Morgunblaðið - 08.06.1999, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 08.06.1999, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 8. JIJNÍ 1999 49 FRIÐGEIR ÞORSTEINSSON + Friðgeir Þor- steinsson fædd- ist í Þorsteinshúsi í Kirkjubólsþorpi í Stöðvarfirði 10. febrúar 1910. Hann iést á St. Jósefsspít- ala í Hafnarfirði 31. maí síðastliðinn. Foreidrar hans voru Þorsteinn Þorsteins- son Mýrmann, bóndi og oddviti á Óseyri við Stöðvarfjörð, f.12.5. 1874, d. 28.9. 1943, og Guðríður Guttormsdóttir hús- móðir, f. 30.4. 1883, d. 27.1. 1975. Systkini: 1) Skúli, f. 24.12. 1906, d. 1973. 2) Pálína, f. 28.1. 1908. 3) Halldór, f. 23.7. 1912, d. 1983. 4) Anna, f. 15.4. 1915. 5) Björn, f. 20.5 1916, d. 1939. 6) Pétur, f. 4.1. 1921, d. 1993. Frið- geir kvæntist hinn 10.12 1930 Elsu Jónu Sveinsdóttur, f. 7.8. 1912, d. 20.12. 1978. Foreldrar Elsu voru Sveinn Björgólfsson, Elsku afi minn, ég fékk að kveðja þig. Ég vissi síðast þegar ég sá þig að dvölin þín hér færi að styttast, þú yrðir farinn þegar ég kæmi næst. Hugurinn ber mig austur á Stöðv- arfjörð í lítið byggðarlag í undur fal- legu umhverfi þar sm hann ólst upp og bjó alla tíð þar til hann gamall maður treysti sér ekki lengur að vera einn og flutti á Hrafnistu í Haíharfirði. Á Stöðvarfirði byggðu menn af- komu sínu á gjöfum lands og sjávar. Hann var útvegsbóndi eins og það var kallað og fór fljótt að taka þátt i sveitarstjórnarmálum. Byggðin óx og verkefnin voru mörg. Hann var ungur skipaður formað- ur skólanefndar og kosinn í hrepps- nefnd 1937. 1940 var hann kosinn oddviti og gegndi því embætti í ára- tugi. Afi var sannur samvinnumaður og einn af stoftiendum Kaupfélags Stöðvarfjarðai’. Árið 1967 tók hann við Umboðsskrifstoíú Samvinnu- bankans og gegndi því starfi í 10 ár. Hér er aðeins stiklað á stóru um störf afa en sýnir glöggt að holl hönd er hamingja byggðar. Þar fór maður sem bar óeigingjama ást til þeirrar byggðar sem ól hann frá bemsku og bar hag hennar alltaf fyrir bijósti. Það er ekki hægt að hugsa um afa öðravísi en minnast líka Elsu ömmu. Amma og afi í Árbæ, urmull af bama- bömum æðandi út og inn. Aldrei var amast við okkur þótt lætin væra mik- il. Og rúgbrauðið. Einhvem veginn var það svo að á sunnudögum þegar von var á „öllum“ átti amma alltaf ný- bakað heitt og stórt rúgbrauð, það besta í öllum heiminum. Hún smurði, skar og gaf okkur, ég finn ennþá lykt- ina og bragðið. Afi gekk um gólf. Ótal minningar skjóta upp kollin- um sem ekki er hægt að tíunda hér en allar era góðar og þakklæti efst í huga. í Árbæ leið mér alltaf vel. Við misstum öll mikið þegar amma dó alltof fljótt, afi þó mest. Hann sagði mér að við hana hafi hann getað rætt alla hluti, hann missti besta vin- inn og félagann. Amma var víðlesin útvegsbóndi að Bæj- arstöðum í Stöðvar- firði og Svanhvít Pét- ursdóttir húsmóðir. Elsa og Friðgeir bjuggu lengst af í Ár- bæ í Stöðvarfirði. Börn þeirra: 1) Guð- jón, f. 13.6. 1929, d. 13.9. 1986. Eftirlif- andi kona hans er Ás- dís Magnúsdóttir. Börn þeirra eru sex. Guðjón átti auk þess son. 2) Örn, f. 24.4. 1931, kvæntur Hall- beru Isleifsdóttur og eiga þau fjögur börn. 3) Sveinn Víðir, f. 13.7. 1932, kvæntur Nönnu Ingólfsdóttur. Þau eiga þrjá syni en dóttir þeirra, Elsa Kristín, lést img. 4) Þórólfur, f. 4.2. 