Morgunblaðið - 26.09.1993, Síða 21
MÓK(;tvKKlJ\b!D VELVAKANDI • V: ; OR M. SKÍ’l'tMBKH ’ 1993
' B
Kýrhalavísindi á Skjaldfönn
Frá Baldri Hermannssyni:
Síðastliðinn fimmtudag birtist
lesendabréf eftir bónda nokkurn við
ísafjarðardjúp, Indriða Aðalsteins-
son á Skjaldfönn, og er þetta bréf
merkilegt fyrir þær sakir, að þar
er að finna einstæða, dýrafræðilega
greiningu á málefnum Ríkisút-
varpsins.
Sýnir bóndi þessi fram á að Hrafn
Gunnlaugsson sé ýmist fugl eða
minkur, Baldur Hermannsson er
minkur en hefur ekki gripsvit,
starfsmenn ríkissjónvarpsins eru
hænsni, Heimir Steinsson er hvort
tveggja hænsnabóndi og fól, en
orðið fól mun dregið úr ensku,
„fool“, og þýðir fífl eða fauti.
Nú minnist ég þess að hafa lesið
í bernsku sögur af dýrum sem höfðu
vit fyrir mönnum, forystukindur
rötuðu langar leiðir í hríðarbyljum,
hundar björguðu fólki úr bráðum
háska, hross báru húsbændur sína
dauðadrukkna, kýr mæltu spaklega
á nýársnóttu og kettir skildu
mannamál.
Því er óvíst hvort efni sé til að
reiðast orðum bónda, en snoturlega
þykir mér bónda þessum mælast,
hann styður erindi sitt ferskeytlum
að fornum sið, en af því marka ég
að hann muni sjálfur gæddur góðu
gripsviti, líklega tveggja kúa viti.
Frá Ástu Baldvinsdóttur:
Ég fínn mig til knúna að skrifa
og þakka fyrir frábæra viku sem ég
átti með eldri borgurum úr Hafnar-
fírði á Hótel. Eddu að Húnavöllum
vikuna 21.-28. ágúst síðastliðinn.
Þegar við komum norður stóð Þór
hótelstjóri á tröppunum og heilsaði
hveijum einasta manni með fallegu
brosi og handabandi og bauð hvem
og einn velkominn. Þetta var byijun-
in á frábærri viku og einstakri þjón-
ustu. Það var sama við hvem maður
talaði, allt var gert fýrir mann með
brosi og hlýju viðmóti. Ég var fyrst
til að panta af öllum og þegar við
komum norður í þessu yndislega
veðri, varð ég hundfúl af því að ég
var sett upp á loft, eins fótalaus og
vitlaus eins og ég er nú. Nema hvað,
ég kem mér upp á loft eftir að hafa
rifist við formanninn okkar og
skammað hana og tek upp úr töskun-
um og hengi kjólana mína inn í skáp,
en þegar það var búið, ákvað ég að
gera gott úr öllu, þó mér þætti hálf
skítt að vera þama uppi, af því að
ég hafði pantað fyrst. Én viti menn.
Klukkan níu um kvöldið er bankað
og hann Þór hótelstjóri maðurinn
hennar Siggu, sem er líka með hótel-
ið, hann bankar hjá mér og segir
fyrirgefðu Ásta mín, þetta er allt
mér að kenna að þú skulir vera uppi
á lofti. Ég er búinn að fá mann til
Þó skjöplast honum í fáeinum
atriðum. Skýrsla Ríkisendurskoð-
unar sannar, og tekur reyndar sér-
staklega fram, að Hrafn Gunn-
laugsson sé ekki „sjóðasukkari“,
eins og bóndinn heldur. Það vill svo
vel til að ég hef þessa skýrslu und-
ir höndum og þar stendur skýrum
stöfum, orðrétt á blaðsíðu 25:
„... verður ekki með réttu sagt
þegar á heildina er litið að Hrafn
skeri sig sérstaklega frá öðrum
styrkþegum hvað fjárhæð styrkja
varðar."
Á sömu síðu: „Þó sýnist mega
staðhæfa að umfang styrkveitinga
til Hrafns er ekki óeðlilegt í ljósi
þess fjölda mynda sem hann hefur
gert og þess hve lengi henn hefur
starfað að kvikmyndagerð.“
Þetta var um Kvikmyndasjóð.
Um Norræna kvikmynda- og sjón-
varpssjóðinn segir á bls. 37: „Fyrir-
tæki Hrafns, FILM hf., hefur feng-
ið áttunda hæsta styrkinn, sem
sjóðurinn hefur veitt íslenskum að-
ila.“ Hrafn fékk aðeins um 9 millj-
ónir króna, aðrir fengu mun hærri
fjárhæðir, allt að 30 milljónum.
