Morgunblaðið - 05.05.1994, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.05.1994, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Marmaraverk eftir Sól- veigu Baldursdóttur Listaverk unniní marmara SÓLVEIG Baldursdóttir mynd- listarmaður opnar í dag sýn- ingu á verkum sínum í Bruss- els Art Gallery, Langehaagstr. 4 í Brussel og stendur sýningin til 6. júní. Verkin eru eingöngu unnin í marmara. Fyrirhuguð er önnur sýning á verkum Sólveigar á Ítalíu í júní og verður hún haldin í Forte dei Marmi í nágrenni Carrara. Sólveig Baldursdóttir nam við Handíða- og myndlistar- skólann hér heima og við Lista- akademíuna í Óðinsvéum í Dan- mörku. Hún hefur dvalist fjög- ur undanfarin ár á Ítalíu. Sýn- ingin í Brussel er fyrsta einka- sýning hennar. Vorsýning Myndlista- og hand- íðaskólans VORSÝNING útskriftamema Myndlista- og handíðaskóla ís- lands verður opnuð laugardag- inn 7. maí kl. 14. Að þessu sinni útskrifast 47 nemendur frá skól- anum, 31 nemandi úr skorum myndlistardeildar og 16 nem- endur úr skorum listiðna- og hönnunardeildar. Á vorsýning- unni eru sýnd lokaverkefni nem- endanna. Sýningin verður haldin í Lista- háskólahúsinu í Laugamesi og stendur frá laugardeginum 7. maí til sunnudagsins 15. maí og er opin frá kl. 14-19 alla dagana. Opnunardapnn,' 7. maí kl. 14.15, mun hljóðgjömingur verða framinn utanhúss við Listaháskólahúsið. Leikinn verð- ur flautukonsert á bifreiðar. Aðrir gjömingar verða væntan- lega framdir á sýningunni. Auðvelt að mála SÝNING á verkum eftir Hall- grím Helgason myndlistar- mann stendur nú yfir í Galerie Alain Gutharc (47 rue de Lappe) í París. Sýningunni lýk- ur 11. júní nk. Listamaðurinn hefur af þessu tilefni gefið út yfirlýsingu þar sem hann leggur áherslu á vanda þess að viðurkenna hversu auðvelt sé að mála. Hann líkir því að setja máln- ingu á striga við að smyija brauð eða bera krem í andlitið: „Eina sem þú þarft að muna er að vera ekki of örlátur á smjörið og kremið." Á mörkum framúrstefnu MYNDLIST Nýlistasafniö Ráðhildur Ingadóttír - Eygló Harðardóttir - Opið alla daga 14-18, 30. aprfl til 15. maí. Að- gangur ókeypis. ■ í neðri sölum Nýlistasafnsins sýnir Ráðhildur Ingadóttir ný verk eftir sig, en hún hefur tekið sér- stöku ástfóstri við þennan stað og hefur haldið allar stærri sýningar sínar í húsakynnunum. Er líkast sem allstór hópur af yngri kynslóð telji að aðrir staðir henti honum ekki og að þetta sé þeirra sérstaka athvarf, en það er mikill miskiln- ingur og öllum er hollt að sjá verk sín sem víðast og við ólíkar aðstæð- ur. Þannig verður t.d. alls ekki séð, að hin stærri verk á jarðhæð og í þró eigi sérstakt erindi þangað, því þau njóta sín vægast sagt ekki vegna mikillar speglunar. Hin sér- stöku kringlóttu form inn í mynd- unum hverfa þannig alveg, en við sértækari birtu ættu þau einmitt að birtast og ef ekki strax þá smám saman. Kannski stafar það í og með af of miklum háglans á myndunum eða að femisinn sé ein- faldlega of nýr. Þó mætti frekar draga þá ályktun, að hér sé um ranga áferð að ræða og vísa má til þess að ameríski málarinn Ad Reinhardt notaði mjög matta og jafna áferð í sínar dökku myndir, en fomiin skiluðu sér smám sam- an. Myndir hans eru mjög skemmtilegar í viðkynningu og málaðar af afburða þekkingu á miðlinum. Ráðhildur málar einnig vel og vandvirknin virðist henni eðlislæg, en