1935, kvæntur Kristínu Hall- dórsdóttur og eiga þau tvær dæt- ur. 5) Guðríður, f. 10.6. 1937, gift Birni Pálssyni og eiga þau 4 börn. 6) Björn, f. 18.4. 1951, kvæntur Ástu Gunnarsdóttur og eiga þau 2 og greind, hafði brennandi áhuga á öllu lífi og náttúrunni í kringum sig. Hugurinn ber mig líka til ársins 1993 þegar við afi dvöldum saman á Reykjalundi í nokkrar vikur. Hann 50 áram eldri, en miklu sprækari en ég. Þar tengdumst við nánari bönd- um sem hafa verið mér ómetanleg síðan. Þar höfðum við tíma til að spjalla og kynnast hvort öðra á allt annan hátt en áður. Elsku afi, við töluðum stundum um lífið og tilgang þess, - og dauð- ann. Við voram ekki alltaf sammála, en það er allt í lagi, þú ert búinn að komast að því núna að ég hafði rétt fyrir mér. Almættið lofar okkur áframhald- andi tilvera og nú ert þú genginn inn í eitt af hinum mörgu hýbýlum Guðs. Afi var orðinn 89 ára gamall, heilsu hans hrakaði ört síðasta árið. Dauðinn er óumflýjanlegur og oft lausn þreyttri sál. í mínum huga er hann ef til vill sjálfur kjami lífsins. Ó Guð minn. Ó þú, sem fyrirgefur syndir okkar, gefur okkur gjafir, eyðir sorgum okkar. Sannlega bið ég þig að fyrirgefa syndir þeirra, sem hafa afklæðst jarðnesk- um lfkömum sínum og haldið til æðri heims. Ó Drottinn minn, hreinsa þá af mis- gjörðum, dreif soigum þeirra og snú myrkri þeirra í Ijós. Lát þá ganga í garð hamingjunnar, þvo þá með tærasta vatni og gef að þeir megi h'ta dýrð þína á hinu hæsta fjahi. ('Abdu’l-Bahá) Elsku pabbi og mamma og allir að- standendur. Hjartans kveðja og góð- ur hugur fylgir ykkur frá Svenna, Dodda og Halldóri sem verða ekki viðstaddir síðasta spölinn hans afa. Ágústa Þórólfsdóttir, Hm'fsdal. Nú er elskulegur tengdafaðir minn, Friðgeir Þorsteinsson, lagður af stað í ferðina síðustu sem hann var farinn að bíða svo eftir. Og við sem vissum að tíminn styttist og héldum að við væram tilbúin, finnum að svo var ekki. Sársauki og söknuð- SIGRÚN BJÖRNSDÓTTIR + Sigrún Björnsdóttir fæddist á Efstu-Grund, Vestur-Eyja- fjöllum, 31. maí 1916. Hún lést 26. maí síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði 2. júní. Ég vill með nokkram orðum kveðja hana elsku'ömmu mína. Mað- ur var alltaf velkomin heim til henn- ar í Álfaskeiðið þar sem hún tók á móti manni með opnum örmum. Ég gleymi aldrei þegar við komum til hennar á sunnudögum og fengum pönnukökur, ég finn bragðið af sultu og rjóma enn í dag. Eins var það þegar við krakkamir tíndum fífla í garðinum sem við síðan settum í glös í eldhúsinu. Allt sem mér dettur í hug í dag era allar hamingjustund- imar hjá ömmu og afa í Álfaskeiðinu. Amma Sigrún er sú amma sem börn- in mín fá að kynnast í fallegustu sögubókunum. Að koma til íslands á aldrei eftir að verða það sama þegar amma mín er farin að mæta honum afa mínum. Ég vil með þessari bæn sem þú, amma, kenndir mér, bjóða góða nótt. