Morgunblaðið - 16.04.1992, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1992
Winnie Mand-
ela hætt trún-
aðarstörfum
WINNIE Mandela, eiginkona
Nelsons Mandela, tilkynnti í
gær að hún hefði sagt af sér
trúnaðarstörfum innan Áfríska
þjóðarráðsins (ANC). Það sagði
hún gert í þeim tilgangi að
samtökin yrðu ekki svert vegna
ásakana á hendur henni um
meinta aðiid að tveimur morð-
málum. Winnie Mandela var
talsmaður samtakanna í félags-
málum.
Chirac krefst
þjóðaratkvæðis
JACQUES Chirac, leiðtogi Lýð-
veldisfylkingarinnar (RPR),
hvatti til þess í gær að franska
þjóðin fengi að segja álit sitt á
Maastricht samkomulaginu um
efnahagslega og pólitíska
framtíð Evrópubandalagsins
(EB) í þjóðaratkvæði. Væri það
eitt af fimm skilyrðum flokks-
ins fyrir stuðningi við samkom-
ulagið á þingi. Chirac sagði
samkomulagið flókið, mikið að
vöxtum, óskýrt, tyrfið og illa
samið. Gera þyrfti verulegar
breytingar á stjórnarskránni til
þess að þingið gæti samþykkt
það. Til þess að það mætti
verða þyrfti þingið að hafa
þjóðina á bak við sig. Hart er
nú deiít í Frakklandi um Ma-
astrich-samkomulagið og
skoðanakannanir benda til þess
að það hlyti ekki meirihlutast-
uðning í þjóðaratkvæði.
Francois Mitterrand forseti er
einn af aðal höfundum sam-
komulagsins.
Hrynja niður
úr hungri
HUNDRUÐ manns déyja dag-
lega úr hungri í stríðshijáðum
héruðum í suðurhluta Súdans,
að sögn starfsmanna alþjóð-
legra hjálparstofnana. Illa eða
jafnvel ekkert hefur gengið að
koma matvælum til þeirra
svæða þar sem ástandið er
verst. Sögðu fulltrúar hjálpar-
stofnana ástandið versna méð
hveijum degi.
Þjóðarmorð
í Búrma?
KHALED prins, yfirmaður her-
afla Saudi-Arabíu, hélt því
fram í gær að þjóðarmorð ætti
sér nú stað á múslimum í
Búrma og hvatti hann til þess
að Sameinuðu þjóðirnar beittu
þunga sínum til þess að knýja
fram stefnubreytingu hjá
stjórninni i Rangoon í garð
múslima. SÞ ætti að frelsa þá
undan ánauð með sama hætti
og Kúveit var frelsað. Karem-
skæruliðar sögðu í gær að um
20.000 manna lið stjórnarhers-
ins sæti nú um búðir þeirra í
Manerplaw á landamærum
Thailands. Hefðu harðir bar-
dagar átt sér þar stað að
undanförnu.
Uppljóstranir
óhjákvæmilegar
TATJANA Samolís, talsmaður
rússnesku leyniþjónustunnar,
sem stofnuð var upp úr KGB,
öryggislögreglunni alræmdu,
staðfesti í gær að ljórir Belgíu-
menn, sem ljóstrað var upp um
í heimalandi þeirra um helgina,
hefðu í raun verið rússneskir
njósnarar. Aldrei var gengist
við uppljóstrunum af þessu tagi
í sögu Sovétríkjanna. „Njósn-
um fylgir sú áhætta að upp um
menn komist,“ sagði Samolís.
Reuter
Arafat styður Gaddafi
Yasser Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO), for-
dæmdi refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna gegn Líbýu sem komu til
framkvæmda í gær. Sagði hann aðgerðirnar til marks um dekur
Vesturlanda við ísraela og skoraði_ á Bandaríkjamenn að stuðla að
því að koma skrið á friðarviðræður ísrela og araba. Arafat bar sig vel
í samtali við bandaríska sjónvarpsstöð í gær og sagðist við hesta-
heilsu. Enn væri hann þó marinn á nokkrum stöðum eftir flugslysið
í Líbýu í síðustu viku. Var myndin tekin í Kaíró í gær en hann gekkst
þar undir læknisskoðun.
Eldgosið í Etnu á Sikiley:
Sérfræðingum tekst
að hemja hraunflóðið
Zafferana á Sikiley. Reuter.
