Morgunblaðið - 08.06.1999, Page 53

Morgunblaðið - 08.06.1999, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ PRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 53 Eigum fgrirliggjandi margar geröir af vönduðum pallhúsum fyrir ameríska og japanska pallbíla. Sérstaklega smíðuð fgrir íslenskar aðstæður. Hringið eða komið og fáið nánari upplysingar. ATVINNUBILAR FyRIRTÆKJAÞJÓNUSTA Grjótháls 1 Sfmi 575 1200 Söludeild 575 1225/575 1226 HYURDRI -/elinet Fegurðin kemur innan frá Laugovegi 4, sími 551 4473 Rekstrarleigusamningur Engin útborgun 27.724 kr. á mánuði Fjármögnunarleiga Utborgun 312.449 kr. 19.269 kr. á mánuði Rekstrarleiga er miðuð er við 36 mánuði og 20.000 km á ári. Fjármögnunarleiga er miðuð við 5 ár og 25% útborgun, greiðslur eru án vsk. Vsk.legst ofaná leigugreiðslur en viðkomandi fær hann endurgreiddan sé hann með skattskyldan rekstur.ÖII verð eru fyrir utan vsk. Ármúla 34, símar 553 7730 og 561 0450. Fréttir á Netinu úm> mbl.is A.LLTAP eiTTHVAO NÝTl UMRÆÐAN Kolkrabbinn hnyklar vöðvana LÍTIÐ en þrótt- mikið skipafélag, Atl- antsskip, hóf í fyrra farmflutninga milli Is- lands og Ameríku. Það er rekið af ungum mönnum sem beita nútímalegum aðferð- um sem minna skemmtilega á Flugfé- lagið Atlanta. Fyrir vikið hefur skipafélag- inu tekist að bjóða verulega lækkun á fragt milli landanna tveggja. A síðasta ári Össur hreppti það farmflutn- Skarphéðinsson inga fyrir Varnarliðið í útboði en Eimskipafélagið hafði þá áður á sinni könnu. Atlants- skipum hefur því tekist að koma á harðri samkeppni í farmflutning- Siglingar Afstaða utanríkisráðu- neytisins, segir Össur Skarphéðinsson, geng- ur þvert á anda frjálsr- ar samkeppni um milli íslands og Ameríku. Einsog jafnan er það lögmál slíkr- ar samkeppni að lækka vöruverð til neytandans. Nú bregður svo við að það er engu líkara en eigi að knésetja frumkvöðlana sem standa að Atl- antsskipum. Utanríkisráðuneytið afréð skyndilega að taka upp þá nýbreytni að láta sérstaka forvals- nefnd ákveða hvaða fyrirtæki megi bjóða í flutningana fyrir næsta ár. Forvalsnefndin komst að þeirri fráleitu niðurstöðu að Atlantsskip, sem sinnt hefur flutn- ingunum frá því á síðasta ári með miklum ágætum, fengi ekki að bjóða í flutningana. Láti Halldór Ásgrímsson, utanrík- isráðherra, þá ákvörð- un standa óhaggaða er því með einu pennastriki búið að knésetja nýjan og þróttmikinn vaxtar- brodd í íslenskri skipaútgerð, brjóta niður lífsnauðsynlega samkeppni á mikil- vægri flutningaleið, og afhenda Eimskipa- félaginu á silfurfati stærstan hluta farm- flutninga fyrir Varn- arliðið. Samkomulagið við Bandaríkjamenn Upphaflega sömdu Bandaríkja- menn við íslensk skipafélög um flutninga fyrir Varnarliðið. Arið 1984 krafðist hinsvegar banda- ríska skipafélagið Rainbow Na- vigation þess að fá flutningana með vísan í bandarískt lagaákvæði frá 1904. Þar er mælt svo fyrir að flutningar á vegum Bandaríkja- hers skuli vera í bandarískum höndum sé þess kostur. Bandarísk stjórnvöld töldu sér ekki stætt á að hafna kröfu félagsins og Rain- bow Navigation fékk því flutning- ana. íslensk stjórnvöld andmæltu þessu kröftuglega og töldu nauð- synlegt frá sjónarhóli öryggishags- muna landsins að íslensk skipafé- lög sinntu flutningum fyrir Varnar- liðið. Krafan var rökstudd með smæð markaðarins og mikilvægi skipaútgerðar fyrir þjóðina. Deil- unni lyktaði með því að Banda- ríkjamenn tóku verulegt tillit til sjónarmiða