Morgunblaðið - 05.05.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.05.1994, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Árni Mathiesen um Ríkisútvarpið Brýntað gerð verði úttekt á fjárhag og rekstri ÁRNI M. Mathiesen alþingis- maður hefur lagt til við Sig- björn Gunnarsson, formann fjárlaganefndar, að nefndin fari þess á leit við Ríkisendur- skoðun að hún framkvæmi stjórnsýsluskoðun hjá Ríkisút- varpinu. Skrifar fjárlaganefnd í bréfí sem Ámi ritaði Sig- bimi um málið er vitnað til laga um Ríkisendurskoðun nr. 12/1987. í 9. grein þeirra sé fjallað um að stofnunin geti framkvæmt stjórnsýsluendur- skoðun hjá ríkisfyrirtækjum og í 11. grein segi að fjárlaga- nefnd geti haft fmmkvæði að athugun skv. 9. grein laganna. Með vísan til þessa leggur Árni til að fjárlaganefnd fari fram á það við Ríkisendur- skoðun að hún framkvæmi stjórnsýsluendurskoðun hjá Ríkisútvarpinu líkt og gert var árið 1988. Nefnd um nýja löggjöf í bréfínu segir að á undan- förnum mánuðum hafí málefni Ríkisútvarpsins verið til um- fjöllunar á opinberam vett- vangi. Þá hafí verið starfandi nefnd á vegum menntamála- ráðherra til að semja nýja lög- gjöf um stofnunina og hafi hún lokið störfum. „Umræðan og störf nefndarinnar hafa ekki nema að mjög takmörk- uðu leyti fjallað um fjárhag og rekstur Ríkisútvarpsins. Af þeim sökum tel ég brýnt að gerð verði sérstök úttekt á stjómskipulagi, rekstri og fjárhag Ríkisútvarpsins," seg- ir ennfremur í bréfínu. Verkefni næsta leikárs í Borgarleikhúsinu ákveðin að mestu Fyrsta leikrit Ólafs Jóhanns í athugun LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR hef- ur ákveðið að mestu verkefnaval sitt á næsta leikári, en að sögn Sigurðar Hróarssonar leikhús- stjóra, verða ekki færri en sjö verk tekin til sýningar, þar af þrjú á litla sviði Borgarleikhússins. Meðal þeirra leikverka sem eru í athugun hjá leikhúsinu, án þess að ákvörðun liggi fyrir, er fyrsta leikrit Ólafs Jóhanns Ólafssonar, rithöfundar og framkvæmdastjóra hjá Sony. Verk- ið hefur einnig verið lagt fyrir Þjóð- leikhúsið til umsagnar. í athugun er hvort heppilegra sé að færa það upp í sjónvarpi en í leikhúsi, og jafnvel óvíst að leikhúsuppfærsla verði fyrir valinu. Að sögn Sigurðar era æfíngar þegar hafnar á tveimur verkum fyrir næsta leikár. Annað þeirra er Leynimelur 13, hálfrar aldar gamall gamanleikur eftir Þrídrang, en bakvið það dulnefni stóðu Har- aldur Á. Sigurðsson, Emil Thorodd- sen og Indriði Waage. Frágengið sé einnig, að áramótasýning leik- hússins verði söngleikurinn Kaba- rett, í leikstjórn Guðjóns Pedersen. I áþekkri sviðsmynd Fyrsta verk leikársins á litla sviðinu er Galdra-Loftur eftir Jó- hann Siguijónsson, en í kjölfar þess verða sýnd nýtt íslenskt barnaleikrit og fyrsta leikverk Þórs Tulinius, leikara og leikstjóra. Sig- urður segir að af rekstrarlegum ástæðum verði verkin þijú á litla sviðinu sýnd í sambærilegri leik- mynd eftir sama hönnuð. Einnig hafí verið athugað, að setja upp Gullna hliðið eftir Davíð Stefáns- son, en 30 ár