Morgunblaðið - 19.11.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1995 13
LISTIR__
Skuggalegar
þreifingar
VLADÍMÍR Zhírínovskíj skvettir úr glasi sínu á ríkisstjóra Nizhní Novgorod i sjónvarpsviðtali.
Uppátæki á borð við þetta duga til þess að halda Zhírinovskíj í fréttunum í Rússlandi en telja má
hæpið að flokkur hans sigri í kosningunum í desember líkt og hann gerði 1993.
kosninganna.
Þá er þess að geta að samkvæmt
stjórnarskránni tekur Viktor
Tsjernomyrdín forsætisráðherra við
forsetaembættinu reynist Jeltsín
ófær um að sinna því af heilsufars-
ástæðum. Tsjernomyrdín stýrir hins
vegar „miðju-flokki“ sem nefnist
„Heimili vort er Rússland". Þessi
flokkur forsætisráðherrans virðist
ekki ætla að fá það fylgi sem honum
var upphaflega spáð. Tsjernomyrdín
nýtur á hinn bóginn umtalsverðrar
virðingar á Vesturlöndum enda
kunna menn því best þar að eiga
viðskipti við kunnugleg andlit.
Forsætisráðherrann er maður yf-
irvegaður og athyglisvert er að hann
hefur ekki varað á opinberum vett-
vangi við skelfilegum afleiðingum
þess að kommúnistar vinni sigur í
þingkosningunum. Bent hefur verið
á að þeir Tsjernomyrdín og Tsjúg-
anov hafa á sínum tíma starfað sam-
an í miðstjórn Kommúnistaflokks
Sovétríkjanna. Þeir eru á líkum aldri,
báðir rúmlega fimmtugir, og báðir
skilgetin afkvæmi „kerfisins".
Freistandi er því að álykta á þann
veg að samstarf muni takast með
þessum flokkum. Tsjernomyrdin hafi
þörf fyrir fjöldafylgi kommúnista
sem hafi þörf fyrir stöðu og virðingu
forsætisráðherrans, ekki síst þar
sem hann kann að taka við stjórnar-
taumunum, a.m.k. um tíma, reynist
heilsuleysi Jeltíns alvarlegt.
Afturhvarf en ekki endalok
Rússneskir „umbótasinnar", sem
ef til vill væri réttara að nefna „bylt-
ingarmenn", hafa í yfirlýsingum sín-
um ítrekað varað við að allt það starf
sem unnið hafi verið í Rússlandi á
undanförnum árum geti að engu
orðið sigri afturhaldsöflin í kosning-
unum í desember. Þessi ótti er
ástæðulaus en mikilvægar breyting-
ar hafa engu að síður átt sér stað
í Rússlandi sem birtast munu í þess-
um kosningum. Rússar upplifa upp
til hópa stöðu sína á þann veg að
Vesturlandamenn sýni þeim ekki til-
hlýðilega virðingu og margir gráta
af þeim sökum endalok heimsveldis-
ins. Raddir í þær veru munu magn-
ast eftir þessar kosningar og á þeim
vettvangi, líkt og efnahagsmálunum,
má búast við ákveðnu afturhvarfi
til fortíðar.
Hið ánægjulega er þó ef til vill
það, að sömu lögmál gilda nú um
rússnesk stjórnmál og önnur. Þar,
líkt og á Vesturlöndum, greiða menn
fyrst og fremst atkvæði með tilliti
til afkomu sinnar. Hugmyndafræði
„byltingarmannanna" hefur engu
breytt um lífskjör gífurlegs fjölda
fólks og rýrt mjög kjör annarra.
Margir munu kjósa að sitja heima
en aðrir munu nýta kjörseðilinn til
að koma óánægju sinni til skila.
LEIKLIST
Lcikíclag Vcrslunar-
skóla íslands
MYRKUR
Höfundur Frederick Knott. Leik-
stjóri: Hilmir Snær Guðnason. Leik-
endur: Eyrún Valsdóttir, Davið
Hauksson, Kjaitan Vilhjámsson,
Haukur Þór Hannesson, Iris María
Stefánsdóttir, Guðleifur Kristjáns-
son, Anna María Geirsdóttir og
Georg Haraldsson. Hátíðasal VI, 13.
nóvember.
GERÐ hefur verið kvikmynd eftir
tveimur þekktustu leikritum Fred-
ericks Knotts. Hitchcock kvikmynd-
aði „Dial M for Murder" með Grace
Kelly í aðalhlutverki og síðan var
myndin Myrkur (Wait until Dark)
sett á filmu og þar lék Audry Hep-
burn aðalhlutverkið, blinda konu
sem verður fyrir barðinu á skúrk-
um ... Ég var á þeim aldri þegar
ég sá myndina og Audry að mig
langaði mest til að hlaupa upp á
tjaldið og halda utan um hana og
bjarga henni frá vondu köllunum og
vera síðan mikið góður við hana.
Hún er nú látin, blessunin. Hún var
í huga mínum hin dyggðum prýdda
mær og skilgreindi fyrir mér ungum
kvenlega fegurð. Ég veit að hefði
ég fengið að leggja hönd á vanga
hennar hefði hönd mín brunnið upp
til agna undan fullkomnun hennar.
Þetta leikrit sem Verslingar hafa
nú endurvakið á sínu sviði fjallar
um tilraun þriggja skúrka til að finna
dúkku fulla af eiturlyfjum í íbúð þar
sem blind kona býr. Hér er lögð
áhersla á sambland spennu og kímni
og það er erfitt með óreyndum leik-
urum. Leikstjórinn, Hilmir Snær,
hefur þó nokkur tök á glaðbeittu
leikaragenginu og hefur tekist, þrátt
fyrir allt of nauman æfingatíma, að
fá þau til að lifa sig nokkuð inn í
hlutverk sín. Sú blinda Susy þreifar
sig áfram í túlkun Eyrúnar Valsdótt-
ur og krimmararnir eru til skiptis
þreifandi vitlausir og þuklandi
fyndnir. Þar er ekki hægt að nefna
einn öðrum fremur en víst er að
áhorfendur voru vel með á nótunum
og hlógu stundum að vinum sínum
vandræðast upp á sviðinu, en það
er skemmtun sem líðst og er að
auki nokkuð skemmtileg í áhugaleik-
húsi sem er sakleysislega skemmti-
legt, eins og barnasýning þegar svo
ber undir. Og þarna bar þannig und-
ir.
Ekki magnaðist spennan svo á
sviðinu að ég gripi um stólbríkurn-
ar, enda aðstaðan til að skapa hana
ekki upp á marga fiska, lýsing ein-
hæf, tónlistin ekki sérlega grípandi,
en þó rétt valin, og leikarar lítt æfð-
ir í að tjá innri átök. Líka mátti að
því frnna að leikmynd virtist hafa
verið hent saman í of miklum flýti.
Samt var þetta þokkalegasta kvöld-
stund, þrátt fyrir hálftima seinkun.
Verslingar hafa sýnt það og sannað
á síðari árum að þeim er til alls trú-
andi á söng- og skemmtileikjasviðinu
og það er gott til þess að vita að í
þeim skóla skuli líka vera lögð rækt
við hefbundnari leik á sviði.
Guðbrandur Gíslason
lúiiÍiLi ÚJ J
6. kynslóöín af Honda Civlo, árgerö '1996, býður meiri gæði,
meiri kraft og meira rýml fyrir þig og farþega þína en almennt
stendur til boða é markaðinum í dag. Verðið, sam skiptir okkur
öll miklu málí á tímum þrenginga, mun koma þér verulega á óvart