Morgunblaðið - 11.11.1993, Síða 56
HEWLETT
PACKARD
---------UMBOÐIÐ
HPÁ ÍSLANDI H F
Höfðabakka 9, Reykjavík, sími (91)671000
Frá muguleika til veruleika
MOIÍGUNBLAÐID, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Verður Sambandið tek-
jð til gjaldþrotaskipta?
LÍKUR eru taldar á því að stjóm Sambands íslenskra samvinnu-
félaga, sem kemiu* saman til fundar í dag, taki þá ákvörðun
að óska eftir því að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins eru þær líkur taldar
meiri, en líkur þess að óskað verði eftir að reyna að ná nauða-
samningum við lánardrottna.
Dragnótabáturínn Auðbjörg SH frá Ólafsvík
Fékk 36 tonn af
þorski yfír dagirni
Ólafsvik.
DRAGNÓTABÁTURINN Auðbjörg SH fékk 36 tonn af vænum
þorski út af Hellissandi í gær. Meðalþyngd fisksins var um 12
kíló og fer hann allur í vinnslu hjá Enni hf., eiganda bátsins.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fimm á sjúkrahús
FIMM voru fluttir á sjúkrahús eftir harðan árekstur á gatna-
mótum Glerárgötu og Grænugötu í gær.
Fimm á spítala eft-
ir harðan árekstur
Flugumferð
tvöfaldast
ÓVENJULEGA mikil flugumferð
J*hefur verið um íslenska flug-
stjórnarsvæðið á síðustu dögum.
Hafa upp undir 200 flugvélar
komið inn á svæðið á leið sinni
yfir hafið til Kanada og Banda-
rikjanna síðustu tvo daga, sem er
tvöfalt meira en veryulegt er.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust í flugstjómarmiðstöðinni á
Reylqavíkurflugvelli er ástæðan
óhagstæðir háloftavindar fyrir sunn-
an landið sem hafa valdið því að flug-
umferð færist norðar. Er búist við
að þetta muni standa yfír út vikuna.
Suðvestan stormur gerði skip-
verjum erfitt fyrir en þrátt fyrir
slæmt veður fékkst 10 tonna kast
í einu halinu, en alls voru tekin 5
köst í þessum róðri.
Fimm menn í áhöfn
í suðvestan áttinni vill fiskurinn
safnast saman á sandbreiðunum
og auðveldar það dragnótabátun-
um veiðarnar enda hafa fiskveið-
amar jafnan gengið best í þessari
vindátt.
Afli annarra dragnótabáta sem
róa héðan var á bilinu 800 kíló til
7 tonn.
Skipstjóri á Auðbjörgu er hinn
kunni aflamaður Óttar Guðlaugs-
son og em 5 menn í áhöfn bátsins.
— Alfons
Sigurður Markússon, stjórnarfor-
maður Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að þegar stjórn-
arfundi lyki í dag, lægi ákvörðun
fyrir um það hvaða leið skuli farin.
Sigurður benti á, að það sem Sam-
bandið skuldaði í árslok 1992 hafí
verið um 3,3% skuldanna eins og
þær vom í árslok 1989, eða um 436
milljónir króna í stað 12,8 milljarða
króna í árslok 1989.
„Ég held ég verði að segja að
gjaldþrot eru alltaf dapurleg enda-
lok, eiginlega hver sem undanfarinn
er. Auðvitað er slíkt mjög dapur-
legt, en menn mega ekki gleyma því
að við höfum barist hérna eins og
ljón, við að borga niður skuldir okk-
ar. Það hefur ekki átt sér stað ann-
að eins skuldauppgjör í íslandssög-
unni hjá einu fyrirtæki frá upphafi,
að ég held, og hér hjá okkur,“ sagði
Sigurður.
Sigurður sagði að ekki hefði verið
hægt að sjá fyrir, hvers konar áföll
myndu ríða yfir Sambandið á þessu
ári, og vísaði til Miklagarðs, en þó
sérstaklega til íslensks skinnaiðnaðar.
Sigurður var spurður hvort Sam-
bandið hefði ekki lélega stöðu til
þess að leita eftir nauðasamningum
við lánardrottna sína: „Nauðasamn-
ingar eða ekki nauðasamningar. Er
staða eða ekki staða, það leiðir bara
af málinu sjálfu, að það hlýtur alltaf
að vera spurning um það, hvort og
hversu vel slíkt kynni að takast. Ég
get eiginlega ekki svarað því frekar
fyrr en á morgun," sagði Sigurður
Markússon.
Sjá viðtal við Sigurð: „Gjald-
þrot ávallt dapurleg endalok"
bls. 18.
FIMM manns voru fluttir á
Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri eftir harðan árekst-
ur á gatnamótum Glerárgötu
og Grænugötu um miðjan
daginn í gær.
Tilkynnt var um umferðar-
slysið til lögreglu laust fyrir kl.
16 í gærdag, tveir fólksbílar
höfðu skollið harkalega saman
á gatnamótunum, öðrum bílnum
var ekið norður Glerárgötu, en
hinum austur úr Grænugötu.
Ökumenn beggja bílanna voru
fluttir á sjúkrahús og þrír far-
þegar úr öðrum bílnum.
Bíllinn sem kom norður Gler-
árgötuna skall líka á ljósastaur
sem varð að fjarlægja eftir
höggið. Báðir bílarnir voru fjar-
lægðir af slysstað með kranabíl.
Að sögn Gunnars Randvers-
sonar varðstjóra lögreglunnar á
Akureyri var ekki vitað ná-
kvæmlega um meiðsl fólksins.
