Morgunblaðið - 05.10.1995, Síða 37

Morgunblaðið - 05.10.1995, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 37 AÐSENDAR GREINAR Dagdeild Tinda Urræði fyrir unglinga í vímuefnavanda OPNUÐ verður í dag dagdeild fyrir unga vímuefnaneytendur í miðbæ Reykjavíkur, að Hverfisgötu 4a. Þar verður boðið upp á með- ferð fyrir unglinga sem eru í vandræðum vegna áfengis- og vímuefna- neyslu. Eins og komið hefur fram í fréttum var með- ferðarheimilinu Tindum á Kjalamesi lokað vegna lélegrar nýting- ar. Hin dræma aðsókn að Tindum felur þó ekki í sér að vandamál tengd neyslu áfengis og ann- arra vímuefna sé ekki til staðar og að ekki sé þörf á að bregðast við þeim vanda. Lokunin endurspeglar einungis þá staðreynd að aðrir aðilar, einkum SAA, hafa í auknum mæli boðið fram þjónustu fyrir unga vímuefnaneytendur á aldr- Dagdeild Tinda og fjöl- kvillaskor Landspítala munu eiga náið sam- starf, segir Sigrún Hv. Magnúsdóttir, um meðferð ungra vímu- efnaneytenda. inum 16 - 18 ára. Eftir stendur þó að unglingar yngri en 16 ára og fjöl- skyldur þeirra þurfa að eiga greiðan aðgang að viðeigandi hjálp þegar vandi steðjar að. Um það er ekki deilt að sú sér- staka unglingameðferð sem Tindar á Kjalamesi buðu upp á hefur skilað miklum árangri. Því er mikilvægt að áfram verði boðið upp á þá meðferð og að dýrmæt reynsla starfsfólksins á Tindum nýtist þeim unglingum sem á þurfa að halda. Opnun dagdeildar Tinda hefur þetta markmið. Tindar sérhæfðu sig í meðferð áfengis- og vímuefnavanda unglinga á aldrinum 13-18 ára. Dagdeild Tinda mun sinna því verkefni áfram og leggja mikla áherslu á samstarf og vinnu með fy'öl- skyldu unglingsins. Barnaverndar- stofa og fjölkvillaskor Landspítalans hafa gert samstarfssamning um meðferð unglinga á aldrinum 16 - 18 ára. Dagdeild Tinda og fjölkvilla- skor Landspítalans munu eiga náið samstarf er varðar meðferð fyrir unga vímuefnaneytendur og fjöl- skyldur þeirra. Tilboð þessi eru ólík og eru hugsuð til að mæta ólíkum þörfum. Sérstaða Tinda heldur áfram að vera sérhæfð unglingameðferð, langtíma eftirmeðferð og öflug fjöl- skyldumeðferð. Foreldrar eiga eðlilega erfítt með að senda ungling burt af heimilinu í 6-12 vikur og tel ég það oft vera ástæðu fyrir að fólk leitar ekki hjálp- ar fyrr en ástandið er orðið svo til óbærilegt. Með dagdeildinni vonumst við til að fólk leiti fyrr eftir hjálp. Reynslan frá Tindum sýnir að ungl- ingurinn var byijaður í drykkju að meðaltali tveimur árum áður en for- eldrar vissu um það. Oft var fyrsta fylliríið um 11-13 ára aldurinn. Skróp í skóla er fastur fylgifiskur vímuefna- neyslu, þannig að þegar ungling er farið að vanta oft i skólann er líklegt að vímuefnaneysla sé meðal orsakanna. Marg- ir hafa haft það að orði við mig að það þýði lítið að senda ungling á dag- deild því þá geti hann bara dottið í það á kvöld- in og um helgar eins og áður. Rétt er að geta þess að ef unglingurinn er stjómlaus í neyslu og þarf að stoppa hann af er mögulegt að vista hann og mun starfsfólk dagdeildar leiðbeina fólki þar um. En munum að það er sameiginlegt með þessum krökkum að þeim líður mjög illa. Þeir em einangraðir frá fj'ölskyldunni, gamlir vinir eru fjar- lægir og þeim fínnst þeir vera „tapar- ar“. Þegar þeim er sýnt fram á nýja möguleika til að ráða fram úr lífi sínu og aðstæðum, fá þeir fiestir áhuga á að taka sig á í skóla, breyta hegðun sinni gagnvart fjölskyldunni og þau uppgötva möguleika á heilbrigðum tómstundum. Við viljum hvetja foreldra