Morgunblaðið - 16.04.1992, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1992
37
Reuter
Cyrus Vance og eiginkona hans Grace við komuna til Belgrad í
gær. Með þeim eru Sathis Nambiar hershöfðingi (2. f. v.) í friðar-
gæslusveitum SÞ og Herbert Okun yfirmaður friðargæslusveitanna.
Sameinuðu þjóðirnar:
Hundrað eftirlits-
menn til Bosníu
Belgrad. Reuter.
Samningurinn um EES undirritaður í Portúgal 2. maí:
> ___________________
Viðræður Islands og EB um sjáv-
arútvegsmál hefjast eftir páska
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
FYRSTI samningafundur íslendinga með embættismönnum fram-
kvæmdastjórnar Evrópubandalagsins (EB) uin samskipti á sviði sjáv-
arútvegs verður í Brussel 27. þessa mánaðar. Þá hefur og verið
ákveðið að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) verði
undirritaður í Portúgal 2. maí.
CYRUS Vance, sérlegur sátta-
semjari Sameinuðu þjóðanna
(SÞ) í Júgóslavíu, skoraði í gær
á stríðandi fylkingar í Bosníu-
Herzegóvínu að leggja niður
vopn.
Vance heldur til Bosníu í dag og
í gær hitti hann herforingja Júgó-
slavíuhers í Belgrad. Sagði hann
að ekki stæði til að SÞ sendi friðar-
gæslusvejtir til landsins. Hins vegar
verði sendir hundrað eftirlitsmenn
SÞ til Bosníu. Segist hann hafa trú
á þeirri hugmynd Evrópubanda-
lagsins að skipta Bosníu-Herzegóv-
ínu í þijú svæði þar sem byggju
Króatar, SerBar og múslímar. Efa-
semdir eru uppi um að vopnahléð
sem nú er í gildi í Bosníu haldist.
Yfirmaður Júgóslavíuhers í Bosníu
segir að blóðug styijöld geisi víða
í landinu. Neitaði hann ásökunum
Króata og múslíma um að herinn
hefði hjálpað Serbum að sölsa und-
ir sig land. Að sögn útvarpsins í
Króatíu féllu þrír menn í átökum í
gær nærri Bosanski Brod við króat-
ísku landamærin.
Hclsinki. Reuter.
VLADÍMÍR Zhírínovskíj, for-
maður Fijálslynda demókrata-
flokksins í Rússlandi, segir í
samtali við finnskt dagblað að
nái hann kjöri til embættis for-
seta Rússlands þá muni hann
innlima Finnland.
Zhírínovskíj bauð sig fram í síð-
ustu forsetakosningum í Rússlandi
og fékk þá rúmlega sex milljónir
atkvæða og varð í þriðja sæti.
„Það verður engu blóði úthellt
þegar við tökum Finnland,“ sagði
Af hálfu íslendinga hefur verið
lögð áhersla á að hefja viðræður
um samskipti á sviði sjávarútvegs
sem fyrst og gert er ráð fyrir öðr-
um samningafundi. á íslandi
snemma í maí. Af hálfu EB eru
það fyrst'og fremst embættismenn
úr þeirri stjórnardeild fram-
kvæmdastjórnarinnar sem fer með
fiskveiðistefnu bandalagsins sem
þátt taka í samningaviðræðunum.
Fulltrúar íslendinga verða hins
vegar úr sendiráði Islands í Bruss-
el og sjávarútvegsráðuneytinu.
Þegar hafa íslendingar skipst á
bréfum við EB um þann þátt við-
ræðnanna sem fjallar um skipti á
veiðiheimildum, önnur samskipti á
sviði sjávarútvegs koma til með
að byggjast á drögum að samkom-
ulagi frá árinu 1981, sem hefur
verið endurskoðað með tilliti til
breyttrar stöðu Grænlendinga
gagnvart EB. Stefnt er að því að
tvíhliða samningur íslands og EB
um þetta efni liggi fyrir áður en
Zhírínovskíj í viðtali við dagblaðið
Iltalehti. „Finnarnir verða lamaðir
af ótta þegar við endurreisum
landamæri Rússlands." Þess má
geta að Finnland var hluti af
rússneska keisaradæminu fram til
1917.
Zhírínovskíj sagði ennfremur að
ekki væri ráðlegt fyrir Rússa að
skila Japönum Kúríl-eyjum því þá
myndu Finnar þegar krefjast þess
að fá Kiijálahérað aftur. Sovét-
menn hertóku héraðið í seinni
heimsstyijöldinni.
umræður um samninginn um Evr-
ópska efnahagssvæðið (EES) hefj-
ast á Alþingi íslendinga.