Sólóplata Bjarkar Guðmundsdóttur
Forseti ASI um endurgreiðslur virðisaukaskatts af físki
Óbreytt skipulag
sanmingsforsenda
Vinnuveitendasambandið telur að hætta eigi niðurgreiðslum
FORYSTUMENN VSÍ og ASÍ eru ósammála um hvort fella beri niður
endurgreiðslur á fiski sem seldur er til neyslu innanlands um áramót
þegar matvörur fara í lægra þrep í virðisaukaskatti. Hannes G. Sig-
urðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri VSÍ, segir fráleitt og engin rök
fyrir að halda niðurgreiðslum á fiski áfram umfram aðrar vörur eft-
ir lækkun virðisaukaskattsins um áramótin. Benedikt Davíðsson, for-
seti ASÍ, segir hins vegar að út frá því hafi verið gengið í verðlagsfor-
sendum við gerð kjarasamninga í vor að þessar niðurgreiðslur á fiski
yrðu óbreyttar og ef stjórnvöld felli þær niður sé það sjálfstæð ákvörð-
un um skattlagningu og yrði þá litið á hana sem hefndaraðgerð af
hálfu stjórnvalda.
Seld ein-
töknær
milljón
SELD eintök af sólóplötu
Bjarkar Guðmundsdóttur
Debut nálgast milljón, en
Sykurmolarnir voru fyrst-
ir íslenskra hljómsveita til
þess að selja plötu I rúm-
lega milljón eintökum.
Þessa dagana er Björk á
tónleikaferð sem hófst í
Bandaríkjunum síðastliðið
þriðjudagskvöld.
Fyrstu tónleikar Bjarkar voru
haldnir í Webster Hall í New
York. Hún heldur einnig eina
tónleika í Toronto í Kanada og
lýkur Bandaríkjaferðinni í Los
Angeles 19. nóvember næst-
komandi. Þvínæst heldur hún til
Evrópu og verða tónleikar í
Berlín 24. nóvember. Alls verða
tónleikar í níu borgum í Evrópu
og á Norðurlöndunum, þeir síð-
ustu í Ósló 10. desember.
400 þúsund í Bandaríkjunum
Að sögn umboðsmanns Bjark-
« ar hér á Islandi hefurDebut selst
í 400.000 eintökum í Bandaríkj-
THE FAC*
Á forsíðu
BJÖRK Guðmundsdóttir er
forsíðuefni blaða og tímarita
víða erlendis.
unum, 250-300.000 eintökum í
Evrópu, 170.000 eintökum í
Bretlandi og 20-30.000 eintök-
um í Japan. Á íslandi hefur plat-
an selst í um 6.000 eintökum.
Þriðja smáskífa Bjarkar er einn-
ig væntanleg og á henni verða
tvö ný lög auk lagsins Big Time
Sensuality af Debut. Síðan er
ætlunin að gefa Debut út aftur
í Bretlandi og mun hún þá inni-
halda nýtt lag Bjarkar, Play
Dead, sem samið var fyrir kvik-
myndina The Young Amerícans.
Loks er fyrirhugað að gefa plöt-
una Gling gló, sem Björk gerði
með tríói Guðmundar Ingólfs-
sonar, út í Japan og jafnvel víð-
ar, en hún er eina íslenska jazz-
platan sem náð hefur gullsölu.
Nær helm-
ings verð-
muimr á bjór
BJÓR í hálfslítra krúsum á krám
og veitingahúsum kostar frá 340
krónum upp í 600 krónur á þeim
stöðum sem voru í úrtaki Daglegs
lífs í vikunni. Á einum stað var verð
á V2 lítra bjórkrús lækkað um 200
krónur í miðri viku.
Sjá nánar „Nær helmings verð-
munur ...“ bls. 24.
Hannes sagði að við gerð samn-
inganna hafi samningsaðilar ekki
haft vitneskju um hversu miklar
þessar endurgreiðslur væru og því
gengið út frá að þær yrðu óbreytt-
ar. Nú liggi hins vegar upplýsingarn-
ar fyrir og því telji hann mjög óeðli-
legt að taka eina tegund matvæla
út úr og niðurgreiða hana sérstak-
lega eftir að matvæli færu í lægra
skattþrep. Sagði hann að þetta væri
skýr afstaða VSÍ.
„Úr þvi sem komið er, er fráleitt
að taka fískinn út úr og niðurgreiða
hann sérstaklega umfram aðrar vör-
ur. Það var gengið út frá því að
allar niðurgreiðslur af kjötvörum
féllu niður um áramót og þær myndu
bera 14% virðisaukaskatt og maður
sér ekki rökin fyrir því að fiskurinn
fái einhveija aðra meðhöndlun en
aðrar svokallaðar brýnustu lífsnauð-
synjar," sagði Hannes.
„Hefndaraðgerð“
Benedikt Davíðsson sagði að nið-
urgreiðslur á fiski hefðu verið
ákveðnar fyrir mörgum árum 0g ef
stjórnvöld tækju ákvörðun um að
hætta þeim væri það sjálfstæð skatt-
lagning. „Ætli menn myndu ekki
líta á það sem einhverskonar
hefndaraðgerð af hálfu stjórnvalda,"
sagði hann.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
vildi ekki tjá sig um málið í gær
fyrr en hann hefði kynnt sér það
betur en hann var þá nýkominn til
landsins af þingi Norðurlandaráðs.
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra sagði á flokksstjórnar-
fundi Alþýðuflokksins um seinustu
helgi að lækkun virðisaukaskatts á
matvælum hefði í för með sér að
verð á fiski út úr búð myndi hækka
um 8% um áramótin.