það er einfaldlega ekki nóg í þessu tilfelli. Allt annar handleggur eru myndirnar frammi, en form þeirra eru hrein og klár og speglunin engin. Þó saknar maður einhvern veginn meiri átaka í þeim og út- koman verður full skreytikennd. Hringirnir á veggjunum eru engin nýstárleg viðbót að mínu mati og áhersluþunginn fer fyrir ofan garð og neðan, þannig að útkoman verð- ur líkust skringilegri uppákomu, sem er undirstrikuð með dóti á gólfí. Kannski á það að minna á hvunndaginn mitt í fagurfræðinni, en virkar þó frekar sem línudans milli ólíkra viðhorfa í listinni t.d. „peinture pure“ og „moyens pauvr- es“. Að öllu samanlögðu finnufy maður lítinn samhljóm í þessum leik, en hins vegar ríka þörf lista- mannsins fyrir að vera framúr- stefnulegur og ögrandi. Að þjóna lögmálum framúr- stefnu og ögrunar virðast einmitt vera meginásarnir í myndlist Ey- glóar Harðardóttur, sem sýnir á palli og í svonefndum SÚM-sal. Eitt verka Ráðhildar Ingadóttur. gjornmgum glóar, svo Verk Eyglóar Harðardóttur. Held ég að þetta sé fyrsta einka- sýning hennar, en hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum og vakti framlag hennar á sýningu í Hafnarborg á sl. hausti athygli margra. Eygló er nefnilega ótvírætt gædd sköpunargleði og væri kannski réttara að orða það „of- hlaðin sköpunargleði“ því ákafínn leiðir hana oftar en ekki út í marg- víslegar ógöngur, sem hún eins og kemst ekki úr, en gerir sitt besta til að krafsa sig frá. Á palli hefur Eygló komið fyrir röð sannverðugra litljósmynda af augnasvip kvenna er hafa nýlokið við að fæða. Þær eru vel útfærð- ar, en ef ekki kæmu til miðarifr- ildi undir myndunum þar sem einn bókstafur fylgir hverri mynd og saman mynda setninguna „Þær hafa rétt fætt“, þá væri erfítt að spá í þær. Augnasvipirnir afhjúpa margvísleg geðbriði og gætu allt eins framkallast við aðrar aðstæð- ur. Bréfsnifsin gera heildarsvipinn eitthvað svo fátækan og snautleg- an og eiga ekki við jafn mikilfeng- lega athöfn, en gæti vísað til ýmis- legs á heimspekilegum grundvelli. Og það virðist dijúg heimspeki í myndrænum Ey- jafnvel mikil, að hún ruglar skoðandann svo að hann er sem staddur í völ- undarhúsi fár- ánleikans og veit hverki hvort hann sé að koma eða fara. Þannig mun mörgum innan- bijósts á efstu hæðinni, þ.e. SÚM- , salnum, en þar ægir öllu saman. Gerandinn nefnir þetta kortlagninu fullkomn- unarinnar, en þetta virkar frekar sem kortlagning fáránleikans, en kannski er fullkomleikann einmitt að fínna í fáránleikanum. Alla vega lít ég vísindalega nákvæmni öðrum augum en það sem við blas- ir í þessari margræðu innsetningu, sem er eins og ferð án fyrirheits eða rökræða sem hefur lent í hvirfli. Kannski er grind raunveru- leikans samsett af hverfulum ein- ingum fáránleikans og rökræn kortlagning tilverunnar einungis möguleg með tilviljunarkenndum meðölum, þar sem eins og glittir í vitræn hugsanatengsl. En hvað um það er við hæfí að ljúka þessari rýni með tilvitnun í listakonuna sjálfa: „Leiðin innfrá út í heim, andartak, sem skilur á milli. Upphaf, spor, umhverfí, far. Teikning sem rofnar í hnitpunkt- um. Frá áfangastað til annars. Hin hráa grind raunveruleikans, sem allt hangir á, í senn falin og sýnileg, innaní, útúr, ofaní, uppúr, gegnum ... Bragi Ásgeirsson Ars Fehnica 1994 Æðstu mynd- listarverð- laun Norður- landa VEITING Ars Fennica