Morgunblaðið - 08.10.1996, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 08.10.1996, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 1996 13 FRÉTTIR Pokasjóðsdeilu skal leysa fyrir gerðardómi HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur vísað frá dómi máli sem Land- vernd höfðaði á hendur Hagkaupi. Landvernd gerði þá kröfu að Hag- kaupi yrði gert að greiða tæpar 8 milljónir í svokallaðan pokasjóð Landvemdar þar sem verslunin hafi hætt að greiða í sjóðinn frá apríl 1994. Dómarinn, Valtýr Sigurðsson, benti á að í samningi Kaupmanna- samtakanna og Landverndar um greiðslur í sjóðinn hafi verið sérstakt ákvæði um að ágreiningur skyldi leystur með gerðardómi og þannig hafi málsaðilar undanþegið sig dómsvaldi lögskipaðra dómstóla. Samkvæmt umræddum samningi skyldi Landvernd sjá um innheimtu fjár, sem safnaðist með sérstöku gjaldi af hveijum burðarpoka úr plasti í verslunum innan Kaup- mannasamtakanna og var tilgangur- inn að bæta, fegra og græða landið, eins og sagði í samningnum. Kaupmannasamtökin slitu á síð- asta ári samstarfi sínu við pokasjóð Landverndar. Jafnframt stofnuðu samtökin Umhverfissjóð verslunar- innar, í samstarfí við Hagkaup og Samtök samvinnuverslana. Landvernd krafðist tæplega 5 milljóna pokagjalds vegna pokasölu Hagkaups fram til september 1994 og tæplega 3 milljóna til viðbótar vegna þess tjóns sem pokasjóður hafi orðið fyrir af því að Hagkaup hætti sölu pokanna í september án þess að sinna ákvæði samnings um tveggja mánaða uppsagnarfrest. Afdráttarlaust ákvæði samnings Hagkaup krafðist frávísunar með þeim rökum, að ef litið yrði svo á að fyrirtækið hafi verið beinn aðili að samningi Kaupmannasamtak- anna og Landverndar, þá ætti að leysa úr ágreiningsefnum með gerð- ardómi. Féllst dómari á þá niður- stöðu með vísan til afdráttarlauss ákvæðis i samningnum. Þar er kveð- ið á um að deiluefni skuli leyst í gerðardómi tveggja manna, eins frá hvorum samningsaðila. Nái þeir ekki samkomulagi skuli þeir kalla til óvil- hallan oddamann. Hlutabréfasjóður Norðurlands Bréf bæj- arins seld BÆJARRÁÐ Akureyrar hef- ur heimilað bæjarstjóra að selja hlutabréf bæjarins í Hlutabréfasjóði Norðurlands hf. að nafnverði ein milljón króna. Hlutabréfasjóður Norður- lands hefur boðið hluthöfum forkaupsrétt að hlutabréfum í hlutabréfaútboði sjóðsins. Samþykkti bæjarráð að hafna forkaupsrétti Akureyrarbæj- ar og selja hlutabréf sín í sjóðnum. Café Boma Vönduð kanna með leka loka. Slekkur á sér sjálfkrafa. Cafe Master Þægileg, einföld og ódýr. HD7412 3.390 kr. ■ Café Gourmet HD540O Falleg kaffivél sem sýöur vatniö áður en hún hellir upp á. Auðvelt er að færa hana til og hitahellan heldur kaffinu heitu. 11.560 kr. Café Boma Tfierm Hellir upp á ilmandi kaffi HD 7262 beint f hitabrúsann. TíT Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SlMI 569 1500 Umboðsmenn um land allt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.