÓmR
FOLK
■ FRANSKA stórliðið Marseille
bauð Liverpool fjórar milljónir
punda í enska landsliðsmanninn
John Barnes í gær. Enska félagið
neitaði tilboðinu, en
FráBob reiknað er með að
Hennessy annað komi í dag —
íEnglandi e;nnj miHjón punda
hærra.
■ MARSEILLE bauð fyrst enska
landsliðsmannnn sem hluta af
kaupverðinu, en Graeme Souness,
stjóri Liverpool, hafði ekki áhuga
á því.
■ TEDDY Sheringham, marka-
hæsti leikmaðurinn í ensku knatt-
spyrnunni sl. vetur, var í gær seld-
ur frá Millwall til Nottingham
Forest fyrir tvær milljónir punda.
Hann er 25 ára gerði alls 38 mörk
fyrir Millwall á síðasta tímabili.
■ ARTUR Jorge, þjálfari franska
1. deildarljðsins París SG, lýsti því
yfir í gær að hann hefði mikinn
Barnes Lineker
áhuga á að kaupa enska landsliðs-
miðheijann Gary Lineker frá Tott-
enham. Félagið er tilbúið að borga
1,8 milljón punda fyrir hann, og
viðræður eru þegar hafnar.
■ TONY Cascarino, miðheiji
Aston Villa, verður að öllum líkind-
um seldur til skoska liðsins Celtic
í dag fyrir 1,2 milljónir punda.
■ LES Sealy, markvörður Man-
chester United, hefur fengið
frjálsa sölu frá félaginu og skrifaði
í gær undir tveggja ára samning
við Aston Villa. A að vera til taks
ef Nigel Spink meiðist.
■ GUS Cesar, varnar- og miðju-
maður hjá Arsenal, hefur verið
seldur til Cambridge.
toémR
FOLK
■ OPNA BRESKA meistaramót-
ið í golfi hófst á Birkdale golfvellin-
um í Bretlandi í gær. Þar munu
156 kylfingar reyna með sér næstu
daga, en þetta er eitt af stóru mót-
unum í golfi.
■ JACK Nicklaus, þrefaldur
meistari á Opna breska fékk fugl
á 13., 15. og 17. braut í gær og
dugði það honum til að leika á
höggum, en það er einmitt par vall-
arins. „Ég var að hugsa um að fara
heim og hætta við að vera með
eftir fyrri æfingahringinn. í gær lék
ég heldur betur og hætti þá við að
hætta við og í dag náði ég mér vel
á strik, betur en ég hef gert langa
lengi," sagði Nicklaus.
■ BRIAN Marchbank frá Bret-
landi fór holu í höggi í keppninni í
gær. Draumahögginu náði hann á
12. braut sem ertæplega 180 metra
löng.
■ YAGO Beamonte frá Spáni
var síðastur til að tryggja sér sæti
í keppninni. Hann hafði betur í
bráðabana við Jimmy Heggarty _
frá Irlandi. Þetta var lengsti bráða-
bani sem leikinn hefur verið um
sæti í sjálfri keppninni. Það var
ekki fyrr en á 16. holu sem úrslit
fengust, þá setti Beamonte niður
sex metra pútt og það dugði.
■ HEGGERTY tekur samt þátt í
mótinu því landi hans Ronan Raf-
ferty varð að hætta við áður en
hann fór á fyrsta teig í gær. Lækn-
ir mótsins ráðlagði honum að sleppa
því að keppa vegna krankleika í öxl.
■ RAFFERTY verður þó ekki
sektaður fyrir að hætta við því
ástæðan er tekin gi!d. Það var hins
vegar eki gert á US Open í síðasta
mánuði þegar hann hætti eftir 27
holur án skýringar. Hann fékk sekt
fyrir það og í síðustu viku var hon-.
um gert að greiða rúmlega 500.000
krónur vegna þessa.
■ LEE Trevino frá Banda-
ríkjunum virðist svo sannarlega í
góðu formi þessa dagana. Á þriðju-
daginn léku kapparnir æfmgahring
og þá gerði hann sér lítið fyrir og
fór holu í höggi á 14. braut. Síðan
fékk hann fugl á næstu og líka á
þeirri 17 og lauk síðan hringnum
með því að fá örn á síðustu hol-
unni, sem er par 4. „Ég lék eiffi
og asni þar til ég náði holu í höggi,“
sagði hann eftir æfinguna og bætti
við að völlurinn væri mjög góður.
„Ef það verður ekki mikið rok þá
vinnst mótið á 12-15 undir pari.“
■ ROLF Muntz frá Hollandi fór
einnig holu í höggi, en á 12. braut.
Hann sigraði á áhugamannamótinu
og fær þess vegna að taka þátt í
mótinu.
■ ALLIR fremstu kylfingar
heimsins er með, eða svo gott sem.
Mark McCumber gat ekki tekið
þátt vegna meiðsla. Fjórir aðrir til-
kynntu forföll. Þeir eru Ken Gre-
en, Jim Hallett, Andy Bean og
Billy Ray Brown.
■ ÞAÐ hefur verið grunnt á því
góða milli Tom Watson og Gary
Player allt frá því sá fyrmefndi
sakaði Player um að hafa rangt
við í holukeppni árið 1983. Player
var að gefa út bók sem hann nefn-
ir „Að vara bestur“ og þar neitar
hann þessum ásökunum og segir
að þessar lygar eigi eftir að fylgja
Watson alla æfi.
I GREG Norman segir völlinn
mjög góðan og með því betra sem
hann hefur séð í mörg ár. Hanc.
segir kylfínga frá Evrópu eigi
meiri möguleika á að vinna „ef það
verður jafn mikið rok og verið hef-
ur undanfarna daga“.
■ VEÐBANKAR í Bretlandi telja
Nick Faldo sigurstranglegan og
veðmálin standa 6-1. Ian Woosnam
er í öðru sæti með 8-1 og Seve
Ballesteros er í þriðja sæti rruíT
10-1. Næstir eru Olazabal, Stewart
og Langer.