mynd- listarverðlaunanna fer fram í Helsinki í dag. Verðlaunin sem eru æðstu myndlistarverðlaun á Norðurlöndum og þótt víðar væri leitað eru 200.000 fínnsk mörk skattfíjáls auk þess sem gefíð er út kynningarrit um verðlaunahafann og verk hans sýnd í finnskum listasöfnum. Tíu listamenn frá Finnlandi og Eystrasaltslöndum keppa um verðlaunin. Þeir eru Kri- staps Gelzis frá Lettlandi, Reijo Hukkanen frá Finnlandi, An- drei Khlobystin frá Pétursborg, Leonhard Lapin frá Eistlandi, Deimantas Narkevicius frá Lit- háen, Timur Novikov frá Pét- ursborg, Jiiri Okas frá Eist- landi, Nina Roos frá Finnlandi, Olegs Tillbergs frá Lettlandi og Gediminas Urbonas frá Lithá- en. Ars Fennica verðlaunin eru veitt í fjórða sinn í ár. í fyrra fékk Daninn Per Kirkeby þau. -----» ♦ ♦ Þjóðleikhúsið Kæra Jelena snýr aftur ÞJÓÐLEIKHÚ SIÐ hefur ákveðið að taka aftur til sýning- ar leikritið Kæru Jelenu eftir Ljudmilu Razumovskaju, sýn- ingu sem sló öll sýningarmet á Litla sviðinu leikárið ’91-’92. Aðeins er um örfáar sýningar að ræða. I fréttatilkynningu segir: „Kæra Jelena þótti með bestu leiklistarviðburðum þess leikárs og var það alls sýnt 161 sinn- um, að leikferðum meðtöldum. Leikritið var fyrst sýnt á Litla sviðinu en leikárið ’92-’93 var það einnig tekið til sýningar á Stóra sviðinu. Þrátt fyrir það komust færri að en vildu og hefur því verið ákveðið að sýna verkið á nýjan leik. Leikarar í Kæru Jelenu eru: Anna Kristín Arngrímsdóttir, í hlutverki Jelenu, Ingvar E. Sig- urðsson, Baltasar Kormákur, Hilmar Jónsson og Halldóra Bjömsdóttir. Leikstjóri er Þór- hallur Sigurðsson. Sem fyrr segir verður Kæra Jelena aðeins sýnd í örfá skipti á Litla sviðinu. Fyrsta sýning er þriðjudaginn 17. maí og verð- ur sýnt flest kvöld í þeirri viku. Auk þess verða fáeinar sýning- ar í júní. Tónleikar í Listasafni Signrjóns Leikið á óbó og píanó Frumflutt verk eftir Þorkel Sig- urbjörnsson MATEJ Sarc óbóleikari og Stein- unn Birna Ragnarsdóttir píanó- leikari halda tónleika í Listasafni Siguijóns, sunnudaginn 8. maí kl. 17. A tónleikunum verða leikin verk eftir Schumann, Mihalovici, Poulenc, Pasculli og frumflutning- ur á verki eftir Þorkel Sigurbjörns- son. Þetta eru „début“-tónleikar Matej Sarc á ís- landi. Matej Sarc nam óbóleik hjá Bozo Rogelja í Ljublj- ana, Slóveníu og hjá Heinz Holliger við tónlistarhá- skólann í Freiburg, Þýskalandi. Matej hefur tekið upp á geisladiska óbó- konserta Albinonis og konserta Tele- manns fyrir óbó d’amore. Hann Steinunn Birna Matej Sarc hefur komið fram sem einleikari og leikið kammertónlist víðs vegar um heiminn. Nýlega mátti heyra einleik Matejs með hljómsveit út- varpað beint um 15 lönd Evrópu á vegum samstarfsverkefnis Euro- radio-tónleikaraðarinnar. Steinunn Birna Ragnarsdóttir- stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk þaðan kenn- araprófí árið 1979 og einleikara- prófí einu ári seinna, undir leið- sögn Árna Kristinssonar. Hún lauk meistaragráðu sem einleikari frá New England Conservatory árið 1987, en kennari hennar var Leon- ard Shure. Hún starfaði á Spáni um tíma sem einleikari og þátttak- andi í kammertónlist. Þar hlaut hún „Gran Podium" verðlaun veitt af „Juventus del Musicals“ í Barc- elona og kom fram á tónleikum víða um Spán, þar á meðal á aljóð- legum tónlistarhátíðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.