eru liðin frá andláti skáldsins á þessu ári og 100 ár frá fæðingu hans á næsta leikári. Jákvæð viðbrögð Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins fjallar verk Ólafs Jóhanns Ólafssonar um fjóra aldurhnigna einstaklinga og er hugleitt að skipa það þjóðkunnum leikurum, sem hafa fyllt sjötugt. „Hugmyndin er nokkurra ára gömul en það var síðan seinasta haust sem við nafn- arnir ræddum hana alvarlega," segir Ólafur Ragnarsson útgef- andi. Ákvað Ólafur Jóhann að vinna úr hugmyndinni og koma henni í leikritsform áður en hann sneri sér að nýrri skáldsögu, sem er í bígerð. „Hann hefur unnið verkið með öðru í vetur, og meðan handritið var á vinnslustigi, send- um við sameiginlegum kunningja okkar í leikhúsheiminum það til umsagnar. Hann lagði það fyrir ráðamenn í öðra leikhúsinu til skoð- unar, án þess að upplýsa um höf- undinn. Viðbrögðin voru sérstak- lega jákvæð og í kjölfarið lagði Ólafur Jóhann lokahönd á verkið. Þeirri vinnu lauk fyrir um viku og þá gátum við sýnt ieikhúsunum það í endanlegri mynd til að leita frek- ari viðbragða án þess að víst sé að leikhúsleiðin verði fyrir valinu,“ segir Ólafur. Morgunblaðið/RAX Aflakló í Hafnarfirði HAFNARFJÖRÐUR hefur verið mikill útgerðarstaður lengur en elstu menn muna og ekki er ósennilegft að forfeður þessa sjómanns sem ljósmyndari Morgunblaðsins fangaði á mynd við lönd- un, hafi einnig stundað sjóinn og fært þjóðarbúinu tekjur og landsmönnum ferskan fisk í soðið. Smárahvammsland Hluti lóðar- innar aug- lýstur til umsóknar BÆJARYFIRVÖLD í Kópavogi hafa auglýst lausa til umsóknar hluta af fyrram lóð Hagkaups, IKEA og Byko í Smárahvamms- landi. Lóðin er á mótum Smára- hvamms og Fífuhvamms. Að sögn Gunnars Birgissonar forseta bæjar- stjórnar er gert ráð fyrir að þar rísi verslunarkjarni, heilsugæslu- stöð, bensínstöð og skyndibitastað- ur. Gert er ráð fyrir að framkvæmd- ir við heilsugæslustöðina hefjist á þessu ári og að hún verði tekin í notkun á næsta ári. Gunnar segir, að lóðirnar sem auglýstar hafí verið taki yfír um fjórðung þess lands sem fyrirtækin þijú keyptu. „Það hafa margir sýnt þessu áhuga,“ sagði Gunnar. „En lóðirnar verða ekki seldur heldur verður þeiin úthlutað á venjulegan hátt til byggingamanna." Þá er verið að vinna deiliskipulag að þeim hluta landsins sem eftir er og verða þær lóðir auglýstar bráðlega. Framkvæmdastj óri Sambands veitinga- o g gistihúsa vegna bjórverðs Krár hérlendis reknar eins og skemmtístaðir SAMKEPPNISSTOFNUN gerði nýlega könnun á bjórverði á veitingahús- um þar sem fram kemur að bjórverð hefur lækkað að meðaltali um 1%. Á sama tíma hefur bjór farið lækkandi hjá ÁTVR og tii dæmis hefur Beck’s bjór lækkað um 5% á skömmum tíma. Segir Ema Hauksdóttir framkvæmdastjóri Sambands veitinga og gistihúsa ekki rétt að einblína á bjórverð á krám, til dæmis hafí bjórverð lækkað á mörgum matsölustöð- um. Auk þess séu margar krár reknar eins og skemmtistaðir hérlendis og borgi því gjöld til ríkisins í samræmis við það. Verð á Löwenbráu og Budweiser 1989-94 