Morgunblaðið - 24.11.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 24.11.1996, Blaðsíða 39
f MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996 39 I I j j I 1 J I 1 I < í < < < i < < < < < < < < i \ < < < GUÐMUNDUR JÓNSSON Guðmundur Jónsson frá Húsanesi í Breiðu- vík fæddist í Lýsud- al í Staðarsveit hinn 12. apríl 1924. Hann lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 14. október síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Jón Lár- usson, bóndi í Húsa- nesi, f. 24.11. 1871, d. 2.2. 1959, og Sig- ríður Oddrún Jóns- dóttir, f. 9.7. 1887, d. 10.11. 1968. Systkini Guðmundar voru átta. Tvö dóu í æsku, en fimm þeirra eru á lífi. Guðmundur var í sambúð með Þyrí Jónsdóttur, f. 19. sept. 1934. Þyrí missti fyrri mann sinn 1978, en hún átti með honum fimm börn. Guð- mundur átti eina dóttur, Lindu Björk, f. 15. 11. 1967. Útför Guðmund- ar fór fram í kyrr- þey að ósk hins látna. Með örfáum orðum langar mig að minnast Guðmundar, bróður míns. Gummi fór snemma að heim- an til að vinna fyrir sér en ekki síður svo hann mætti verða foreldr- um sínum að liði með aðstoð við æskuheimili sitt. Á veturna fór hann á vertíðir til Ólafsvíkur eða suður með sjó en kom heim á vor- in til að aðstoða foreldra sína við búskapinn í Húsanesi. Hann að- stoðaði við uppbyggingu húsa, ræktun túna og heyskap með öllu því sem hann gat látið í té. Gummi var ákaflega vinnusam- ur að eðlisfari. Við byggingu ál- versins í lok sjöunda áratugarins varð hann fyrir vinnuslysi sem Formáli m i n n i ngargreina. ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka, og börn, skóla- göngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Listmunir til gjafa eftir sjö listakonur í ^nSILFURBÚÐIN Kringlunni 8-12* Sími 568 9066 - Þar fcerÖu gjöfina - undirfataverslun Glæsibæ • sími: 588 5575 Opið mánud.- föstud 10-19 • laugard. 10-16 IJCTBBStJOa Gufuneskirkjugarður Leiðalýsingar frá 1. sunnudegi í aðventu til 13. dags jóla 'ffacttýckc eý fíá úeicot á/íccya Rafþjónustan Ljós ehf. Klapparberg 17 • 111 Reykjavík MINNINGAR HERDÍS MA TTHILDUR MARTEINSDÓTTIR skerti starfsþrek hans verulega. Eftir langan tíma jafnaði hann sig að nokkru leyti og tók þá til við róðra á handfærabátum, lengst af frá Arnarstapa. Gummi hafði létta lund, var snöggur til svars og fund- vís á spaugilegar hiiðar lífsins en vildi láta lítið fyrir sér fara. Hirðu- semi hans og snyrtimennsku var viðbrugðið, allt skyldi hafa sinn stað, hreinan og snyrtilegan. Ein- kenni hans voru hjálpsemi og fórn- fýsi en jafnframt var hann ósveigj- anlegur þegar ákvörðun hafði ver- ið tekin. Gott dæmi um það var þegar mamma eignaðist dreng, en þá var Gummi þriggja ára. Ljós- móðirin, sem kom heim eins og þá var siður, sagði honum að nú yrði hann að láta holuna sína og pelann af hendi til litla bróður sem nýkominn var í heiminn. Um kvöld- ið þegar hann átti að fara að sofa, harðneitaði hann hvorutveggja, pelanum og holunni, sagðist vera búinn að gefa litla bróður sínum og hvorugt yrði aftur tekið. Þann- ig var hann, fús til að leggja sitt af mörkum og taldi ekkert eftir sér. Hans gæfuspor voru þegar hann kynntist Þyrí Jónsdóttur og hóf sambúð með