Morgunblaðið - 05.05.1994, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 05.05.1994, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens ''HOWEVERJHE ÖIG PROBLEM 15 an overtornep Rie AT THE CÖRNER OF THIRP ANP MI55I0N " Stóra vandamálið er samt sem áður þungavinnu- Nei, stóra vandamálið er, að ég vél á hvolfi á horninu á Miklubraut og Lönguhlíð. hef ekkert lært fyrir morgundag- ínn... — BREF TEL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími691100 • Símbréf 691329 D hefir dugað Frá Árna Helgasyni: Þegar ég ungur maður fór að velta fyrir mér, hvernig ég gæti varið lífi mínu á einhvem hátt þjóðfélagi mínu til gagns, var um ýmsar leið- ir að ræða. Þá var hátt veifað sam- vinnuhreyfingunni og kaupfé- lögunum, sem áttu að gera lífið allt að því að paradís, og þá var það jafnaðarstefnan sem átti að gæta þess að enginn gæti eignast meira en aðrir o.s.frv. Svo komu kommúnistarnir útblásnir af allri dýrðinni í Rússlandi, þar væri allt að því himnaríki á jörðu og sérstak- lega var þar framarlega minn ágæti skólastjóri og frændi sem aldrei átti nógu kröftug orð til að lýsa dýrðinni og framtíðinni ef sú stefna fengi byr. Eftir góða umhugsun og athug- un, fannst mér sjálfstæðisstefnan og íhaldsstefnan myndi duga landi mínu best til heilla og því varð val- ið auðvelt, og það val hefir aldrei beðið skipbrot eða orðið sér til minnkunar, því þegar ég sé nú að hinar leiðirnar hafa beðið skipbrot og eru í upplausn. Og þeim sem þar villtust inn hefði verið nær að fara sér hægara. Auðvitað hefir í mínum flokki oltið á ýmsu eins og gengur, en það er varla teljandi á við ósköpin hinum megin. Það hefir líka verið rætt nokkuð um bókstaf- ina sem listarnir hafa valið sér og merkingu þeirra og hafa þeir einnig haft sína merkingu í mínum huga. A hefir oftast nær verið aðgerðalít- ið, en afraksturinn hafa þeir ætíð verið til með að hirða, B hefir verið í basli og bágindum, og jafnvel blað- ið þeirra ekki tilkomumikið í dag, G fínnst mér hafa verið gagnslaust og stundum eins og glópur í skýjum uppi og oft meira en það. Og svo er það bíllinn minn. Ef ég set gírinn á R, kemst ég ekkert nema aftur á bak og er það tákn- rænt fyrir samsuðuna í Reykjavík nú, sem á þann eina tilgang að setja fótinn fyrir allar framfarimar í Reykjavík. En svo ef ég færi drif- skaftið yfir á D, þá er allt áfram og enginn vandi að aka til framtíð- arinnar og gera landið okkar að enn dásamlegra landi. Og mun það ekki sannast eins og áður að það er D sem á eftir að duga best landi okk- ar og þjóð, þegar til framtíðarinnar er horft? Og eitt er víst að þar bein- ist dugnaður til dáða. Spurning dagsins: Er ekki R-listinn Ruglaður í Ríminu? ÁRNI HELGASON, Stykkishólmi. Jöfnun atkvæða fækkun þingmanna Frá Viktori B. Kjartanssyni: JÖFNUN atkvæðavægis er eitt af mikilvægum stefnumálum núver- andi ríkisstjórnar. Þetta markmið lætur lítið yfir sér en er í raun grundvallarmál í lýðræðisskipulagi: að allir geti haft jöfn áhrif á lands- stjómina. Þrátt fyrir breytinguna á kosningalöggjöfínni fýrir nokkmm ámm er munurinn á vægi atkvæða einstakra kördæma ennþá vemleg- ur. Þannig eru þrefalt fleiri kjósend- ur að baki hverjum þingmanni á Reykjanesi en á Vestfjörðum og um tvöfalt fleiri kjósendur em að baki þingmanni á Vestfjörðum en á Norð- urlandi eystra. Hlutverk þingmanna Samkvæmt stjómskipun landsins fara þingmenn með löggjafarvald, þ.e. vald til að setja þjóðinni almenn f lagafyrirmæli. Þingmönnum er ætl- að að breyta í samræmi við eigin sannfæringu og eiga þeir að líta á sig sem fulltrúa allrar þjóðarinnar fremur en sem fulltrúa sérstakra hagsmunahópa eða landssvæða. Eftir því sem misvægi atkvæða eykst verða kjósendur í ákveðnum kjördæmum „verðmætari" en aðrir og því hættara við að ákveðnir þing- menn gerist fremur talsmenn sér- sjónarmiða en almennra. Alþjóðlegar kröfur Bæði í Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna og Mannrétt- indasáttmála Evrópu koma þær skoðanir skýrt fram að kosninga- réttur þcgnanna skuli vera jafn. Þetta hafa flestar lýðræðisþjóðir viðurkennt í verki og sumar hafa jafnvel ákvæði þess efnis í stjórnar- skrám sínum. Hæstiréttur Banda- ríkjanna kvað upp dóm fyrir um aldarþriðjungi þar sem sagði að misvægi atkvæða eftir búsetu fengi ekki staðist, þar sem þingmenn væru fulltrúar fólks en ekki fer- metra. Leiðir til úrbóta Ýmsar leiðir eru til úrbóta en aðalatriðið er að ná markmiðinu um jöfnun atkvæðisréttar. Nefna má leiðir eins og að þingmönnum verði fækkað um 1-2 í hveiju kjördæmi utan Reykjavíkur og Reykjaness eða að ákveðið verði að einn þingmaður sé fyrir ákveðinn kjósendahóp, t.d. fýrir 5.000 kjósendur. Seinni leiðina mætti útfæra bæði í einmennings- kjördæmum eða kjördæmum með fleiri þingmönnum eða blanda því saman. Nauðsynlegt er einnig að þingmönnum verði fækkað og þann- ig sparað í yfírbyggingu hins opin- bera. íslendingar hafa mun fleiri þingmenn en t.d. Lúxemborg hvort sem miðað er við mannfjölda eða þjóðarframleiðslu. Gæði þingstarfa fara hins vegar ekki eftir fjölda þingmanna. Breyting nú eða á næstu öld Leiðrétting á misvægi atkvæða verður ekki gerð nema með stjórn- arskrárbreytingu en slíkt krefst samþykkis tveggja þinga með kosn- ingum á milli. Þannig verður Al- þingi að afgreiða slíkar tillögur á næsta þingi ef beita á nýjum reglum á þessari öld (væntanlega í þing- kosningum 1999). Því verður mál- efnaleg og markviss umræða um þetta máléfni að hefjast sem fyrst, þannig að kostirnir liggi á borðinu og þingmenn geti afgreitt máiið næsta haust. VIKTOR B. KJARTANSSON, tölvunarfræðingur og varaþing- maður Sjálfstæðisflokksins í Reýkjaneskjördæmi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.