Morgunblaðið - 26.09.1993, Síða 11
MORGUNBLAÐfÐ SUfýNJJDAGUK 26. SEPTJ5MBEB ’L993
sótti ég af kappi allan þann tíma
sem ég var úti og kynntist lauslega
ýmsu tónlistarfólki. Frægasta
píanóleikara sem ég hef haft kynni
af, Murray Pereahia, kynntist ég
þó ekki í Ameríku heldur í Master
Class í Vermont á Englandi, þar
sem ég var á sumarnámskeiði áður
en ég fór til New York.
í New York er mikið lagt upp
úr hraða og skýrleika í píanóleik,
sumum hefur þótt þeirra skóli full
ópersónulegur. Þar viðgekkst á
mínum námsárum talsverð „undra-
barnadýrkun", rétt eins og í tón-
listarháskólanum í Moskvu, það
var sem sagt ákveðin íþrótta-
mennska í gangi. Þannig er það
raunar víðar í heiminum. Framþró-
un í píanóleik hefur verið mikil og
margir eru mjög góðir. í banda-
rískum tónlistarskólum er mikið
af evrópskum kennurum, margir
þeirra eru rússneskir. Kennarinn
minn var t.d. rússneskur, Rögn-
valdur Siguijónsson lærði hjá hon-
um líka. Hann kom frá Kiev og
var af þessum virtuosa rússneska
skóla sem t.d. Scrabin og Rac-
hmaninof komu beint úr. Eg teng-
ist því með óbeinum hætti rússn-
eska skólanum. Ég held því að
allt tal um amerískan skóla í píanó-
leik sé byggt á ákveðnum misskiln-
ingi af því að megnið af frægustu
kennurunum voru frá Evrópu, m.a.
Rússlandi, hvernig sem það er í
dag.
Kröfumar í Julliard vom miklar,
ekki mátti t.d. slá feilnótu, ef mér
varð eitthvað slíkt á mundi ég það
í margar vikur. Ég hugsa ekki
þannig núna. Ég tek undir með
Askenasy, hann sagði: „Við gemm
allir mistök, kúnstin er að fela
þau.“ Á tónleikum er alltaf háska-
ástand í gangi, að halda konsert
er eins og að fara í rússíbana, þú
stekkur upp í og reynir svo að
gera eins og þú getur. Það er mik-
ið uppnám að halda tónleika.
Frægir píanóleikarar eru gjarnan
með sömu efnisskrána, við endur-
tekningu slípast hún og þeim fer
að smám saman að líða betur,
þeir þekkja efnið svo vel. Hér er
aftur á móti annað upp á teningn-
um. Verk em æfð í kannski hálft
ár, síðan fá menn eitt tækifæri.
Þetta er slæmt og veldur því að
menn ná oft ekki að sýna sitt
besta.“
Hljóðfærið lagði af stað
„Hljóðfærin eru þýðingarmikill
þáttur í frammistöðu manna. Það
er mjög misjafnt að spila á píanó
og flygla, ekki aðeins eru tegund-
irnar misjafnar heldur er bókstaf-
lega ekkert hljóðfæri eins. Stein-
way-píanó, þýsk og amerísk, eru
þó yfírleitt góð svo og Busendorf.
Ég reyni yfírleitt að prófa þau
hljóðfæri sem ég á að spila á en
stundum er það ekki hægt. Einu
sinni lenti ég í því á tónleikum úti
á landi að hljóðfærið lagði af stað
frá mér svo ég varð nánast að elta
það. Það gleymdist að setja brems-
una á. Það er gert ráð fyrir að
stilla píanó tvisvar á ári, en stund-
um em menn blankir og draga það.
Það er mikilvægt fyrir píanóleik-
ara að vera vel á sig kominn líkam-
lega. Ég hef hlaupið og verið í tím-
um í badminton með félögum mín-
um. Sundið hef ég notað mikið til
þess að liðka axlirnar og til þess
að slaka á. Maður hugsar skýrara
og verður ánægðari með lífið ef
manni tekst að gera það sem mað-
ur ætiar sér í þessum efnum. Það
þjálfar sjálfsagann. Það er stund-
um erfitt að fara í hlaupaskóna."
Engin lyf
„Það þarf mikla orku til þess
að standa sig vel á tónleikum. Ég
hef fyrir sið að borða súkkulaðirús-
ínur áður en ég kem fram, þær
gefa mikla orku, þetta er nánast
orðinn siður hjá mér, endar
kannski sem hjátrú. Ég nota aldrei
áfengi, kaffí eða nein lyf fyrir tón-
leika. Til eru svokallaðaðir betab-
lokkerar, það eru hjartalyf sem á
engan hátt geta orðið ávanabind-
andi. Mér skilst að margir erlendis
noti þau gegn taugaóstyrk, þau
minnka t.d. skjálfta. Ég prófaði
einu sinni hálfa töflu, mig minnir
að ég hafí spilað mjög rétt en það
var ekki mikil stemmning á þeim
tónleikum. Ég hef ekki notað þetta
aftur. Ég vil heldur sitja uppi með
streituna, sem oft er þó óþægileg.