henni árið 1982. Þyrí átti lítið sumarhús norður í Eyja- firði, en þar var þeirra sælureitur á sumrin. Þar tóku þau höndum saman við að dytta að, hirða og snyrta og halda öllu í sem bestu horfi. Þau voru mjög samhent í því sem öðru. Þyrí var Gumma stoð og stytta í hans erfiðu veikind- um og séu henni þakkir færðar fyrir það. Kæri bróðir, ég þakka þér sam- fylgdina, snúningana og fórnfýsina sem þú sýndir mér. Megi góður Guð vera þér náðugur og styrkja Þyrí í sorg sinni. Þín systir Jónína P. Jónsdóttir. + Herdís Matt- hildur Mar- teinsdóttir var fædd í Stykkis- hólmi 6. júlí 1917. Hún andaðist 13. nóvember 1996 á heimili sínu, Aust- urbrún 6. Foreldrar hennar voru Mar- teinn Jóhann Lár- usson, f. 17. des. 1892, d. 3. júní 1970, og Helga Anna Pálsdóttir, f. 6. nóv. 1892, d. 6. sept. 1920. Sljúp- móðir Herdísar var Jóna Anna Björnsdóttir, f. 6. apríl 1905, Elsku Dísa frænka. Hver hefði trúað því fyrir tveim- ur vikum er við sáum kvikmyndina Djöflaeyjan, að það yrði í síðasta sinn sem ég sæi þig á lífi? Það er svo ótrúlegt að ég eigi ekki eftir að hitta þig oftar, ein- mitt núna þegar jólin nálgast og ég var vön að heimsækja þig og snyrta þig svolítið. Þú áttir við erfið veikindi að stríða og oft leið þér illa, en alltaf var ég velkomin í heimsókn og boðið upp á ís og konfekt eða ljúf- fengu Dísu-pönnukökurnar, sem ég mun seint gleyma. Það var gaman að skiptast á skoðunum við þig því þær hafðir þú ákveðnar og er ekki oft sem ég læt í minni pokann f rökræðum, en fyrir þér oft og iðulega. Þú d. 13. sept. 1992. Al- systir Herdísar er Lára Kristín Mar- teinsdóttir Wiken. Systkini hennar sam- feðra eru: Guðmund- ur Marteinsson, Heið- ar Bergmann Mar- teinsson, Jóhann Sól- berg Marteinsson og Hulda Jenný Mar- teinsdóttir. Herdís giftist 12. október 1939 Vilbert K. Zakaríassyni, f. 28. nóv. 1900, d. 6. ágúst 1983. Utför Herdísar fór fram frá Áskirkju 22. nóvember. varst svo fróð um margt og þekkt- ir svo ótrúlega marga. Þú varst mikil listakona og það eru ófáir fallegir heklaðir eða málaðir dúkarnir sem skarta á heimilum okkar ættingjanna, og ekki má gleyma keramikskálunum og bökkunum sem þú svo listilega gerðir. Já, ég á svo sannarlega eftir að sakna þess að geta ekki „dropp- að“ inn til að ræða málin. En ég hef trú á því að guð muni annast þig vel og nú ertu laus undan þján- ingum þeim sem lágðar voru á þig. Þú munt lifa í minningu minni. Hvíldu í friði, elsku Dísa. Þín frænka, Guðfríður Anna Jóhannsdóttir. Fullbúnar ibúðir á frábæru verði. Tilbúnar til afhendingar nú þegar nokkrar 3ja herbergja íbúðir í sérflokki á einum besta stað í Hafnarfirði, rétt við Suðurbæjarlaugina. Nokkrar íbúðanna henta mjög vel fyrir eldri borgara. Allt fuHfrágengið nú þegar bæði úti og inni. Sjón er sögu ríkari. Ath. að húsið er einangrað og klætt að utan og því nánast viðhaldsfrítt. Viðerumkommríjólaskap - verð og greiðslukjör því aldrei hagstœðari. Allar frekari upplýsingar í símum 565 5261 og 565 0644. Fax 565 0645. Sigurður & Júlíus ehf.f Reykjavíkurvegi 60, Hafnarfirði. €>® €>€> €>€> €>€> o €> €>« % €> €>« €>€>_« €> €> €>€> €>® e Símar 587 4422 587 4423
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.