til að leita sér hjálpar fyrr en síðar. Jafnvel þótt foreldrar séu ekki vissir um að unglingurinn sé kominn út í vímu- efnaneyslu, er grunur um það nægileg ástæða til að leita sér hjálpar. Við á dagdeild Tinda erum fljót að sjá hvort grunurinn á við rök að styðjast og bjóðum foreldrum að koma til okkar og ræða áhyggjur sínar. Eins munum við verða með fræðslu fyrir fólk sem er óöruggt eða vill læra árangursrík- ari aðferðir til að bregðast við erfið- leikum á heimilinu. Það er miklvægt að taka sem fyrst á vímuefnaneyslu unglingsins til að hann missi ekki af skólanámi og venjist ekki á að lifa á flótta undan foreldrum og öðrum sem vilja honum vel. Ef ákveðið er eftir viðtal, að unglingurinn fari á dagdeild Tinda mun hann fá skólakennslu á deild- inni í samráði við eigin skóla. Kenn- arar Einholtsskóla munu sjá um kennsluna en Einholtsskóli er sér- skóli fyrir unglinga sem eiga í erfið- leikum í námi. í könnun sem gerð var á fjöl- skylduvinnu á Tindum kom fram að foreldrar voru mjög ánægðir með fjölskyldumeðferðina. 80% þeirra sem tóku þátt í fjölskylduviku sögðu að samskiptin í fjölskyldunni hefðu orðið nánari. Við munum halda áfram með fjölskyldumeðferð því það þýðir ekki að taka einn fjölkyldumeð- lim í meðferð, hinir þurfa að fylgjast með og átta sig á hvernig málin hafa þróast. í öllum fjölskyldum þar sem vímuefnavandi er til staðar verða foreldrar óöruggir um hvemig taka skal á vandanum. Þess vegna prófa þeir sífellt nýjar leiðir sem oft verður til þess að unglingurinn fær mismunandi skilaboð, eitt er bannað í dag en leyft á morgun. Þannig hættir unglingurinn að taka mark á því sem sagt er og vítahringurinn stækkar. Við eram reiðubúin að hjálpa foreldrum að breyta áherslum í uppeldinu og gleymum ekki að hver einasti unglingur á alla möguleika á að breyta um lífsstíl. Síminn á dagdeild Tinda er 552-8600. Verum á varðbergi, tökum höndum saman gegn vímuefnaneyslu unglinga! Höfundur er félugsráðgjufi og forstöðumaður dagdeildar Tinda. Sigrún Hv. Magnúsdóttir Ráðgjöf fyrir aðstandendur alkóhólista, óvlrka alkóhólista og aðra meðvirka einstaklinga Hef flutt stofu mína í: Skipholt 50c - sími 561 5035. Viðtöl, stuðningshópar, tilfinningavinna, fræðsla. Stuðningur fyrir fólk sem hefur orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Ragnheiður Óhidóttir, ráðgjofi. =o TIL SÖLU ER ÁRMÚL118 425 FM EFRI HÆÐ TIL SÖLU er um 425 fm full innrétt- uð og vönduð skrifstofu hæð (efri hæð) í Ármúlo 18. Skiptist hæöin m.a. í 14 skrifstofuherbergi, afgreiðslu, lítinn sal, tölvuherbergi, 2 geymsluherbergi, eldhús, tvö salerni og sér stigahús. Hluti af útgófustarfsemi Fróða og starfsemi Frjóls framtaks voru í húsnæðinu í fjölda- mörg undanfarin ár. - Útborgun getur verið lítil ef um traustan kaupanda er að ræða. Frjálstframtak Héðinshúsinu, Seljavegi 2, 101 Reykjavik Sími 515 5500 - Telefax 515 5599. FASTEIGNASTARFSEMI - LANDVINNSLA NordSoll995 Tónlistarkeppni Norðurlanda Christina Bjprk^e Danmörku Guðrún María Finnbogadóttir íslandi Henri Sigfridsson Finnlandi Katrine Buvarp Noregi Markus Leoson Svíþjóð Sinfóníutónleikar í Háskólabíói Fimmtudaginn 5. október kl. 20:00 Laugardaginn 7. október kl. 14:00 Stjórnandi Osmo Vanská Konsertþœttir og aríur eftir Brahms • Verdi • Mozart • Puccini • Gounod Prokofjev • Rakhmanínov • Milhaud Miðasala frá mánudegi 2..október í anddyri Hótel Sögu Miðapantanir í síma 552 9924 • Símsvari um kvöld og helgar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.