ÍTÖLSKUM sérfræðingum tókst í gær að stöðva hraunflóð úr eldfjall-
inu Etnu sem stefndi á bæinn Zafferana. „Þetta þýðir að við höfum
unnið tima til að þróa fram lausn til lengri tíma,“ sagði Nicola Capr-
ia, ráðherra almannavarna, en það var jafnt skipulögðum sprengingum
og flatlendi að þakka að tókst að stöðva hraunflóðið. Með sprengingum
tókst að beina storknuðu hrauni út í á og flatlendið gerði það síðan
að verkum að bráðnað hraunið sem á eftir kom rakst á harðan vegg.
Enn streymir hraun úr Etnu en
megnið af því storknar mjög hratt
er það kemst í samband við kalt loft-
ið, jarðveg og kólnað hraun. Sér-
fræðingar hafa hins vegar miklar
áhyggjur af hrauni sem rennur í
gegnum neðanjarðargöng og kemst
því ekki í snertingu við andrúmsloft-
ið.
Bandarískir hermenn frá herstöð-
inni í Sigonella, skammt frá Kata-
níu, og ítalskir sérfræðingar vinna
nú að því að koma upp fimmtíu
steyptum hlerum fyrir framan það
mynni neðanjarðarganganna sem er
næst Zafferana. Upphafiega voru
hlerarnir hannaðir sem vörn gegn
hryðjuverkamönnum og áttu að
koma í veg fyrir að bifreiðar hlaðnar
sprengiefnum gætu ekið inn í her-
stöðvar líkt og gerðist í Beirút árið
1983.
Hver hleri vegur tvö tonn og eru
þeir fluttir með þyrlum síðasta spöl-
inn upp í 2.100 metra hæð. Þar er
þeim komið fyrir á sérstökum palli,
hlekkjaðir saman með keðjum. Þegar
öðrum enda pallsins er lyft eiga síð-
an hlerarnir að renna inn í mynnið
þar sem hraunstraumurinn kemur
út og loka því. Hefur verið sprengt
gat á loft gangnanna á öðrum stað
og á hraunstraumurinn að renna þar
út er mynnið stíflast. Stefnt er að
því að framkvæma þetta í dag eða
á morgun og ef aðgerðin heppnast
vel ættu að líða nokkrar vikur þar
til hraunið ógnar Zafferana að nýju.
Kim Il-sung leiðtogi Norður-Kóreu áttræður:
Segist vilja bæta samskipti
N-Kóreu og Bandaríkjanna
Pyongyang. Reuter.
MIKIL hátíðahöld voru í Norður-Kóreu í gær í tilefni af áttræðisaft
mæli Kims Ils-sungs, leiðtoga ríkisins frá stofnun þess árið 1953. í
hátíðarræðu í veislu honum til heiðurs sagði leiðtoginn að baráttan
gegn „heimsvaldasinnum" myndi halda áfram þrátt fyrir hrun Sovét-
ríkjanna. Hann sagði einnig að góðar líkur væru á því að Kóreuríkin
gætu brátt sameinast á ný eftir fimmtíu ára aðskilnað.
Þrátt fyrir að gífurlega miklu hafi
verið kostað til veislunnar, meðal
annars sýndu um hundrað þúsund
ungmenni fimleika, var lítið um hátt-
setta erlenda gesti. Meðal þeirra
helstu má nefna Yang Shangkun,
forseta Kína, Norododm Sihanouk,
leiðtoga Kambodíu, serp bjó í útlegð
í Norður-Kóreu um árabil, og litla
sendinefnd frá Japan, skipaða lágt
settum fulltrúum jafnt stjórnar sem
stjórnarandstöðu. Þá voru einnig
mættir nokkrir leiðtogar þriðja-
heimsríkja. Enginn fulltrúi frá
Suður-Kóreu var viðstaddur hátíðar-
höldin en strangt til tekið ríkir enn
stríðsástand milli Kóreuríkjanna
tveggja.
Kim Il-sung virðist hins vegar
vera mikið j' mun að bæta samskipt-
in við umheminn og þá ekki síst
Bandaríkin. í viðtali sem birtist í
dagblaðinu Washington Times í gær,
og er það fyrsta sem hann veitir
bandarísku dagblaði í mörg ár, seg-
ist hann vera reiðubúinn að grafa
stríðsöxina, Ijórum áratugum eftir
Kóreustríðið. Hann bauðst til að af-
henda Bandaríkjamönnum jarðnesk-
ar leifar þeirra bandarísku hermanna
sem féllu í stríðinu og sagðist einnig
vera reiðubúinn að leyfa eftirlits-
mönnum að rannsaka kjarnorkuverk
landsins. Bandaríkjamenn, Japanir
og Suður-Kóreumenn gruna Norður-
Kóreumenn um að vera að þróa þar
Reuter.
