Morgunblaðið - 24.11.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.11.1996, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ pJíir0iuml>tAÍ>ií> VIKAN 17/11 -23/11. íslenzk börn standa ►TVÍTUGUR maður var dæmdur í 3'/2 árs fangelsi fyrir tvö vopnuð rán, en í báðum tilvikum hótaði hann afgreiðslufólki verzlana með hnífi. Maðurinn hefur áður verið dæmdur fyrir fjölda afbrota, þar á meðal tvö önnur rán. ►ÍSLAND fær sama karfa- kvóta á Reykjaneshrygg og í fyrra, 45.000 tonn, sam- kvæmt samþykkt NEAFC. Ríki NEAFC buðu Rússum 5.000 tonna meiri kvóta en í fyrra, en ekki er ljóst hvort þeir sætta sig við það. Ekki náðist samkomulag á fund- um fjögurra strandríkja og Evrópusambandsins um stjórn veiða úr norsk- islenzka síldarstofninum á næsta ári. sig illa í raungreinum NÁMSÁRANGUR íslenzkra nemenda í nokkrum helztu raungreinum líkist einna mest árangri nemenda í löndum, þar sem efnahagur er mun lakari en hér á landi og ástand menntamála hef- ur hingað til ekki verið talið sambæri- legt við það, sem gerist á íslandi. Sam- kvæmt vandaðri, alþjóðlegri rannsókn er frammistaða barna í 7. og 8. bekk langt undir alþjóðlegu meðaltali. Hugsanlegt að leigja kvóta á markaði ►LYFJAREIKNINGUR til Tryggingastofnunar rikis- ins hefur aldrei verið hærri en i október siðastliðnum. Þetta er rakið til margra lyfjaauglýsinga og afslátt- artilboða lyfjabúðanna. HALLDÓR Ásgrímsson formaður Framsóknarflokksins sagði í upphafi flokksþings að greiðslur fyrir aflaheim- ildir væru ailtof háar og hærri en nokk- urn hefði órað fyrir er kvótakerfið komst á. Nauðsynlegt væri að gefa kvótahöfum skýrt til kynna að þeir gætu ekki alla tíð treyst því að fá alla aukningu aflaréttinda í sinn hlut. Ríkið kynni að leigja hluta kvótans út. ►PÁLL Pétursson félags- málaráðherra segir að nefnd á hans vegum hafi sett fram hugmyndir um að breyta félagslega eignar- ibúðakerfinu í félagslegt húsnæðislánakerfi. Sveitar- félög losni þá við kaup- skyldu íbúða. Forseti í Danmörku ► FRAMK VÆMDASTJÓRI Verðbréfamarkaðar ís- landsbanka segir að íslend- ingar gætu sparað 13 millj- arða króna vaxtagreiðslur af innlendum lánum árlega, gengju þeir í Efnahags- og myntbandalag Evrópu (EMU). FORSETI íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, og köna háns frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir fóru í opinbera heimsókn til Danmerkur, þá fyrstu til útlanda. Ólafur Ragnar sagði við heim- komuna að heimsókjjjn markaði með vissum hætti upphaf að nýju skeiði í samskiptum þjóðanna; nýjar kynslóðir væru ekki mótaðar af erfíðum málum sögunnar, heldur litu þær á hina sam- eiginlegu sögu sem uppsprettu margs sem tengdi þjóðirnar saman. ►SAMBAND íslenskra sveitarfélaga hyggst skoða þá hugmynd að stofna sam- eiginlega eigin lífeyrissjóð. Dýrt bankakerfi REKSTARKOSTNAÐUR bankakerfís- ins á íslandi er um 13 milljarðar króna á ári. íslenzka bankakerfið er hlutfalls- lega dýrara og óhagkvæmara en bankakerfí hinna Norðurlandanna. Málamiðlun náðist í Hvíta-Rússlandi MÁLAMIÐLUN tókst í fyrradag fyrir milligöngu Víktors Tsjemomýrdíns, forsætisráðherra Rússlands, í deilum hvít-rússneska þingsins og forseta landsins, Alexanders Lúkashenko, um þjóðaratkvæði og nýja stjómarskrá. Féllst Lúkashenko á, að þjóðaratkvæð- ið yrði ekki bindandi og þingið fellur frá hótunum um að víkja honum úr embætti. Féllust deiluaðilar á, að stofna 100 manna stjómlaganefnd innan 20 daga og hefur hún þijá mánuði til að semja nýja stjórnarskrá. Er henni ætlað að taka mið af úrslitum þjóðaratkvæð- isins. Verður hún skipuð 50 mönnum er forsetinn tilnefnir og 50 fulltrúum þingsins. ► NORSKA sljórnin hefur ákveðið hvalveiðikvóta 1997 og hugsanlegt er talið, að bann við útflutningi á hval- afurðum verði numið úr gildi strax á næsta ári. ► JÓHANNES Páll páfi hef- ur þegið boð Fidels Castros Kúbuforseta um, að koma í heimsókn til Kúbu á næsta ári. Líklegt