Evrópubandalagið og Fríversl-
unarbandalag Evrópu (EFTA)
náðu í gær samkomulagi um að
EES-samningurinn yrði undirrit-
aður í Óportó í Portúgal 2. maí.
Ljóst þykir að leggja verði nótt
við dag fram að þeim tíma til að
samningurinn verði tilbúinn á
móðurmáli aðildarríkja beggja
bandalaganna. Einhvetjum tækni-
legum útfærslum er ólokið en talið
er ólíklegt að þær verði til nokk-
urra vandræða. Sömuleiðis þarf
að leggja síðustu hönd á samninga
EB við Austurríki vegna umferðar
flutningabíla frá aðildarríkjum
bandalagsins um austurrísku Alp-
ana.
Samkvæmt heimildum í Brussel
lögðu Portúgalir mikla áherslu á
að undirritunin færi fram í Portú-
gal en þá er viðbúið að samingur-
inn verði kenndur við landið.
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra undirritar samning-
inn fyrir íslands hönd.
Á Hótel Holti
verður veitingasalurinn opinn
um páskana sem hér segir:
Skírdagur .............Qpið til kl. 23.30.
Föstudagurinn langi ..........LOKAÐ
Laugardagurinn 18. apríl .opið til kl. 23.30.
Páskadagur ...................LOKAÐ
Annar í páskum ........opið frá kl. 18.00.
Hótel Holt óskar viðskiptavinum
og landsmönnum öllum
gleðilegrar páskahátíðar.
»
CHATEAUX. Bergstaðastræti 37, simi 91-25700
Rússland:
Vill innlima Finnland
ERLENT
Bandaríkjunum hefur aukist mikið
síðustu 10-15 ár.
. Sá vandi hefur einkum lagst
þungt á stórborgirnar, þar sem
fjöldi heimilislausra og betlara hef-
ur margfaldast. En um leið og vand-
amál og fjárþörf borganna aukast,
hafa skatttekjur minnkað, þar sem
hinir efnameiri hafa flúið í úthverf-
in. Við þetta bætist að alríkisstjórn-
in hefur dregið verulega úr fjár-
framlögum til einstakra ríkja og
borga.
Hagfræðingurinn Robert Reich
við Harvard-háskóla er einn helsti
spámaður þeirra sem vara við vax-
andi bili á milli ríkra og fátækra.
Hann segir að hátekjufólk í úthverf-
unum, sem hann kallar „farseðla
fimmtunginn“, sé óafvitandi orðið
eins konar ríki í ríkinu, þar sem
það fjármagni eigin skóla og sjúkra-
hús, jafnvel einkalögreglu, á meðan
almenna skóla- og heilsugæslukerf-
ið drabbist niður. Hann nefnir sem
dæmi að ríkasta skólaumdæmið í
Texas eyðir tífalt meira á grunn-
skólanamenda en hið fátækasta
Bush-stjórnin er auðvitað ekki
sammála því að vandamálið sé ójöfn
tekjuskipting. Dan Quayle, varafor-
seti, sagði nýlega að vandamál New
York-borgar, sem hafa verið mjög
í sviðsljósinu, væru afleiðing af
„misheppnaðri velferðarstefnu"
demókrata, sem fara með stjórn
borgarinnar og New York-ríkis.
FALLEGUR FJÖLSKYLDUBÍLL
Fimmta kynslóðin af Civic hefur litið
dagsins ljós. Við fyrstu kynni vekja glæsi-
legar línurnar athygli, nánari kynni upplýsa
um tæknilega kosti og yfirburðahönnun.
Hönnuðir Civic hafa haft það í huga að
s bílum er fyrst og fremst ætlað að þjóna
1 fólki. Fallegt útlit, góðar innréttingar,
| þægileg sæti, stórt farangursrými, gott rými
'■f fyrir börnin, kraftmikil og sparneytin vél
eru nokkrir af kostum Civic.
Innréttingar Civic eru mun betri en
gengur og gerist í bílum í þessum
stærðarflokki. Áhersla hefur verið lögð á
þægileg sæti og gott skipulag á mælum og
stýrisbúnaði. Nútíma þægindi, afl- og
veltistýri, rafdrifnar rúður og speglar eru
staðalbúnaður í Civic.
Til sýnis núna að Vatnagörðum 24,
mánudaga til föstudaga kl. 9:00 - 18:00 og
laugardaga kl. 11:00 - 15:00.
Nánari upplýsingar í síma 68 99 00
Verð frá: 1.184.000,- stgr.
Greiðslukjör við allra hæfi.
(H)