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (H. Pétursson) Erla Björg. börn. Bjöm á auk þess dóttur. Friðgeir ólst upp á Óseyri. Ilann stundaði nám hjá afa sin- um, séra Guttormi í Stöð, og í alþýðuskólanum á Laugum 1928-29. Frá tvítugsaldri og til ársins 1967 var hann útvegs- bóndi í Stöðvarfirði og formaður á eigin bátum 1940-70. Hann var forstöðumaður umboðsskrifstofú Samvinnubankans og síðar úti- bússtjóri 1967-77. Friðgeir gegndi ýmsum trúnaðarstörfum um ævina. Hann sat i stjórn Kaupfélags Stöðfirðinga 1936- 1970, í hreppsnefnd 1937- 70 og var oddviti hreppsins 1940-70. Hann var sýslunefndar- maður 1943-70, fulltrúi á Fiski- þingum frá 1949-79 og í stjóm Sambands fiskideilda Austfjarða um langt árabil. Friðgeir var gerður að heiðursborgara Stöðv- arhrepps á 100 ára verslunaraf- mæli hreppsins 1996. Sfðustu æviárin dvaldi Friðgeir á Hrafn- istu í Hafnarfirði. Minningarathöfn um Friðgeir fór fram í Fossvogskirkju laug- ardaginn 5. júní og útför hans verður gerð frá Stöðvarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14.30. Jarðsett verður í kirkju- garðinum að Stöð í Stöðvarfirði. ur nístir hjörtu. Samverastundir rifj- ast upp og minningar streyma fram. Hugurinn fylhst þakklæti. Þakklæti fyrir alla væntumþykjuna. Tengdafaðir minn var góður maður og greindur. Hann var traustur, fyr- irhyggjusamur og sjálfstæður og vildi sem minnst vera upp á aðra kominn. Hann var félagslyndur og lundin var létt. Mestan hluta ævinnar var hann sístarfandi og féO iðjuleysi illa. Þá var ekki háttur hans að geyma til morg- uns það sem hægt var að gera í dag. Starf útvegsbóndans var krefjandi. Krafðist þekkingar á láði og legi, veðrum og vindum, tólum og tækjum. Hann lifði líka miklar breytingar og era ógleymanlegar stundimar þegar hann sagði okkur frá gömlum dögum. Af mönnum og skepnum, störfum og frístundum. Það var tengdafóður mínum mikið áfall þegar tengdamóðir mín, Elsa, lést aðeins 66 ára eftir stutt en erfið veikindi. Hann hafði þá stuttu áður hætt störfum í bankanum. Þau hjónin höfðu lengi hlakkað til að eiga rólegri daga, ferðast um landið og sinna öðr- um áhugamálum. Þá dáðist ég mjög að stillingu hans og skynsemi. Mér sýndi tengdafaðir minn um- hyggju og hlýju frá fyrstu stundu til hinnar síðustu. Hann sagði ekki margt en þeim mun betur fann ég væntumþykjuna og hlýjuna, ekki síst á efiðum stundum. Börnunum mín- um var hann hinn góði, hlýi og elsk- andi afi. Þeirra sorg er mikil að sjá á eftir báðum öfum sínum á rúmu hálfu ári. En dýrmætar minningar munu þau ávallt geyma í hjarta sér. Síðari árin dvaldi hann á Hrafn- istu í Hafnarfíði. Þessi ár vora hon- um nokkuð erfíð. Hann saknaði Stöðvarfjarðarins síns og iðjuleysið var honum þungbært. Þar naut hann góðrar umönnunar og færi ég starfs- fólkinu hjartans þakklæti. Ég kveð elskulegan tengdaföður minn með auðmjúku þakklæti. Blessuð sé minning hans. Ásta Gunnarsdóttir. Blómastofa Friðfinns Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, sími 553 1099. Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrir öll tilefni. Gjafavörur. CAMILLA BJARNASON + Camilla Bjarna- son fæddist 8. mars 1949. Hún lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði 7. maí síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ 17. maí. Þegar Camilla Bjamason féll frá og var jarðsungin var ég stödd erlendis. Ca- milla var frænka mannsins míns, Einars Knútsson- ar. Hún var ákaflega faUeg mann- vera en í senn fómarlamb og hetja og sem ég var mjög heppin að fá að kynnast