Morgunblaðið - 16.04.1992, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1992
9
Oííasiu dauðann?
eftir JÓNAS GÍSLASON,
vígslubiskup.
Óttastu dauðann?
Dauðinn er höfuðóvinur lífsins
og óttinn við hann virðist eðlislægur
Við viljum helzt ekki vera minnt á hann.
Við Strikið í Kaupmannahöfn
er kirkja með litlum garði í kring,
er hafði verið áður lokaður,
en var opnaður almenningi.
í garðinum var höggmynd,
er sýndi manninn með Ijáinn
hrífa ungbarn úr faðmi móður sinnar.
Brátt hófust hávær mótmæli almennings.
Takið styttuna burt!
Hún minnir oss sífellt á dauðann!
Styttan var flutt í lokaðan garð
við aðra kirkju.
Þetta virðist táknrænt fyrir oss.
Vér forðumst að hugsa um dauðann.
Óttastu dauðann?
Þetta er eðlileg spurning á páskum.
Kristur, hinn krossfesti,
reis upp frá dauðum,
sigraði vald Satans, syndar og dauða
og býður oss hlutdeild í sigri sínum.
A krossinum gjörbreytti Guð lífi voru.
Kristur tók á sig hegningu vora
til að gefa oss réttlæti sitt.
í trúnni á hann eigum vér þegar hérájörð
hlutdeild í upprisusigri hans
og getum gengið frá dauðanum til lífsins.
Vonir lærisveinanna brustu á Golgata.
Hafði þeim skjátlazt? Var öllu lokið?
Þrjár konur héldu til grafarinnar,
ekki á fund hins upprisna,
heldur til að vitja hins látna.
Jesús hafði reynt að segja lærisveinun-
um þetta,
en þeir virðast hafa gleymt orðum hans.
Fjandmenn hans virðast einir hafa mun-
að þau.
Ótti hefur nagað hjarta þeirra.
Ef hann hefði ságt satt?
Þeir veltu stórum steini
fyiir grafarmunnann,
innsigluðu hann
og settu varðmenn við gröfma.
Efi og vantrú lærisveinanna
er mér til mikillar trúaistyrkingar.
Upprisan var verk Guðs eins.
Upprisutrúnni var þrengt upp á þá.
Konurnar sáu opna gröf,
steininum hafði verið velt frá
og engill Guðs flutti fagnaðarboðin:
Gröfin er tóm! Kristur er upprisinn!
Óttastu dauðann?
Kristur dó á krossinum til að frelsa þig
og býðurþér eilíft lífmeð sér fyrír trúna.
Vér þurfum ekki lengur að óttast dauð-
ann,
hann flytur oss aðeins heim til Guðs.
Stóra steininum
hefur verið velt frá grafarmunnanum
og gröfin er opin og tóm.
Jesús er risinn upp frá dauðum.
Frá fyrstu páskum skín páskasól Guðs
yfir gröf hvers manns,
er trúir á Jesúm Krist.
Krístur er upprisinn!
Kristur er sannaríega upprisinn!
Guð gefi oss gleðilega páskahátíð
ínafnihins krossfesta og upprisna frels-
ara,
Drottins Jesú Krísts.
Biðjum:
Algóði himneski faðir! Þökk fyrir heilaga páskahátíð. Þökk að þú reistir Jesúm
Krist upp frá dauðum oss til lífs eilífs með þér. Gef oss að gleðjast yfir upprisu-
sigri hans. Vér lofum þig og vegsömum. Gef oss gleðilega páskahátíð í Jesú nafni.
Amen.
Öllum, sem heiðruðu mig á 80 ára afmœli
mínu og minntust mín á annan hátt, sendi ég
alúðarþakkir og Guðs blessun.
Kristjana Þorsteinsdóttir,
Hrafnistu, Hafnarfirði.
SKÍDALEI6A - SKÍÐAVÖRÖVERSLIIN
OPID ALLA PÁSKANA
gegnt Umferöamiðstöðinni,
símar 19800 og 13072.
A HOTEL SOGU
Skírdagur 16. apríl
Föstudagurinn langi 17. apríl.
Grillið og Astrabar opin frá kl. 19.00
Skrúður opinn kl. 12.00- 16.00
Mímisbar lokaður.
/ Avöxtun verðbréfa l.apríl sjóða
3 mán. é mán.
Kjarabréf 7,8% 8,1%
Tekjubréf 8,1% 7,9%
Markbréf 8,7% 8,7%
Skyndibréf 6,5% 6,6%
VERÐBRÉFAMARKAÐUR FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF.
HAFNARSTRÆTI, S. (91) 28566 KRINGLUNNI, (91) 689700 - AKUREVRI.S. (96) 11100
Laugardagur 18. apríl
Páskadagur 19. apríl
Annar í páskum.
Grillið og Astrabar opin frá kl 19.00
Skrúður opinn kl. 12.00 - 23.00
Mímisbar lokaður.
- lofar góðu!
V/HAGATORG 107 REYKJAVÍK SÍMI 29900
ARGUS/SÍA