Morgunblaðið - 05.05.1994, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 05.05.1994, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ1994 37 MINNINGAR SIGRIÐUR SÍMONARDÓTTIR + Sigríður Sím- onardóttir fæddist í Reykjavík 10. febrúar 1914 og lést i Hafnarfirði 23. apríl. Eftirlif- andi ciginmaður hennar er Sig- mundur Bjarnason skipasmiður. Utför Sigríðar fer fram í dag frá Fríkirkj- unni í Hafnarfirði. í DAG verður til mold- ar borin vinkona mín Sigríður Símonardóttir. Með orðum þessum vil ég kveðja hana og þakka fyrir góð kynni. Sigríður kom frá Vestmannaeyj- um ung og falleg á heimili foreldra minna í Skerjafjörðinn með unga dóttur sína Sjöfn. Góð vinátta tókst milli móður minnar Ragnhildar og Sigríðar og hélst ævilangt. Sigríður var glæsileg kona, há grönn og reist, sterk persóna. í lífi Sigríðar skiptust á skin og skúr- ir. Þijár dætur eignaðist hún, Sjöfn, Vilhelmínu og Sigrúnu sem hún missti aðeins tveggja ára gamla. Það var henni mikið áfall. Sigríður hafði verið heilsuveik um áratuga skeið. Hún kvartaði ekki. Oft sagði hún við mig: „Svona er lífið, Villa mín, við eigum að þakka það góða en gleyma hinu.“ Þannig var Sigríður. Arið 1955 var hennar hamingju- ár, svo sagði hún. Þá giftist hún Sigmundi manni sínum. Hjónaband þeirra var farsælt og fallegt. Hann traustur sem klettur og hún hlý og falleg. Vilhelmínu frænku minni, dóttur Sigríðar, sem þá var á fermingaraldri, reyndist hann sem besti faðir, svo og dætrum Vilhelmínu, Sigríði og Asthildi. Heimili þeirra á Hringbraut í Hafnarfirði var fallegt rausanr- heimili. Þangað var gott að koma og þau voru höfðingjar heim að sækja. Fyrir um það bil ári fluttu þau að Sólvangsvegi 1 í íbúð eldri borgara. Þá sagði Sigríður að það væri allt nýtt og fallegt, hún var það sem kallað er fagurkeri og varð aldrei gömul. Sigmundur. Innilegar samúðar- kveðjur, Sjöfn, Villý, Sirrý, Ásta og Jón Þór. Ég sendi ykkur öllum og systkinum Sigríðar samúðar- kveðjur. Við kveðjum og munum góða konu. Sigríður, blessuð sé sminning þín, þakka þér vináttu þína. Vilhelmína Böðvarsdóttir. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (H.P.) Elsku amma. Allt í einu ertu horfm og hvernig eigum við að kveðja þig. Það er skrýtið að hugsa til þess að þegar við komum í heim- sókn, bíðir þú ekki oftar eftir okk- ur með kaffíð og pönnukökurnar eða leggjandi kapal við elshúsborðið. Frá því við vorum smástelpuh, hvort sem við lentum í rifrildi við vinkonurnar, höfðum hruflað okkur eða dottið í lækinn í nýju sparifötunum og seinna á unglingsár- unum áttum í basli með ástamálin eða skólann varst þú alltaf sú sem skildir allt, bentir á hitt sjónarm- iðið, huggaðir okkur og taldir í okkur kjark- inn. Ekki með því að segja hvað við ættum að gera heldur sagðirðu okkur sögur af sjálfri þér sem barni og ungling í Vestmannaeyj- um, elst af 14 systkinum. Elsku amma, takk fyrir allt. Viskuna þín, skilninginn og bama- trúna. Og eins og þú sagðir alltaf sjálf, við erum heppnar að eiga afa. Hvar værum við án hans? Þið voruð alltaf til staðar, tilbúin að gera allt fyrir okkur þegar við þurftum á að halda. Seinna, þegar við vorum orðnar mæður með börn og heimili, áttum við ykkur