náið. Lífið rak henni óvægið högg sem hún mætti með einstöku jafnaðargeði og stillingu. Hún tók þá ákvörðun þegar hún greindist með banvænan sjúkdóm, MND, að gera sem mest með þann tíma sem hún átti eftir ólifað. Hún vildi njóta lífsins tU fullnustu því annars myndi tími hennar líða líkt og hún væri þegar dáin. Þannig barðist hún af fullum krafti gegn því þunglyndi sem annars hefðu verið eðlfleg viðbrögð við þessum ógurlega vágesti sem rænir fólk smám saman allri stjóm yfir eigin líkama. Hún ferðaðist víða og síð- ustu ár sín sá hún og gerði margt skemmtflegt. Camilla var líka svo heppin. Hún átti marga vini og kærleiks- ríka fjölskyldu sem myndaði um hana sérstakan 35-40 manna stuðningshóp. Þessi hópur aðstoð- aði við umönnun hennar og síðasta eina og hálfa árið í lífi hennar var einhver með henni á hverjum degi. Hún sagði mér oft að hún gæti ekki ímyndað sér hvemig líf henn- ar hefði verið ef þessi hópur væri ekki til. Tilgangur hópsins var að defla umönnun hennar með- al margra þannig að nánustu fjölskyldu myndi ekki þrjóta krafta á þessu erfið- asta tímabfli. Camilla talaði um að henni liði eins og málverki sem væri að aflitast, að hún væri að tæmast, að týna , sjálfri sér og að það væri minna og minna af henni eftir. Með tímanum leið henni eins og áhorf- anda, sem hafði sífellt minna tfl málanna að leggja. Samt fannst mér að hugur hennar væri alltaf til staðar. Það var jafnan ánægjulegt og gefandi að spjalla við hana vegna þess að hún var opin, næm og í tengslum við tilfinningar sín- ar. Hún sýndi undantekningalaust áhuga á lífi og tilfinningum ann- arra, þrátt fyrir æ erfiðari kring- umstæður. Camilla gaf mér einstæða gjöf. Hún veitti mér innsýn í hina ís- lensku fjölskyldu mína sem enginn annar gerði á sama hátt, eins og því að deila með mér sögum af at- burðum sem áttu sér stað áður en ég fluttist tfl Islands. Camilla setti svo margt í samhengi sem hjálpaði mér að skflja betur þetta fólk sem er svo ólíkt frændfólki og fjöl- skyldu minni sem kemur úr allt öðrum menningarheimi. Við Ca- milla vorum á margan hátt mjög ólíkar en vegna hins nána sam- bands okkar skipti það engu máli. Við gátum talað og hlegið að svo J- mörgu í lífinu. Það voru forréttindi að eiga Camfllu sem trúnaðarvin. Ég sakna hennar mjög mikið og mun alltaf gera. Hope Knútsson. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minnihg@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. LEGSTEINAR í rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða. Hvergi meira úrval. Yfir 45 ára Verið velkomin til okkar, eða fáið myndalista. !| S.HELGASON HF STEINSMIDJA SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP. SÍMI 557 6677 / FAX 557 8410 + Við þökkum af alhug öllum þeim, er auðsýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, afa og langafa, SIGURMUNDAR JÖRUNDSSONAR skipstjóra, Sólbakka, Bíldudal. Guðbjörg Guðmundsdóttir, Erla Sigurmundsdóttir, Guðmundur Einarsson, Steinunn Sigurmundsdóttir, Sigríður Sigurmundsdóttir, Bjarni Sigurmundsson, Þuríður Sigurmundsdóttir, Ástvaldur H. Jónsson, Jórunn Sigurmundsdóttir, Kristberg Finnbogason, Freyja Sigurmundsdóttir, Karl Þór Þórisson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.