Morgunblaðið - 24.11.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.11.1996, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ HEIMILIN VERÐA AÐ TAKA SIG Á Þeir sem umgangast unglinga daglega eru ekki á því að ofbeldis- verkum hafi fjölgað né að þau séu grófari, en líklega hafi þau færst neðar í aldurshópa. Þeg- ar Hildur Friðriks- dóttir grennslaðist fyrir komst hún að því að ofbeldi unglinga er angi af samfélaginu í heild; fjölskyldustefnu, at- vinnumöguleikum, sam- skiptum, siðferðis- kennd, uppeldisáhrifum, fjölskyldutengslum o.fi. Skólarnir segjast geta stutt fjölskyldur en benda á að nemendur séu 85% tímans á ári hverju utan skólans ÞAÐ ERU frímínútur. Tvö böm, um það bil 8-9 ára, eru að flúskrast í snjónum, allt í góðu. Stúikan hefur yfirhönd- ina og heldur stráknum niðri meðan vinkona hennar stendur álengdar og horfír á. Hann berst um og reyn- ir að sleppa en tekst ekki, stúlkan hefur greinilega yfirburði. Allt í einu stígur hin stúlkan nokkur skref fram og sparkar hálfhikandi í öxl drengs- ins. Ekki fast, heldur eins og til að prófa. Ég snarstoppa og spyr höst- uglega hvort hún sé virkilega að sparka í liggjandi mann. Hún lítur skömmustuleg upp og hleypur í burtu. Þessi atburður átti sér stað á skólalóð fyrir ári og hefur oft kom- ið upp í huga blaðamanns. Tilfinn- ingin var sú að stúlkan vissi að hún var að gera rangt, en hana langaði bara svo óskaplega mikið til að prófa. Hvers vegna hafði hún löngun til þess og hvað rak hana áfram? Af hveiju er ofbeldi orðið harðara en það var? Af hveiju ganga ungl- ingar með hníf á sér og hika ekki við að beita honum á jafnaldra sína? Hver er undirrót ofbeldis? Getum við dregið úr því áður en í algjört óefni er komið og til hvaða úrræða er hægt að grípa? Vilja menn sporna við? Ljóst er að margir eru uggandi í þjóðfélaginu yfir auknu ofbeldi og því er spurningin hvort nú sé svo komið að menn hafi vilja til að sporna við. Vitað er að með sam- stilltu átaki foreldra, lögreglu og skóla er hægt að gera stórvirki eins og sannast best varðandi útivistar- tíma. Fyrir aðeins ári var algeng sjón að sjá unglinga allt niður í 12-13 ára í miðbænum um helgar. Að sögn Iögreglu er þetta ekki vandamál lengur. Má tvímælalaust þakka það herferð lögreglu með þátttöku foreldra og skóla. Ómar Smári Ármannsson aðstoð- aryfirlögregluþjónn tekur undir að samstillt átak foreldra, bama, skóla, lögreglu og félagsmálayfirvalda geti haft veruleg áhrif. „Það þarf að Morgunblaðið/Úr myndasafni Börnum með hegðunar- truflanir líður ekki vel VALGERÐUR Baldursdóttir yfir- læknir á Barna- og unglingageð- deild segir að fjöldi stórra rann- sókna renni stoðum undir þá kenn- ingu að rætur ofbeldis manna liggi í æsku þeirra. „Samfella í árásar- gjarnri hegðun frá bernsku til fullorðinsára er staðreynd sem samfélagið verður að horfast í augu við. Gera verður ráðstafanir til að draga úr slíkri óheillaþróun hjá börnum, ef nokkur kostur er,“ segir hún. Vinna verður með samskipti þar sem börn koma saman Hún segir að ofbeldisfull hegð- un sé fiókið fyrirbæri og fjöldi kenninga séu til um orsakir þess, meðal annars byggðar á sálræn- um, líffræðilegum og félagslegum þáttum. Mikilvægt sé að bregðast strax við árásargjarnri hegðun ungra barna og reyna að koma í veg fyrir að hegðunin fái að halda áfram og þar með, oftast, að versna. „Sjálfsagt mál ætti að vera að vinna með samskipti barna hvar sem þau koma saman í hóp- um svo sem í leikskólum oggrunn- skólum. Likur á að þessari nei- kvæðu þróun megi snúa við eru mun meiri í upphafi en síðar eftir að hegðunin hefur þróast til verri vegar í mörg ár,“ segir Valgerður og bætir við að erfitt sé fyrir for- eldra að ná tökum á uppeidi barna sinna og fá einhveiju ráðið um hegðun þeirra við 15 ára aldur, hafi ekki verið tekið markvisst á óæskilegri hegðun þeirra fyrr.