er að hún eigi sér stað eftir tæpt ár. ► ÁKVEÐIÐ hefur verið að banna allar veiðar í mörgum norskum laxám næsta sumar, og takmarka þær í öðrum, til að bjarga laxastofnunum frá ofveiði. Jeltsín eldmóðugnr BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti var eld- móðugur er hann kom í fyrsta sinn fram opinberlega á miðvikudag, hálfum mánuði eftir hjarta- skurðaðgerð. Sagð- ist hann ekki lengur fínna til í hjartanu, talaði skýrt og kröft- uglega en var nokk- uð stirður til gangs í fyrstu útivist sinni. ► TUGÞÚSUNDIR Króata efndu til mótmæla gegn stjórn landsins í Zagreb á fimmtudagskvöld og fögn- uðu um leið því, að stjórnin hafði gefist upp við að loka vinsælli og óháðri útvarps- stöð. Heitir umbótum EMIL Constantinescu fór með sigur af hólmi i forsetakosningum í Rúmeníu sl. sunnudag. Hét hann skjótum efna- hagsbótum og lagabreytingum til að stuðla að erlendum fjárfestingum eftir sjö ára' stöðnunarskeið undir stjóm flokks fyrrverandi kommúnista. ► NEITUNARVALDI beittu Bandaríkjamenn í öryggisráði SÞ sl. þriðjudag er gengið var til atkvæða um ályktun þess efnis, að Boutros Boutros-Ghali gegndi áfram starfi fram- kvæmdastjóra stofnunar- ínnar. ► VERÐI frumvarp, sem liggur fyrir breska þinginu, samþykkt verður leyfilegt að merkja unga brotamenn með rafrænum hætti. FRETTIR Ekkert að aðferðafræðinni Horfumst í augu við niðurstöðuna FJÖLÞJÓÐLEG rannsókn á náms- árangri grunnskólanemenda í stærð- fræði og náttúrufræðigreinum sem birt var í liðinni viku leiðir í Ijós að heildarframmistaða íslenskra nem- enda í 7. og 8. bekk er undir alþjóð- legu meðaltali í þessum greinum. Dr. Einar Guðmundsson, deildar- stjóri hjá Rannsóknastofnun uppeld- is- og menntamála, hefur stjórnað rannsókninni frá upphafi þátttöku íslendinga. Hann segir niðurstöð- urnar viss vonbrigði, sérstaklega þegar skoðuð er frammistaða í ein- stökum þáttum stærðfræðinnar eins og t.d. algebru og í undirgreinum náttúrufræði eins og í efnafræði og eðlisfræði. Aðspurður um hvort eitthvað í aðferðafræði rannsóknarinnar gæti hugsanlega verið óhagstætt fyrir íslenska nemendur öðrum fremur, segist Einar afdráttarlaust geta svarað neitandi. „Við undirbúning rannsóknarinnar voru gerðar mjög strangar aðferðafræðilegar og töl- fræðilegar kröfur, og þau lönd þar sem þær kröfur voru ekki uppfylltar eru sérstaklega merkt í skýrslunni eða koma alls ekki fram þar. Ég væri fyrstur manna til þess að setja fyrirvara við þessa niðurstöðu ef mér þætti ástæða til en svo er ekki í þessu tilviki. Nú er bara að þora að horfast í augu við niðurstöðuna og reyna að bregðast við,“ segir hann. Strangt gæðaeftirlit Einar segir að aldrei hafi verið staðið jafn vel að aðferðafræðilegum hluta svona rannsóknar eins og nú og strangt gæðaeftirlit hafí verið á Öllum stigum rannsóknarinnar. „Þannig að ég fullyrði að menn geti varið tíma sínum betur með því að skoða niðurstöðurnar heldur en að efast um þær.“ í sambærilegri rannsókn á læsi grunnskólanemenda sem gerð var fyrir nokkrum árum komu íslenskir nemendur tiltölulega vel út en þar voru Danir neðarlega. Þó að útkoma þeirra sé ekki góð í raungreinarann- sókninni nú hrósa þeir happi yfir því að standa sig þó skár í henni en í læsisrannsókninni. Einar segir að þegar rannsóknirnar tvær, á læsi og raungreinakunnáttu, séu skoð- aðar í samhengi, fari myndin af ís- lenska skólakerfmu að skýrast. „Við þekkjum það að móðurmáls- og lestrarkennslan er byggð á miklu traustari grunni en raungreinarnar og þar ríkir ákveðin hefð, ekki bara í skólum heldur líka á íslenskum heimilum," segir hann. Tekur 10-15 ár að komast út úr þessu Spurður um samanburð við Dani segir Einar að nú verði íslendingar að endurskoða hvert þeir sæki fyrir- myndir að menntakerfinu. „Við verð- um að stilla strengina upp á nýtt miðað við þá stöðu sem upp er kom- in og þéssar nýju upplýsingar, bæði um okkur sjálf og aðrar þjóðir. Fyr- ir