Áfengi gerir frammistöðuna fljótt
slaka og kaffí er mjög slæmt, ég
sleppi því orðið svona tveimur dög-
um fyrir tónleika og fínn mikinn
mun. Álagið er nógu mikið við að
koma fram. Uppáhaldsföt á ég
engin — nema þá nýja smokinginn
minn. Mér fínnst mikilvægt að föt
þrengi ekki að mér. Ég fer gjarnan
í þau föt sem ég ætla að spila í
svona tveimur tímum fyrir tón-
leika, til þess að leyfa þeim að
hitna og laga sig að líkamanum.
Það er jafnan umhugsunarefni
að setja saman efnisskrá fyrir tón-
leika. Það þarf m.a. að gæta þess
að tónleikarnir verði ekki eins og
flugeldasýning, ekki sé hrúgað
saman svo erfiðum verkum að
áheyrandanum þyki nóg um. Það
má heldur ekki setja saman eintóm
létt verk. Meira að segja tóntegund
verkanna skiptir máli þegar valið
er saman. Ég legg mig fram um
það, einkum í seinni tíð, að reyna
að láta fólki a.m.k. ekki leiðast á
tónleikum. Það er mikilvægt að vel
takist til, við erum öll að reyna
að selja okkur einhvem veginn."
Meiri tækni, meira frelsi
„Ég vinn verk mín þannig að
ég reyni að fá mínar eigin hug-
myndir. Maður verður að gæta sína
að apa ekki eftir öðrum, heldur
fara eftir rödd í eigin btjósti. Ég
hlusta þó auðvitað á aðra. Gjaman
á marga leika sama verk til að
bera saman hvemig þeir fara að.
Mér fínnst ég eiga meira sameigin-
legt með sumum píanóleikurum en
öðram. Horowitz hefur sérstöðu,
ég var ekki hrifinn af honum þeg-
ar ég var yngri, fannst hann vera
með of mikil læti og barbarisma,
spilaði of margar feilnótur fyrir
minn smekk. Nú er álit mitt ann-
að, mér finnst hann ná mestu út
úr hljóðfærinu, hann er litameist-
arinn í píanóleik. Menn göptu þeg-
ar þeir heyrðu hann spila, hann
var tæknilegt viðundur á sínum
tíma. Því meiri tækni sem menn
Meðan ég var á við-
kvæmum aldri sakn-
aði ég þess stundum
að hafa ekki nema
stopult samband við
föður minn. Ég var
lyklabarn, fékk að
valsa mikið einn um
og hef verið talsvert
sjálf ráður f rá því ég
man eftir mér.
„Það þarf mikla orku
til þess að standa
sig vel á tónleikum.
Ég hef fyrir sið að
borða súkkulaðirús-
ínur áður en ég kem
fram, þær gefa mikla
orku, þetta er nán-
ast orðinn siður hjá
mér, endar kannski
sem hjátrú. Ég nota
aldrei áfengi, kaffi
eða nein lyf fyrirtón-
leika.
hafa því meira frelsi hafa þeir til
að túlka. Tækni í píanóleik er í
mínum augum að geta gert ná-
kvæmlega það sem maður vill og
á þann hátt sem maður vill, eftir
þessu eru allir að sækjast sem eru
hljóðfæraleikarar. Maður hefur
listræna ímynd, því skírari sem hún
er því betra. Hér heima á íslandi
er einhver gamaldags hugsana-
háttur hvað þetta snertir. Menn
segja: Hann er ekkert nema tækn-
in — eins og það sé eitthvað slæmt.
Mér finnst fólk rugla um of saman
færni og tækni. Sumir píanóleikar-
ar, t.d. margir þeir rússnesku, þeir
geta gert verk sín eins og á að
gera; þeir fá ekki „blackout“ á
konsert eða gleyma og þurfa að
byija aftur. Þetta er sá „standard"
sem þessir hljóðfæraleikarar eru
aldir upp við. Það era margir slík-
ir til bæði í Rússlandi og í Banda-
ríkjunum. Þar er talið frumskilyrði
að menn geti gert það sem þeir
eru að reyna að gera. Þetta hljóm-
ar kannski hörkulega en þetta er
nauðsynlegt. Ég held að allt tækni-
legt starf í hljóðfæraleik þurfi að
koma frá músíkinni, annars er það
gagnslaust. Ég geri ekki tækniæf-
ingar í dag, ég fæ þær út úr verk-
unum sem ég er að æfa. Mér hef-
ur tekist að ná góðum tökum á
ýmsum erfiðum verkum með þess-
ari aðferð, jafnvel verkum sem
ekki hafa verið spiluð af íslenskum
hljóðfæraleikara fyrr.“
Þorsteinn Gauti gifti sig í sum-
ar, kona hans er Jóhanna Vigdís
Amarsdóttir. „Konan mín er mjög
skilningsrík við mig hvað snertir
píanóleikinn. Sjálf hefur hún burt-
fararpróf í píanóleík og er að læra
söng. Hún veit því um hvað þetta
snýst og tekur ekki nærri sér þótt
ég eyði miklum tíma í æfíngar.