“ Hún tekur einnig fram að þegar foreldrahlutverkinu sé ekki sinnt á fullnægjandi hátt, hegðunar- truflanir ekki meðhöndlaðar, sjálfsmynd barnsins sé lág og þrot í skóla staðreynd, hafi menn í höndunum þætti sem oft eru til staðar hjá þeim sem vaxa upp til þátttöku í afbrotum, ofbeldi og hvers kyns andfélagslegri hegðun sem fullorðnir einstaklingar. Mikil áhersla sé nú lögð á að kanna hvemig hægt er að grípa inn í þessa óheillaþróun hegðunartruf- lana með sem minnstum tilkostn- aði og sem mestum árangri. Árásarhneigðin greinist strax í æsku Valgerður segir að hegðunar- truflanir með árásarhneigð sé hægt að greina hjá börnum allt niður í forskólaaldur. Þegar slík hegðun sé tíðari en almennt gerist sé það hættumerki sem full ástæða sé til að vera vakandi yfir. Bendi sömuleiðis viðtöl við foreldra til truflunar í tengslum milli þeirra og barnanna og erfiðleika af sama toga heima séu þar vísbendingar sem beri að taka alvarlega. „Börn í fyrstu bekkjum grunnskóla eru ósjaldan komin með margvíslega hegðun sem myndi teljast andfé- lagsleg hjá þeim sem eldri eru. Það sem helst virðist hjálpa er að vinna með barnið í gegnum for- eldrana. En þar sem foreldrar þessara barna eru hlutfallslega oftar óöruggari í hlutverki sínu en aðrir eða af öðrum orsökum ráða ekki fyllilega við að sinna foreldrahlutverkinu, er um víta- hring að ræða. Til að komast út úr honum getur þurft öflug stuðn- inssúrræði fyrir foreldrana," seg- ir hún. Hún segir að hegðunartruflanir og árásargirni komi meira fyrir í fjölskyldum undir álagi, en bendir á að þar fyrir utan sé ofvirkni nyog algeng orsök óróa og ein- beitingarskorts hjá börnum. Þar séu hegðunartruflanir mikill fylgifiskur. Mikilvægt sé að grípa snemma inn og fylgja því eftir gegnum alla bernsku barnsins, þurfi þess með, og þar þurfi for- eldrar mikinn stuðning. Sömuleið- is þurfi að grípa flptt inn í þegar upp komi ný vandamál. Þjónusta ílágmarki Valgerður segir að því miður sé þjónusta við börn með hegð- unartruflanir í lágmarki hér á landi eins og gildi reyndar um hvers kyns geðræn vandkvæði barna. Að máli hvers barns þurfi margir fagaðilar að koma og fátt sé hægt að laga með tækjum eða lyfjum. „Skoða þarf ítarlega líf barnsins frá mörgum sjónarhorn- um og síðan vinna að því að hafa áhrif á þroska- og lífsskilyrði þess í heild. Börn eru fyrst og fremst tilfinningaverur, en Iítið fer fyrir þeirri sýn í umfjöllun um börn. Ef til vill segir það okkur eitthvað um stöðu barna almennt í saman- burði við fullorðna að allt að því aukaatriði virðist vera hvemig þeim líður. Hitt er ljóst að böraum með hegðunartruflanir líður ekki vel.