Evrópski kvikmyndasjóðurinn
hefur veitt fimm styrki til íslands,
sá hæsti er um 19 milljónir, en
Hrafn hefur ekki fengið krónu úr
honum.
að skipta við þig. Nema hvað ég
segi að ég sé búin að koma mér fyr-
ir. Hann Þór sagði að það væri nú
ekkert mál og nær í nokkra stráka
og saman taka þeir alla kjólana mína
á herðatijánum og allt draslið mitt
úr herberginu og flytja mig niður.
Veðrið var dásamlegt allan tímann
og maturinn, ég hef aldrei smakkað
annað eins. Ég byijaði á sundinu á
morgnana, svo var morgunkaffíð og
heit nýbökuð brauð með og eins var
alltaf nýbakað með kaffinu. Svo fór-
um við í ferð að Hólum í Hjaltadal
og haldið þið ekki að þau Þór og
Sigga sagði að við skyldum bara
borða úti og svo drifu þau Þór borð
út og allir átu og voru glaðir og svo
voru þau með svarta ruslapoka með
og tóku til eftir okkur. Svona var
öll vikan og ég verð að segja að
ekki hef ég kynnst betra og yndis-
legra fólki en þeim Þór og Siggu á
Hótel Eddu að Húnavöllum. Þegar
við fórum, kom allt starfsfólkið, tók
í hendina á okkur og kyssti okkur á
kinnina. Þvílíkt fólk. Mér fínnst að
maður megi til að þakka fyrir svona
dásamlega viku og fyrir að hafa
kynnst svona yndislegu fólki, enda
vorum við öll í sjöunda himni þegar
við fórum.
ÁSTA BALDVINSDÓTTIR,
Lækjargötu 34d,
Hafnarfirði.
Nokkrir íslendingar hafa fengið
styrk úr Norræna sjónvarpssjóðn-
um, Hrafn Gunnlaugsson ekkert.
Þegar þessar ísköldu staðreyndir
eru skoðaðar af mönnum með
naumt gripsvit og þaðan af meira
blasir við að Hrafn Gunnlaugsson
hefur eiginlega staðið sig hálf slæ-
lega í íjárheimtunni og hefði átt
að bera miklu meira úr býtum, jafn
ötull maður, en líklega er hann of
hæverskur til að troða sér fram og
heimta peninga úr sjóðum.
En nú spyr ég Indriða bónda.
Hvaðan hefurðu þá firru að Hrafn
Gunnlaugsson sé sjóðasukkari?
Ætli þú hafir ekki lesið það í Tíman-
um, en hann er víst talinn heilög
ritning þarna vestur á Skjaldfönn
og varla dvínar hið barnslega trún-
aðartraustið þegar Tíminn er búinn
að bjóða inn á gafl til sín útigangs-
lýðnum af Þjóðviljanum sáluga,
þeim sem ekki fengu vistarráðningu
hjá Heimi hænsnabónda.
Indriði getur þess að meirihluti
þjóðarinnar hafi lýst yfir stuðningi
við hænsnabóndann, þá er hann
stuggaði við minknum, „ólmri
fólsku þrunginn", en Indriði ætti
að vita það, þótt hann sé ekki prest-
lærður frekar en ég, að lýðurinn
valdi Barrabas, og kannski er dálít-
ið til í því sem Ibsen mælti, að
meirihlutinn hafi alltaf rangt fyrir
sér, ekki síst þegar voldugar frétta-
stofur hafa lagst á eitt að hafa fólk
að fíflum vikum saman.
En til þess að Indriði bóndi geti
notað dimmar vetumætur á Skjald-
fönn til þess að grufla ótrauður í
kýrhalavísindunum og haldið áfram
að komast að merkum niðurstöðum
hef ég sent honum í pósti ljósrit
af umræddum blaðsíðum úr skýrslu
Ríkisendurskoðunar. Ef honum
þykir vond sú lesning og á annan
veg en frá er sagt í Tímanum, þá
getur hann að minnsta kosti notað
hana í staðinn fyrir töðuvisk, þá
er hann gengur næst í flór sinn.
BALDUR HERMANNSSON,
Krummahólum 8, Reykjavík.
Pennavinir
Sonnleitenstrasse 1 ‘A,
8170 Bad Tölz,
Germany.
Frá Guyana í Suður-Ameríku
skrifar 21 árs stúlka með áhuga á
tónlist, dansi, ferðalögum, frímerlq-
um o.fl.:
Michelle Noord,
21 North Street,
Lacytown,
Georgetown,
Guyana.
South-America.
Frá Ghana skrifar 25 ára kona
með áhuga á tónlist, bókalestri og
íþróttum:
Esther Ruth Simpson,
P.O. Box 1135,
Cape Coast,
Ghana.