okkur íslendinga mun það taka 10—15 ár að komast út úr þessu ef við gerum það af krafti og með markvissum hætti," segir Einar að lokum. Morgunblaðið/Ásdís HALLDÓR Ásgrimsson formaður og Guðmundur Bjarnason varaformaður Framsóknarflokksins stinga saman nefjum. Umræður á flokksþingi framsóknarmanna Krafizt sam- tímagreiðslna Á FLOKKSÞINGI framsóknar- manna, sem var fram haldið í gær á Hótel Sögu og lýkur í dag með kjöri í æðstu embætti flokksins, var titringur áberandi vegna mál- efna Lánasjóðs íslenzkra náms- manna, en samkomulag ríkis- stjómarflokkanna um endurskoð- un á lögum um sjóðinn virðist vera eitt erfiðasta málið í samstarfi þeirra. Valgerður Sverrisdóttir, formaður þingflokks framsóknar- manna, segist vonast til að lausn finnist á deilunni í vikunni. í drögum að ályktun flokksþings- ins um málið er sú stefna Fram- sóknarflokksins áréttuð, að hann vilji taka upp samtímagreiðslur á ný og lækka endurgreiðslubyrði námslána í 4,5%. Að sögn Árna Gunnarssonar, aðstoðarmanns fé- lagsmálaráðherra, sem stýrir starfí menntamálanefndar flokksþings- ins, leggur nefndin til að flokks- þingið lýsi yfír afdráttarlausum stuðningi við fulltrúa flokksins í starfi nefndar menntamálaráð- herra, sem unnið hefur að tillögum um endurskoðun Lánasjóðsins. Hinu sama lýsa samtök ungra framsóknarmanna yfír, í nýrri ályktun þar að lútandi. í henni seg- ir einnig, að „tími eftirgjafar og þolinmæði gagnvart Sjálfstæðis- flokknum" sé liðinn. Einungis þurfí pólitískan vilja til að „rétta hlut íslenzkra námsmanna". Bæði í yfirlýsingu ungliðanna og í máli nokkurra þingfulltrúa í almennum stjómmálaumræðum í gærmorgun er sú skoðun áréttuð, að ungt fólk hafi margt kosið flokkinn í síðustu kosningum vegna loforða hans um forgang menntamála. Hjálmar Árnason al- þingismaður, sem situr i LÍN- nefndinni, undirstrikaði mikilvægi þess, að Framsóknarflokkurinn léti gjörðir fylgja orðum um forgang menntamála, sem þýddi að aukið fé yrði að leggja í menntamálin. Halldór Ásgrímsson sagði for- sendu þess, að hægt væri að leggja meira fé til menntamála, að skapað yrði svigrúm til þess með auknum hagvexti, en nú virtist vera gott lag til þess, þar sem stefna ríkis- stjómarinnar um 3% árlegan hag- vöxt fram að aldamótum ætti að ganga eftir. Rit til heiðurs Sigurjóni Björnssyni SIGURJÓN Björnsson, prófessor, verður sjötugur á morgun 25. nóvem- ber. Af því .tilefni mun Hið íslenzka bókmenntafélag gefa út á vormán- uðum afmælisrit honum til heiðurs. Margir munu leggja fram skerf til ritsins, skáld og fræðimenn og efni þess verður fjöl- breytt; skáldskap- Siguijón Byssur gerðar upptækar ur, ritgerðir um mál og menningu, sögu og bókmenntir, svo að nokkuð sé nefnt. Ritnefnd skipa: Guðrún Kvaran, Kristján Karlsson og Sverrir Kristinsson, en ritstjóri er Sölvi Sveinsson. Siguijón Björnsson á að baki fjöl- breyttan kennsluferil á öllum skóla- stigum og hann hefur setið í stjórn flölmargra félaga og stofnana. Eftir hann liggja mörg rit og ritgerðir á ýmsum fræðasviðum, sálfræði, upp- eldisfræði, sagnfræði og um bók- menntir. -------♦ ♦ ♦----------- í \ í HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær mann til greiðslu 50 þúsund krónur sektar og til að sæta upptöku tveggja skammbyssa, auk þess sem honum er gert að greiða samtals 60 þúsund krónur í máls- kostnað. Forsaga málsins var sú, að lög- reglan var kölluð að húsi í miðborg- inni í ágúst í fyrra vegna innbrots. í ljós kom að fjöldi skotvopna og skotfæra var í íbúðinni. íbúðareig- andinn hafði leyfí fyrir 14 vopnum, en af þeim fundust ekki 6, en 7 óskráð vopn reyndust vera í íbúðinni og lagði lögreglan hald á þau. Dómarinn taldi manninn hafa gerst brotlegan með því að hafa lát- ið undir höfuð leggjast að fá tilskilin leyfí, auk þess sem hann hefði ekki geymt skotvopn og skotfæri í að- skildum, læstum hirslum. k » i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.