alltaf að, þið pössuðuð bömin okkar og gáfuð okkur ráð - þegar við báðum um þau, en reynduð þó aldrei að stjóma okkur. Við eigum afa ennþá og erum þakklátar fyrir það. Góða nótt, elsku amma okkar. Sigríður (Sirrý) og Ásta. Vaiulíidat• íitfamrskreyt i ngat: Krausai: krossai; kistnskivytingai: Ertidnkkjur Glæsileg kíilii- lilaðborð íallegir salir og mjög góð þjónnsta lipplýsingar í smia 2 23 22 FLUOLEIDIR HÖTEL LOFTLEllIft Windows grunnnámskeið WftWÆ Tölvtr- oq verkfræöibjónustan 94025 tP- og verkfræöiþjónust Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar Grensásvegi 16 • ® 68 80 90 NYJA SENDIBILASTOÐIN 685000 Þjónusta á þinum vegum flASKOLANAM I KERFISFRÆÐI Innritun á haustönn 1994 stendur nú yfir í Tölvuháskóla VÍ. Markmið kerfisfræðináms er að gera nemendur hæfa til að vinna við öll stig hugbúnaðargerðar, skipuleggja og annast tölvu- væðingu hjá fyrirtækjum og sjá um kennslu og þjálfun starfsfólks. Námið tekur tvö ár og er inntökuskilyrði stúdentspróf eða sambærileg menntun. Tölvubúnaður skólans er sambærilegur við það besta sem er á vinnumarkaðnum, meðal annars Victor 386MX vélar, IBM PS/2 90 vélar með 80486 SX örgjörva, IBM RS/6000 340 og IBM AS/400 B45 sem allar eru tengdar saman með öflugu netkerfi. Áhersla er lögð á að fá til náms fólk með stúdentspróf sem hefur starfað við tölvuvinnslu og í tölvudeildum fyrirtækja auk nýstúdenta. Eftirtaldar greinar verða kenndar: Fyrsta önn: Forritun í Pascal Kerfisgreining og hönnun Tölvur, stýrikerfí og net Fjórðukynslóða forritun Önnur önn: Fjölnotendaumhverfi AS/400 Gagnasafnsfræði C++ forritun Gluggakerfi Priðja önn: Gagnaskipan Tölvugrafík Kerfísforritun Netforritun Fjórða önn: Forritun í gluggakerfum Hugbúnaðargerð Valin efni úr viðskiptum Raunhæf verkefni eru unnin í lok hverrar annar eftir að hefðbundinni kennslu lýkur. Lokaverkefni á 4. önn er gjaman unnið í samráði við fyrirtæki, sem leita til skólans. Fyrirhugað er að taka inn 70 til 80 nemendur á fyrstu önn og verður umsóknum svarað jafnóðum og þær berast fram til 16. júní. Kennsla á haustönn hefst 29. ágúst. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar fást á skrifstofu TVI frá kl. 8 til 16. TVI TÖLVUHASKOLIVI, Ofanleiti 1, 103 Reykjavík. Aðalfundur fjp Bílgreinasambandsins verður haláinn laugardaginn 7. maí nk. á Hótel Sögu og hefst kl. 9.15 Dagskrá: Kl. 09.15 Fundarsetning, Sigfús Sigfússon, formaður BGS Kl. 09.30 Starf og skipulaggning BGS. Tillögur stjórnar um starf og skipulag BGS -Umræður Kl 10.30 Atvinnumál í bílgreininni - Svört atvinnustarfsemi Hugmyndir um aðgerðir Kl. 11.30 Staða bílgreinarinnar í íslensklu efnahagslífi Guðmundur Magnússon prófessor Kl. 12.00 Hádegisverður - Hádegisverðarerindi. Halldór Blöndal, samgönguráðherra Kl. 13.30 Dagskrá sérgreinafundar A. Verkstæðisfundur B. Bíiamáiarar og bifreiðasmiðir C. Bifreiðainnflytjendur D. Smurstöðvar £ Varahlutasalar Kl. 15.30 Niðurstöður sérgreinafunda. (Sal A-Hótel Sögu). Kl. 16.00 Aðalfundur Bílgreinasambandsins. (SalA - Hótel Sögu) Aðalfundarstörf skv. 9 gr. laga sambandsins. Stjórn BGS hvetur sambandsaðila til að mæta á fundinn. Stjórn Bílgreinasambandsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.