“ virkja samstarf þessara aðila eins og kostur er,“ segir hann og bendir á að hver um sig búi yfir ákveðnum upplýsingum, sem þeim fínnist kannski ekki gefa nægilegt tilefni til að bregðast við. Þegar þessir hópar beri saman bækur sínar og komi upplýsingum á milli skapist grundvöllur til aðgerða. Hann bend- ir á að almenningur njóti einnig góðs af sem hafi aftur jákvæð áhrif á börnin því það sé ekki eðli þeirra að vilja skera sig úr. í samtölum við þá sem umgang- ast unglinga daglega kom í ljós að menn eru ekki endilega sammála því að ofbeldi meðal þeirra sé grimmara né tíðara en það var fyr- ir 5-10 árum. Ómar Smári kveðst eiga í fórum sínum fulla möppu af blaðaúrklippum af ofbeldismálum frá árunum 1989-90. Á þeim tíma voru spörk í liggjandi menn og kar- atespörk einkennandi. Hann segir þjóðfélagið vera síbreytilegt og vegna umfjöllunarinnar á sínum tíma hafi flestir sem þá voru á mótunarskeiði tekið þá afstöðu að forðast ofbeldi. Nú sé nýr hópur að vaxa upp sem hafí ekki sérstaklega verið inni í þessari umræðu og þann- ig gangi samfélagið í bylgjum. I sama streng tekur Áskell Orn Kára- son, forstöðumaður Stuðla, sem starfað hefur um 10 ár með ungling- um. Hann bendir á að dæmi um hnífaárásir hafi einnig verið uppi áður. Menn benda hins vegar á að þar sem neysla áfengis og fíkniefna hafi færst neðar í aldurshópa hafi alvarlegt ofbeldi gert það iíka. Áhrif myndbanda Flestir voru á því að ofbeldisfull myndbönd slævðu hugsun og við- brögð fólks lenti það í þeim aðstæð- um að horfa upp á raunverulegt ofbeldi. Ómar Smári var einn þeirra sem benti á að siðferðiskennd sumra barna virtist hafa mótast af mynd- böndum og háttsemi þeirra tæki mið af því. Hjá þeim sé ekkert til- tökumál þó kýlt sé þannig að blæði úr eða hnífar séu notaðir til að ógna. Hann tekur þó fram að hér sé að- eins um lítið brot af heildinni að ræða. Daníel Gunnarsson, skóla- stjóri Ölduselsskóla, segir að þegar valkostur númer eitt hjá fjölskyldu sé að sitja fyrir framan sjónvarp eða tölvuleiki öll kvöld og um helgar sé augljóst að fátt sé um heilbrigða tómstudaiðju eða áhugamál. „í þeim tilvikum fara myndbönd að hafa áhrif á barnssálina sem verður mót- tækileg þegar ekkert annað er til að þroska hana. Óheft sjónvarps- gláp er afleiðing þess að foreldrar geri sér ekki ljóst að barn þurfi uppeldi og að uppeldi er verkefni." Haraldur Finnsson, skólastjóri Réttarholtsskóla, segir að hann hafi fundið fyrir breytingu og afstöðu til ofbeldis þegar myndböndin voru að halda sem mest innreið sína í þjóðfélagið á árunum fyrir 1990. „Við getum kannski ekki haldið unglingunum frá því að horfa á of- beldismyndir en ég held að megin- máli skipti að foreldarnir ræði við börnin um mismun á ofbeldi í kvik- myndum og raunverulegu ofbeldi, jafnvel láti sig hafa að horfa á mynd með þeim og ræða síðan um hana.“ Sammerkt var með öllum viðmæl- endum blaðsins að þeir töldu ofbeldi afleiðingu margþættra aðstæðna og tóku fram að menn skyldu varast að alhæfa í þessum efnum. Niður- staðan var því sú að unglingar sem beittu ofbeldi ættu venjulega við annan frumvanda að etja. Þannig verður ofbeldið afleiðing ákveðinna aðstæðna, t.d. neyslu áfengis- og fíkniefna, hvemig þeir bregðast við þjóðfélaginu og þar með skólanum. Undirrót ofbeldis getur líka átt sér stoð í uppeldisleysi í slíku neysluum- hverfí eða vegna geðrænna vanda- mála. „Aukið álag og streita veldur al- mennt auknu ofbeldi í þjóðfélaginu og ein birtingarmynd streitunnar er aukin árásarhneigð sem eru varnar- viðbrögð. Svo er eitthvað auðvitað lært af kvikmyndum og sjónvarpi," segir Ragnar Gíslason, skólastjóra Foldaskóla. Hann tekur íþróttir sem dæmi þar sem árásarhneigð birtist að því er í fljótu bragði virðist sak- leysislegt. „Það að sigra verður upp- haf og endir alls. Maður sér myndir af litlum strákum sem öskra eins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.