Grískur 27 ára karlmaður með
áhuga á ferðalögum, safnar póst-
kortum og frímerkjum, vill skrifast
á við konur:
LEIÐRÉTTING
Villur
í myndatexta
Villur voru i myndatexta með frétt
um nýstofnuð Samtök iðnaðarins í
gær. Það er Öm Kærnested sem
undirritar skjalið en ekki Vilmundur
Jósefsson. Þá er rétt röð manna í
aftari röð þessi: Ágúst Einarsson,
Friðrik Andrésson, Vilmundur Jó-
sefsson, Örn Kærnested og Skúli
Jónsson. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Lagarás - ekki
Tangarás
Heimilisfang bréfritara til blaðs-
ins sl. þriðjudag, Helga Hallgríms-
sonar, misritaðist. Heimilisfangið
er Lagarás 2, Egilsstöðum — ekki
Tangarás 2. Þetta leiðréttist hér
með.
VELVAKANDI
SKATTPINING
SKULDLAUSRA
í ÞESSU þjóðfélagi er alltaf
verið að taka á málum hinna
skuldugu. Aldrei heyrist orð um
skattpíningu hinna skuldlausu,
hvað varðar álagningu eignar-
skatts.
Eignarskattur er skattur af
eign sem viðkomandi aðili er
oftast búinn að eyða ævinni í
að eignast skuldlausa eða hefur
kannski verið svo óheppinn að
‘fá fasteign í arf. Oftast er það
fólk sem komið er yfir miðjan
aldur og farið að minnka við
sig vinnu, eða jafnvel hætt að
vinna, er verður fyrir gjörningi
þessum.
Hvaða tilgangi þjónar það
að neyða fólk til að selja íbúðir
sínar, eins og margir hafa þurft
að gera, til að losna undan
þessari ósanngjömu eignar-
skattsálagningu? Vilja stjórn-
völd fá fleiri þurfalinga á jöt-
una? Látið þið okkur í friði með
okkar skuldlausu íbúðir. Búið
er að marggreiða skatt af því
fé er lagt hefur verið í viðkom-
andi eign. Þarna er um hreina
eignaupptöku að ræða. Einu
sinni var til fólk í þessu landi
er lagði metnað sinn í að skulda
engum neitt.
Alþingismenn og konur, tak-
ið núgildandi eignarskattslög
til gagngerðrar endurskoðunar
og lagfæringar. Málið er brýnt.
Nafnnr. 7598-8109.
Þór og Sigga -
dásamlegt fólk
ii
f BÍÓBORGINNI
Sjá nánar auglýst á bls. 17B
.....................................
Sala aðgangskorta hefst á mánudaginn!
Aðgangskort LA tryggir þér sæti með verulegum afslætti á
eftirtaldar sýningar:
Afturgöngur eftir Henrik ibsen, Ekkert sem heitir
— átakasaga eftir „Heiðursfélaga“, Bar-par eftir Jim
Cartwright og Óperudraugurinn eftir Ken Hill.
Verð kr. 5.500,- pr. sæti
Elli- og örorkulífeyrisþegar kr. 4.500,- pr. sæti
Frumsýningarkort kr. 10.500,- pr. sæti
Miðasalan opin alla virka daga kl. 14-18 meðan á kortasölu stend-
ur. Auk þess er tekið á móti pöntunum virka daga í síma 96-24073.
Greiðslukortaþjónusta.
• Frjálsi leikhópurinn
Tjarnarbíoi, Tjarnargötu 12, sími 610280.
„Staudandi pína"
(Stand-up tragedy) eftir Bill Caiix.
Sýn. miðv. 29. sept. kl. 20.00, uppselt, fimmtud 30. sept.
kl. 20.00, öfrá sæti laus, laugard. 2. okt. kl. 15.00 og
20.00, örfá sæti laus, sunnud. 3. okt. kl. 15.00 og 20.00,
örfá sæti laus. Miðasala frá kl. 17-19.
Héðinshúsinu, Seljavegi 2
AUGNABLIK
JÚLÍA OG MÁNAFÓLKIÐ
nýtt íslenskt barna- og fjölsky Iduleikrit.
Sunnud. 26. sept. kl. 14, mánud. 27. sept kl. 13.30, fáein
sæti laus,þriðjud. 28. sept kl. 10, uppselt, laugard. 2.
okt. kl. 11, örfá sæti laus, sunnud. 3. okt. kl. 14.
Miðaverð 700 krónur. Systkini greiða eitt gjald.
Upplýsingar og miðapantanir í síma Augnabliks 21163 og
miðasölu Frú Emilíu 12233. Miðasalan er opin frá kl. 17.00-
19.00 alla virka daga og klukkustund fyrir sýningu.
EÐAL-KAPP er unnin úr vönduðu gæðaefni með
hátt einangrunargildi. Efnið er þykkt og létt með
tvíhliða flosáferð. Það er laust við skrjáf og hnökrar
ekki. EÐAL-KAPP heldur líkamshitanum vel inni og
er því kjörin bæði sem innri- og ytriflík.
Sölustaðir: 66°N verslunin og Útilíf.
ÚTILÍFw
GLÆSIBÆ • SÍMI 812922
si
POLARTEC FLEECE
..SVO MJUKI, HLYTT
OG ÞÆGILEGT!