Kim Il-sung heilsar erlendum
gestum í áttræðisafmæli sínu.
Þótti leiðtogi Norður-Kóreu bera
aldurinn vel.
fram kjarnorkusprengju. „Það ríkir
vor í samskiptum þjóðar okkar og
Bandaríkjanna, vorið er að byija,“
sagði Kim Il-sung í viðtalinu. Hann
bætti því við að hann vildi að Banda-
ríkjamenn opnuðu sendiráð í höfuð-
borginni Pyongyang sem allra fyrst.
Kim gat þess einnig að sonur hans,
sem nú er fimmtugur, hefði að mestu
leyti tekið við stjórn landsins.
Norður-kóresk dagblöð birtu að
venju langar lofsgreinar um leiðtog-
ann og sögðu ítarlega frá öllum þeim
heillaskeytum og gjöfum sem honum
bárust erlendis frá. Sú sem líklega
hefur komið að bestum notum var
frá Kína. Kínveijar, sem eru helstu
bandamenn Norður-Kóreu, gáfu
hundruð tonna af svínakjöti, að því
er talið er til að gera Norður-Kóreu-
mönnum kleift, þrátt fyrir örbirgð
landsins, að halda leiðtoganum þá
miklu veislu sem honum bæri.
Bandaríkin:
Mesta bil milli ríkra
og fátækra í 50 ár?
Demókratar vilja jafna bilið með hátekjuskatti
^New^York. Frá Huga Ólafssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
í HÖRÐUM deilum demókrata á Bandaríkjaþingi við Bush forseta
um skattamál hefur víglínan verið dregin fyrir forsetakosningar í
haust. Með því að boða hátekjuskatt, en skattaafslátt til miðstéttar-
fólks, vonast flokkurinn til að höfða til þeirra sem telja sig hlunn-
farna við skiptingu þjóðarkökunpar. Nýjar tölur sýna að 60% hag-
vaxtar á síðasta áratug lentu í vasa ríkasta 1% þjóðarinnar og að
bilið milli ríkra og fátækra sé að líkindum meira en það hefur verið
í hálfa öld.
Frumvarpi demókrata, sem var
samþykkt í þinginu 20. marz, var
umsvifalaust hafnað af Bush, sem
beitti neitunarvaldi sínu. Hann seg-
ist vera á móti öllum skattahækk-
unum, en demókratar reyna að út-
mála hann sem vin milljónamæring-
anna, sem vilji hlífa þeim við að
borga sanngjarnan skerf í efna-
hagslægðinni eftir að hafa grætt á
tá og fíngri á 12 ára valdatíma
rebúblikana.
Það hefur lengi verið ljóst að þá
urðu hinir ríku ríkari og hinir fá-
tæku fátækari. Nýlegar niðurstöður
rannsóknarnefndar Bandaríkja-
þings staðfesta þetta. Ef þjóðinni
er skipt jafnt niður í fimm hópa
eftir efnum kemur í ljós að tekjur
ríkasta fimmtungsins jukust um
29% frá 1977 til 1989 og sá hópur
þénaði jafn mikið og hinir fjórir til
samans. Tekjur fátækasta fimmt-
ungsins minnkuðu hins vegar um
9%. Ef aðeins er litið á ríkasta
hundraðshlutann verður bilið enn
breiðara, því tekjur þess hóps
hækkuðu_ um 77% (upp í um 34
milljónir ÍSK á fjölskyldu á ári).
Ein skýringin á þessu er sú að í
forsetatíð Ronalds Reagans var
hámarkstekjuskattur lækkaður úr
90% í 31%. Á sama tíma stórhækk-
uðu laun yfirmanna fyrirtækja. Um
1975 fékk forstjóri 35-föld laun
meðalstarfsmanns, en nú er munur-
inn 120-faldur. Meintar öfgar í
þessa veru hafa sætt gagnrýni upp
á síðkastið, eins og það að forstjór-
ar bandarísku bílafyrirtækjanna fá
margföid laun á við japanska starfs-
bræður sína og að Steve Ross, for-
stjóri Time-Warner fjölmiðlarisans,
skuli hafa fengið sem svarar nærri
5 milljörðum ÍSK í árslaún á sama
tíma og fyrirtækið sagði upp starfs-
fólki í hundraðatali.
Bill Clinton, sem nú má telja
næsta víst að verði forsetáfram-
bjóðandi demókrata, hefur gert
skattaafslátt fyrir miðstéttarfólk að
einu helsta baráttumáli sínu, við
góðar undirtektir kjósenda, sem
flestir telja sig þar í hópi. Minna
fer fyrir tillögum til að bæta hag
hinna verst settu, en fátækt í