Ég reyni þó að æfa mig ek-ki á
kvöldin nema að brýna nauðsyn
beri til. Oft er þetta óreglulegt líf
þegar koma álagstímar. Það er að
sumu leyti heppilegt fyrir tvo lista-
menn að búa saman en að öðra
leyti ekki. Þeir þurfa að varast að
„valta“ ekki hvor yfir annan. Við
eram svo lánsöm að hafa ekki lent
í slíku, miklu fremur höfum við
hvatt hvort annað til dáða. Enn
sem komið er eigum við engin
börn. Ég hef stundum velt því fyr-
ir mér hvort slíkt hafi áhrif á
HB -11
frammistöðu listamanna en ég hef
ekki getað komið auga á neitt sam-
hengi í því sambandi. Mér sýnist
að fólk með „fullt hús af börnum“
standi sig eins vel og hinir, stund-
um betur, kannski agar það fólk
að annast börn.
Núna legg ég áherslu á að spila .
sem mest. Mig langar að taka
mikið upp í vetur, ýmis píanóverk.
Hvað atvinnuástand snertir þá er
oft sagt að á erfiðum tímum komi
fólk jafnvel fremur í leikhús og á
tónleika. Kannski þarf fólk meiri
tilbreytingu en ella. Atvinna er þó
oftast ótrygg hjá tónlistarmönnum
sem ekki era fastráðnir. Aðalatrið-
ið fyrir einleikara er að vinna í
þessum stóru keppnum, en þar eru
margir um hituna. Ég held að það
sé ýkt hvað margir lifa á píanótón-
leikjahaldi, fáir komast í slíka að-
stöðu. Aðrir eru með ýmislegt ann-
að með, spila t.d. kammermúsik,
dinnermúsik o.s. frv., eins og ég
hef gert. Síðan ég kom úr námi
hef ég komið víða við í tónlistinni,
oft hefur mikið verið að gera en
svo koma eyður sem ég nota þá
til að æfa mig. Annars fínnst mér
stundum að hér á íslandi fari tími
tónlistarmanna í allt annað en að
æfa sig, maður er úti um allan bæ
að útrétta, láta gera við bílinn,
bjarga víxli o.s.frv: Þetta var öðra-
vísi meðan ég bjó úti, þar þekkti
maður líka færri og var ekki í
svona miklu veraldarstússi. Stund-
um hringir síminn heima hjá mér
tíu sinnum meðan ég er að reyna
að æfa mig.
Mér var fremur vel tekið í ís-
lenskum tónlistarheimi þegar ég
kom heim frá námi og er ánægður
með það. Á íslandi er merkilega
mikið um að vera í öllum greinum
tónlistar. Við eigum mjög marga
frambærilega tónlistarmenn sem
búa hér heima. Það halda allir hér
að ekkert sé varið í fólk nema að
það hafí „meikað það“ út í hinum
stóra heimi, það er rangt og það
er slæmt að vanmeta fólk. Konan
mín lýkur væntanlega burtfarar-
prófi í söng á næsta ári og þá ligg-
ur leið okkar kannski til útlanda.
En við ætlum að koma aftur. Mín-
ar væntingar i lífinu eru að geta
lifað af píanóleik, en mig langar
ekki að búa í útlöndum til lang-
frarna."
Brottfarir á fimmtu- og föstudögum.
Heimflug á sunnu- og mánudögum.
frá niiðjiun <ieptenwer
» , t
t ' *- .1
Tilboð fyrir hópa:
2.000 kr. afsláttur
avianmm
ítmbýli
í2natmog
3 dagaá
á mann ef í hópnum
London býöur allt sem hugurinn gimist.
Heimskunnar verslunargötur og hagstæð innkaup.
Aragrúi veitingastaða, pöbbar, skemmtistaðir, bestu fieiri. 40.000 kr.
eru 15 manns eða
Veittur er 5% staðgneiðsluafcláttur*
MoimtRoyal.** leikhús álfunnar, heimsfrægir söngleikir,
næturklúbbar, óperur, tónleikar, fótbolti, víðkunn
söfn um allt milli himins og jarðar.
í London bjóðum við gistingu á eftirtöldum
gæöahótelum: St. Giles, Mount Royal,
Clifton Ford, Rathbone og Regent Park Marriott.
*M.v að greitt sé með minnst 14 daga íyrirvata. Innifalið er flug, gisting, morgunverður og
flugvallarskattar. Böm, 2ja - 11 ára, fí 12.000 kr. í afslátt. Böm að 2ja ára aldri greiða 3.000 kr.
Enginn bókunarfyrirvari.
Forfallagjald, 1.200 kr., er ekki innifalið í verði. Forfallagjald er valfrjálst en Flugleiðir
hvetja farþega til að greiða það til að firra sig óþarfa áhættu.
**Veið miðast við gengi 6. ágúst 1993.
sparnaður fyrir
20 manna hóp.
QATLAS-*
Hafðu samt?and við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn
um allt land, ferðaskrifstofumar eða í síma 690300
(svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8 -18.)
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi