Morgunblaðið - 16.04.1992, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1992
23
ekki lúxus sem fáum útvöldum
stendur aðeins til boða og þurfum
við að þjálfa stóran hóp atvinnu-
manna í tónlist?
„Mannskepnunni er í blóð borið
að fá útrás í einhvers konar tján-
ingu. Og það er ekki síður mikil-
I vægt að mennta neytendur en
flytjendur. Markmið Tónmennta-
skólans er ekki að þjálfa atvinnu-
I menn heldur að veita börnum og
unglingum undirstöðuþekkingu í
tónlist og hljóðfæraleik. Margir
( foreldrar líta á þetta sem sjálf-
sagðan þátt menntun barna sinna.
En auðvitað er tónlistarnám for-
réttindi á íslandi meðan það er
kennt að mestu leyti í sérskólum
sem krefja nemendur um skóla-
gjöld. Það eru ekki allir sem hafa
ráð á því að senda börnin sín í
tónlistarskóla. Það er staðreynd.
Það fylgir svo í kjölfarið að því
fleiri sem njóta slíkrar undirstöðu-
kennslu, þess meiri líkur er á að
fram komi væntanlegir atvinnu-
menn í tónlist. í Tónmenntaskó-
lanum er hægt að stunda 10 ára
samfellt tónlistarnám og það er
i ekki óalgengt að nemendur fari
I héðan inn á tónlistarbraut í
Menntaskólanum við Hamrahlíð
og taki sjöunda stig t.d. við Tón-
! listarskólann í Reykjavík samhliða
stúdentsprófi. Þá er hægt að halda
j áfram og Ijúka einleikara- eða
! kennaraprófi og fara síðan erlend-
is í framhaldsnám eins og mjög
margir gera núorðið. Að því loknu
hefur tónlistarmaðurinn um eða
yfir 20 ára samfellt tónlistarnám
að baki og er enn innan við þrít-
ugt.
Þannig fáum við hámenntaða
og vel þjálfaða tónlistarmenn til
: starfa á íslandi nema þeir kjósi
| að starfa á erlendum vettvangi
sem gerst hefur í auknum mæli
undanfarin ár,“ segir Stefán.
Afmælishljómsveit og
söngleikur
Tónmenntaskólinn hyggst
halda upp á afmælisárið með veg-
; legum hætti og má þar fyrst nefna
að stofnuð hefur verið Afmælis-
hljómsveit skólans, skipuð núver-
andi og fyrrverandi kennurum og
nemendum. Stefán segir að undir-
tektir við þátttöku í Afmælis-
hljómsveitinni og tónleikum henn-
ar 25. apríl næstkomandi hafi far-
ið fram úr björtustu vonum. í
hópi hljóðfæraleikara hljómsveit-
arinnar verði allmargir þekktir
atvinnutónlistarmenn og sést best
á því hverju hlutverki Tónmennta-
skólinn (Barnamúsíkskólinn) hef-
ur gegnt í tónlistaruppeldi þjóðar-
innar undanfarna áratugi.
Efnisskrá tónleikanna er fjöl-
breytt, stór strengjasveit leikur
Adagio fyrir strengi eftir Barber
og Holberg-svítu eftir Grieg. Síð-
! an verður leikinn píanókonsert nr.
i 1 eftir Chopin með Þorsteini Gauta
Sigurðssyni sem einleikara en
hann var nemandi í Tónmennta-
skólanum. Eftir hlé mun stór blás-
arasveit leika. Stjórnendur verða
í Guðmundur Óli Gunnarsson og
Sæbjörn Jónsson. Aðgangur er
ókeypis og að sögn Stefáns öllum
heimill meðan húsrúm leyfir í
Háskólabíói.
Þá verður einnig að geta þess
að skólinn hefur pantað söngleik
sem nú fer senn að verða tilbúinn.
Efnið er úr sögu eftir Roald Dahl
sem heitir Kalli og sælgætisgerð-
in. Textann hefur Böðvar
Guðmundsson samið en tónlistin
er eftir Hjálmar H. Ragnarsson.
Þetta verður skemmtileg ópera
fyrir alla fjölskylduna að sögn
Stefáns. Söngvarar og hljóðfæra-
leikarar verða bæði börn og full-
orðnir. Ætlunin er að kynna þetta
verk í konsertformi í Borgarleik-
húsinu næsta haust á sérstakri
afmælissýningu. Síðan er áformað
að færa söngleikinn upp sem al-
vöru sviðsuppfærslu haustið 1993
að sögn Stefáns Edelstein skóla-
stjóra Tónmenntaskóla Reykjavík-
ur.
Texti: Hávar Sigurjónsson
Til sölu lúxusíbúð -
Pósthússtræti 13
4. hæð (efsta). Glæsilegar innréttingar, tvö svefn-
herbergi, stórar stofur. Svalir í suð-austur. Gesta-
asnyrting. Sér þvottaaðstaða. Sér bílastæði í
bílgeymslu. Laus strax. Skipti möguleg.
Til sýnis og sölu í dag, skírdag, frá kl. 16.00-18.00.
BRÆOURNIR
©JORMSSONHF
BOSCH
VERKSTÆÐI
Lágmúla 9 sími 3 88 20
• Vélastillingar
• Smurþjónusta
• Raíviðgerðir
• Ljósastillingar
• Díselverkstæði
B I L L A R S I N S
í EVRÓPU 1992
NYR O G GJÖRBREYTTUR
VOLKSWAGEN-40 ÁR Á ÍSLANDI
NY YFIRBYGGING
Avalar útlínur - Lægri vindstuðull
Fullkomin ryðvörn
RUMBETRI
Meira höfuðrými - Meira axlarými
meira fótarými - Betri sæti
AUKIN AKSTURSHÆFNI
Meiri sporvídd aftan og framan - Meira
hjólahaf - Meira fjöðrunarsvið - Betri hemlun
OFLUGRI HREYFLAR
Bensínhreyflar með eldsneytisinnsprautun
4ra strokka 1,4 lítra, 1,8 Íítra, 2,0 lítra
og Vó 2,8 lítra
Verð frá kr. 1.051.200
ÞRIGGJA ARA ABYRGÐ
AUKIÐ ORYGGI
MEIRI UMHVERFISVERND
Sérstyrkt yfirbygging - Aflögunarbitar fremst Þrívirkur hvarfakútur með súrefnisskynjara
á burðarvirki Endurvinnanleg plastefni samkvæmt staðal-
merkingu
m
HEKLA gæðastimpill
LAUGAVEG1174 GEGNUM ÁRIN
SIMI695500
Bíll ársins í Evrópu 1992
i