Morgunblaðið - 05.10.1995, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 05.10.1995, Blaðsíða 48
48 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens \ LSÐA &l (Fyesr /t& 'Mé/z r ) Grettir Tommi og Jenni Ferdinand BRÉF TIL BLAÐSINS Krínglan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 5691329 Norræni kórinn Frá Tryggva V. Líndal: KÓRAR eru merkilegt félagslegt fyrirbæri: Varla finnst sá íslend- ingur sem hefur ekki tekið þátt í kórstarfi, hvort sem um er að ræða í skólakór, kirkjukór eða blönduðum kór. Kórar eru jafnframt sá vettvang- ur þar sem flestir íslendingar koma saman til að rækta sameiginlega sköpunarþörf sína. Hljóta þar því fleiri starfsstéttir að blanda saman geði en á öðrum vettvöngum. Einnig eru kórar mikilvirkir al- menningstenglar, milli byggðar- laga sem og milli landa. Þannig hafa til dæmis fjölmennustu heim- sóknirnar milli okkar og hins ný- fijálsa Lettlands verið í formi kór- ferða. Eystrasaltsþjóðirnar eru nú að viðurkenna gildi kóraheim- sókna með því að bjóða sem flest- um erlendum kórum á hinar árlegu kórahátíðir sínar, til að ijúfa ein- angrun sína. Merkilegt fyrirbæri í kóraflóru íslands er Norræni kórinn. Sá hópur hefur komið saman í tvö ár undir þessu nafni í tónlistarsal Norræna hússins. Hefur hann einkum sungið þjóðlög frá Evrópu- löndunum; Norðurlöndum, Eystra- saltslöndum og Grikklandi. Þetta hefur leitt til samvinnu hans við ýmis félög hérlendis auk norrænu félaganna, svosem Vináttufélag íslands og Lettlands, Grikkland- svinafélagið og Vináttufélag ís- lands og Kanada. Sungið hefur verið mikið á frummálunum og þá gjarnan með þátttöku fólks frá viðkomandi löndum. Fjölraddaður söngur og undirspil Hópurinn hefur keppst við að syngja fjölraddað, og reynt að hvetja meðlimi sem spila einnig á hljóðfæri til að finna þeim stað í söngnum, t.d. píanó, gítar, harmonikku, þverflautu, trompet, blokkflautu og trommur. Það merkilegasta er kannski að hópurinn hefur ekki haft neinn einn stjórnanda, heldur hafa hljóð- færaleikararnir skipst á um að ljá lið sitt. Öll starfsemi hefur verið ókeypis, enda höfum við fengið frí afnot af hljómleikasal og píanói Norræna hússins utan annatíma, einkum á sunnudagsmorgnum. Ekki hefur hópurinn því verið stór; að jafnaði hafa mætt sjö til fjortán manns. Mæting hefur og verið frjáls. Hefur þetta leitt til virkis, hugljúfs og heimilislegs fé- lagsanda, í anda félagsstarfs Nor- ræna hússins. Þátttakendur hafa verið á ýmsum aldri. Flestir hafa þó ver- ið á þrítugsaldri, þ.e. háskóla- nemar og au-pair stúlkur, frá ýmsum Norðurlandanna, en einn- ig nýbúar þaðan og aðrir Islend- ingar. Kórinn hefur og tekið þátt í Luciuhátíð Norræna hússins, og kórfélagar hafa gjaman komið frá ýmsum kórum og tónlistarhópum síns nágrennis. Kórstarf almennt er stærsti menningarvettvangur okkar ís- lendinga, og í skjóli þess þrífst ýmis önnur menningarstarfsemi, svosem bókmenntasamkomur, trúmál og leiklist, að ógleymdri landkynningu og annarri fræðslu. Því er vonandi að kórar megi verða sem fjölskrúðugastir og fjölþjóð- legastir, til að geta sem best gegnt þessu almenna menningarhlut- verki sínu. TRYGGVIV. LÍNDAL, þjóðfélagsfræðingur, Skeggjagötu 3, Reykjavik. 1 JUST (4EARP some PEOPLE OVER AT THE CHURCH 5IN6IN6 ‘'0RIN6IN6 ME NEITHER,BUT IF I EVER ? 5EE0NE,I'LLBRIN6ITIN.. S Ég heyrði fólk í kirkjunni syngja „Berið inn korn- bundin". Ég veit ekki einu sinni hvað kornbundin er... Ekki ég heldur, en ef ég skyldi sjá eitt slíkt ætla ég að bera það inn... Stuðningsyfirlýsing VIÐ undirrituð styðjum Margréti Frímannsdóttur til formanns í Al- þýðubandalaginu og teljum að með kjöri hennar eflist á ný samskipti verkalýðshreyfingarinnar og Al- þýðubandalagsins. ARI SKÚLASON, framkvæmdastjóri Alþýðusambands Islands, ÁGÚSTÞORLÁKSSON, trúnaðarmaður, ÁRMANN ÆGIR MAGNÚSSON, formaður Sunniðnar, BJÖRN GRÉTAR SVEINSSON, formaður Verkamannasambands íslands, BRYNJAR VIBORG, kennari, ELÍAS BJÖRNSSON, formaður Sjómannafélagsins Jötuns, ELÍNBORG JÓNSDÓTTIR, formaður Félags opinberra starfs- manna á Suðurlandi, FINNUR GUÐSTEINSSON, uppeldisfulltrúi, GUÐRÚN KR. ÓLADÓTTIR, varaformaður Starfsmannafélagsins Sóknar, HALLDÓR BJÖRNSSON, varaformaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, HELGIHELGASON, trúnaðarmaður. HJÁLMFRÍÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR, ritari Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, KRISTÍN Á. GUÐMUNDSDÓTTIR, formaður Sjúkraliðafélags íslands, LEIFUR GUÐJÓNSSON, stjómarmaður í Verkamannafélaginu Dagsbrún, SIGRÍÐUR ÓLAFSDOTTIR, trúnaðarmaður, SIGURÐUR BESSASON, starfsmaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, SIGURÐUR T. SIGURÐSSON, formaður Verkamannafélagsins Hlífar, SNORRI ÁRSÆLSSON, trúnaðarmaður. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt tii að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.