Islendinga og gert var samkomulag sem utanríkisráð- herrar landanna undirrituðu árið 1986. Það gerði ráð fyrir að skipafélög frá báðum löndunum gætu boðið í flutningana og skyldu 65% þeirra falla í hlut þess félags sem ætti lægsta tilboðið en 35% til félagsins sem ætti lægsta tilboðið frá hinu landinu. Flutningamir hafa síðan verið boðnir út og Eimskipafélagið sinnt hinum íslenska hluta þeirra öll þar- in utan eitt, 1992-93. f fyrra kom svo hið nýja félag, Atlantsskip, fram á sjónarsviðið og átti lang- lægsta tilboðið og fékk því í sinn hlut 65% flutninganna. Systurfélag þess í Bandaríkjunum, Transatl- antic lines LLC, átti næstlægsta tilboðið og náði því 35% flutning- anna. Frumkvöðull að stofnun beggja var Guðmundur Kjæme- sted. Hann og fjölskylda hans fara með meirihluta í Atlantsskipum, og eiga einnig stóran hluta í banda- ríska systurfélaginu. Það má því segja að flutningar fyrir Vamarlið- ið séu að stærri hluta en áður komnir í hendur íslenskra aðila - Án þess að bandarísk stjómvöld líti svo á að samningurinn frá 1986 hafi verið sniðgenginn. Frjálsri samkeppni hafnað Þegar Atlantsskip hrepptu flutn- ingana var það í gegnum opið út- boð án nokkurs forvals enda ekki stafkrókur um það í samkomulag- inu frá 1986. Fyrr á þessu ári afréð utanríkisráðuneytið eigi að síður að viðhafa forval til að ákveða hvaða skipafélög mættu bjóða í flutninga næsta árs. Frá því er skemmst að segja að forvaísnefnd utanríkis- ráðuneytisins komst að þeirri nið- urstöðu að Atlantsskip, sem buðu langlægst í flutningana í fyrra og hafa sinnt þeim af prýði síðan, skyldu útilokuð frá því að taka þátt í útboðinu. í reynd hlýtur þetta að þýða að Atlantsskip hætta sigling- um til íslands, Eimskipafélagið fær 600 milljóna króna flutninga á silf- urfati, samkeppnin hverfur og neytandinn þarf að greiða hærna verð fyrir innflutta vöru frá Banda- ríkjunum. Rökstuðningur forvalsnefndar einsog hann var skýrður í Mbl. 12. maí er utanríkisráðuneytinu til vansa. I fyrsta lagi gerir forvals- nefnd athugasemd við fjárhags- stöðu Atlantsskipa. Fyrir leik- mann er það illskiljanlegt þegar fyrir liggur opinberlega að félagið er tekið að skila hagnaði og eigin- fjárhlutfall þess er meira en 80% og hefði einhvern tíma þótt gott á Islandi. I öðm lagi er haldið fram að varaflutningsgeta félagsins, sem engar athugasemdir vom gerðar við þegar félagið vann út- 4l boðið á síðasta ári, sé nú allt í einu ónóg. I þriðja lagi er fullyrt að Atlantsskip geti ekki talist ís- lenskt skipafélag í skilningi samn- ingsins (frá 1986). Frétt Mbl. frá 13. maí gefur hins vegar til kynna að þessi röksemd hafi byggst á því að nefndarmönnum hafi ekki verið ljós mikilvægur þáttur í framkvæmd laga um hluta- og einkafélög og vonandi er það skýringin. Ella hlakka ég sem al- þingismaður til að skoða hvernig ráðuneytið skýrir þá afstöðu að eitthvað annað en íslensk lög ráði hvort skipafélög séu íslensk eða ekki. Afstaða utanríkisráðuneytisins gengur þvert á anda frjálsrar sam- keppni. Hún gengur þvert á hags- muni neytenda. Hún er satt að segja óskiljanleg þeim sem reynir að skilja hana út frá forsendum al- mennrar skynsemi. Meðan ráðu- neytið skýrir hana ekki betur lykt- ar hún af pólitískri misbeitingu sem er hvorki hægt að láta hggja í þagnargildi né þola. Höfundur er alþingismuður STOR OG GOÐ VINNUAÐSTAÐA ÞARF EKKI AÐ KOSTAÞIG MIKIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.