Morgunblaðið - 12.12.1992, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 12.12.1992, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992 56 ■T'®— Selmu Júlíusdóttur svarað eftir Halldóru Baldursdóttur og Höllu Hjálmarsdóttur Einu sinni enn leyfír Selma Júl- íusdóttir sér að gera lítið úr dag- mæðrum í Morgunblaðinu 10 des. sl. þar sem hún lýsir því yfír að dagmæður kunni ekki lengur að lesa og að þær hafí ekki vitað und- ir hvað þær voru að skrifa þegar þær skrifuðu undir vantraustsyfir- lýsinguna á formanninn. Eins og við höfum alltaf sagt, þá eru dag- mæður yfirleitt mjög friðsamar konur og við erum seinreittar til reiði. En nú keyrir um þverbak. Óánægja með störf fráfarandi for- manns samtakanna hefur staðið í mörg ár, þótt hún hafí ekki komið eins berlega í ljós og nú. Nefna má, að á fundi fýrir sex árum gengu 70 konur út og sögðu sig úr samtök- unum vegna óánægju með for- manninn. í grein sem Selma Júlíusdóttir ritar í sama blað talar hún um að takmark samtakanna sé fyrst og fremst að byggja upp örugga dag- vist fyrir börn. Þessu virðist for- maðurinn hafa gleymt, þegar hún hefur ruðst inn á heimili dagmæðra og hrætt bæði dagmæður og böm í umsjá þeirra. Hún hefur þverbrot- ið friðhelgi heimilinna og farið gróf- lega út fyrir verksvið sitt. Það er alfarið Dagvistar bama að sjá um deilumál önnur en gjald- skrármál. Selma lætur ósagt í grein sinni, að hin tvítuga dagmóðir var ekki meðlimur í Samtökum dag- mæðra, þegar málið sem um ræðir kom upp. Hefði hún því átt að vísa því alfarið til Dagvistar bama, en þess í stað telur hún hina ungu dagmóður á að ganga í samtökin og afleiðingamar þekkja dagmæð- ur. Selma greinir heldur ekki frá því að foreldrar bama sem em vist- uð hjá umræddri dagmóður hafa lýst yfír ánægju sinni með vistun- ina, en henni er það vel kunnugt. Er þessi grein Selmu öll hin furðulegasta og mjög einhliða. For- „En nú keyrir um þver- bak. Óánægja með störf fráfarandi formanns samtakanna hefur stað- ið í mörg ár, þótt hún hafi ekki komið eins berlega í ljós og nú.“ maðurinn sér ekki ástæðu til að skýra frá sinni hlutdeild í málinu. Okkur fínnst það augljóst hvers- vegna. Ennfremur segir hún ekki frá því, að á fundi sem var haldinn í Laugaborg 25. nóvember sl. stóð upp dagmóðir, sem hafði lent í þess- um sömu foreldrum og Selma taiar um að hafí orðið fýrir áfalli og sagð- ist dagmóðirin efast um sannleiks- gildi frásagnar foreldranna. Okkur fínnst það sýna augljóslega hversu vanhæf Selma Júlíusdóttir er, að mál þetta skuli nú vera á síðum dagblaðanna. Ef formaðurinn hefði leyst þetta mál á grundvelli réttlæt- is og kærleika í stað hroka og ókurt- Halldóra Baldursdóttir eisi væri ekkert um að tala, þannig að klofningur innan samtakanna hlýtur að vera hennar mál. Einnig talar Selma um fund með Bergi Felixsyni og fleirum. Viljum við taka það fram að þessi fundur var Tvær frábærar bækur eftir verðlaunahöfundinn Þorgrím Þráinsson Bak við bláu augun Saga um nýnema í menntaskóla sem eru jafn ólíkir og þeir eru margir og hafa þeir mörgum hnöppum að hneppa. Hver er þessi stúlka með fal- legu bláu augun? Hver er leyndar- dómur hennar og kemst hann nokkru sinni upp? Og hvað tekur bekkjar- bróðir hennar til bragðs til að vinna hylli hennar? Góð bók frá Fróða FRÓÐI BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA Lalli ljósastaur Hvað tekur ósköp venjulegur strák- ur til bragðs þegar hann lengist allt í einu og verður eins stór og ljósa- staur? Engin föt passa á hann lengur og það eru heldur ekki til nógu stórir skör á hann. Gerist hann kannski körfuboltahetja í Bandaríkjunum eða vill hann allt til vinna að verða venjuleg- ur strákur á nýjan leik? Halla Hjálmarsdóttir setinn í Laugaborg með hlutaðeig- andi aðilum. Var fundur þessi kapít- uli útaf fyrir sig og verða honum gerð betri skil síðar. Ef Selmu Júlíusdóttur fínnst bréf það sem Halla Hjálmarsdóttir sendi dagmæðrum níð um hana verður hún að eiga það við sjálfa sig. í bréfí þessu er sagt frá samskiptum dagmóður, foreldris og formanns samtakanna sannleikanum sam- kvæmt. Grein Selmu er full af yfirlýsing- um um óheiðarleg vinnubrögð dag- mæðra og ábyrgðarleysi Ðagvistar bama. Við viljum aðeins segja: KONA, LÍTTU ÞÉR NÆR! Höfundar eru dagmseður. ♦ ♦ ♦ Hnotubrjótur- inn A. Rúbljov o g Khatsatúrjan SÍÐASTA kvikmyndasýning á þessu ári í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, verður nk. sunnudag, 13. des- ember kl. 16. Þá verða sýndar þrjár stuttar (hálftíma) myndir. 1. Heimildarmynd um armenska tónskáldið Aram Khatsjatúrían, en hann kom á vegum MÍR til íslands árið 1951 og stjómaði þá m.a. Sin- fóníuhljómsveit Íslands á tónleikum i Þjóðleikhúsinu. Skýringar með myndinni flytur Sergei Halipov á íslensku. 2. Kvikmynd um Andrei Rúbljov, hinn mikla rússneska helgimyndamálara, sem uppi var frá u.þ.b. 1370-1430. Skýringar á ensku. 3. Hnotubijóturínn, teikni- mynd, þar sem flutt er balletsvíta Tsjaíkovskís. Aðgangur að kvik- mjmdasýningunni er að venju ókeypis og öllum heimill. Fyrsta kvikmyndasýningin í bíó- salnum Vatnsstíg 10 eftir áramótin verður 17. janúar og hefst J>á Tsjekhov-vika í húsakynnum MIR, þar sem sýndar verða nokkrar kvik- myndir byggðar á verkum skáldsins og um ævistarf hans. Þá kemur rússneskur gestur f heimsókn og spjallar um Tsjekhov og rússneskt leikhús og sett verður upp sýning á Ijósmyndum og teikningum um skáldið. (FréttatUkynning)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.