Verð á kippu af Löwenbráu dósa- bjór hefur samkvæmt verðskrá frá ATVR hækkað um 120 krónur frá árinu 1989 og kippa af Budweiser hefur hækkað um 180 krónur á sama tíma. Ef upphaflegt verð er framreiknað tii dagsins í dag kemur hins vegar í ljós að Löwenbráu hef- ur lækkað um 118 krónur og Bud- weiser um 48. Erna segir að krárnar bjóði upp á ýmiss konar dagskrá líkt og tíðk- ist á skemmtistöðum án þess að krefjast aðgangseyris. Þess vegna þurfí að borga fyrir lifandi tóniist og skemmtikrafta með áfengisverð- inu. Einnig kosti meira að hafa opið til þijú um heigar. „Til þess að geta haft opið svo lengi þárf staður að hafa framlengingarleyfi sem kostar 300.000 ef það er keypt til 4 ára. Það er keypt aukalega ofan á veitingaleyfi, sem kostar 50.000 til eins árs ef verið er að byija rekstur. Vínveitingaleyfið kostar 100.000 ef það er veitt til 2-4 ára. Síðan þarf að borga eftir- litsgjöld, sem fer eftir leyfílegum gestafjölda, líklega 5-6 milljónir á ári sem skipt er niður á staði eftir stærð og borga STEF-gjöld,“ segir Erna. Biðraðlr við krár Hún segir ennfremur að þróunin sýnist frekar vera í þá átt að bjór- inn sé að lækka á matsölustöðum. „Maður er farinn að sjá bjórglas kosta allt niður í 250 krónur á ódýr- ustu veitingastöðunum," segir Erna sem bætir við að ekki sé skrýtið að bjórverð lækki ekki þegar fólk bíði fyrir utan í langri röð eftir því að komast inn og drekka á þessu verði. „Auðvitað höfum við öll áhyggjur af því hvað áfengi er dýrt, það.er ólíðandi að almenningur og veitingamenn, sem kaupa áfengið á sama verði, skuli þurfa að borga svo hátt verð. Áfengi kostar til dæmis helmingi minna hjá sænsku einkasölunni," segir hún loks. Hverf'amiðstöð Gert er ráð fyrir að þarna verði fyrst 9g fremst hverfamiðstöð, matvöraverslun, afgreiðsla pósts og síma, banki, ÁTVR og heilsugæslu- stöð fyrir íbúanna. „Heilsugæslu- stöðin ýtti við okkur með kaup á lóðinni, þar sem samningar við rík- ið um byggingu hennar eru langt á veg kornnir," sagði Gunnar. „Um er að ræða nýja heilsugæslustöð fyrir Kóavog en eins og stendur er ein heilsugæslustöð fyrir 17.500 manns í- miðbæ Kópavogs, sem gengur ekki lengur." íbúar í nýju hverfunum í Kópa- vogsdal vestan Reykjanesbrautar verða um 3.500 til 4.000. Þá hefur verið úthlutað í Fífuhvammi lóðum fyrir um 1.000 manna byggð en þar mun verða byggð fyrir 5.000 til 6.000 manns í framtíðinni. Fyrst og fremst IKEA Gunnar segir að samið hafi verið um að Kópavogsbær keypti lóðina eftir að augljóst hafí verið að ekki kæmi til framkvæmda á næstunni. Meiningin hafí verið fyrst og fremst að byggja yfir IKEA og ætlunin hafí verið að ráðast í þá framkvæmd fljótlega eftir að lóðin var seld árið 1990. „En framkvæmdir hófust aldrei og síðar sneru þeir sér að Miklagarði,“ sagði Gunnar. „Þeir hafa ekki talið grundvöll fyrir versl- unaraðstöðu í Kópavogi en við urð- um að fá þjónustu fyrir hverfið þannig að það varð að samkomu- lagi að við keyptum landið til baka.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.