Morgunblaðið - 11.06.1999, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Jim Smart
HÉR eru Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra og Sigurður T. Magn-
ússon héraðsdómari við myndband í nýja herberginu.
Héraðsdómur Reykjavíkur
Börnum búin
séraðstaða
Norrænir laganemar keppa í málflutningi um helgina
Kalmarsambandið
endurvakið
Morgunblaðið/Golli
ÍSLENSKA liðið æfði í Lögbergi í fyrrakvöld.
NÝ AÐSTAÐA, sem einkum er ætl-
uð til skýrslutöku barna og ung-
menna, hefur verið tekin í notkun 1
Héraðsdómi Reykjavíkur. Undir-
búningur að verkefni þessu hófst
fyrir nokkrum árum. Pörf var á sér-
staklega útbúinni aðstöðu tii þess að
böm og ungmenni, sem grunur leik-
ur á að orðið hafi fyrir kynferðislegri
misnotkun, yrðu fyrir sem minnstum
óþægindum vegna skýrslutöku í slík-
um málum.
Með tækjabúnaði í hinni nýju að-
stöðu er unnt að taka skýrslu barns
eða ungmennis upp á myndband að
sem fæstum viðstöddum, en þó
þannig að fleiri geta fylgst með yfir-
heyrslunni án þess að sá sem verið
er að yfirheyra verði fyrir truflun af
því.
Heimild fékkst árið 1996 til að
leigja viðbótarhúsnæði fyrir aðstöð-
una á 4. hæð í dómhúsinu við Lækj-
artorg og hefur verið unnið að verk-
Sfldveiði við
Jan Mayen
ÍSLENSKU sfldveiðiskipin fengu
góðan afla í fiskveiðisögu Jan Mayen
í fyrrinótt en ekkert veiðist lengur
innan íslensku lögsögunnar. Sfldin
veiðist nú aðeins um 30 mflur suð-
austur af Jan Mayen og hafa íslensk
skip ekki farið svo langt norður eftir
sfld í seinni tíð. Veiði var misjöfn
milli skipa að sögn Jóns Atla Gunn-
arssonar, stýrimanns á ísleifi VE, en
skipið var á landleið í gær með full-
fermi, um 1.100 tonn af sfld. Hann
sagði töluvert hafa sést til sfldar en
hún væri stygg og erfið við að eiga.
HÚSVERNDUNARSJÓÐUR hefur
veitt styrki í þriðja sinn. í þetta sinn
fengu 48 hús styrki að upphæð kr.
14.650.000.
Nú var einungis veittur styrkur til
húsa sem standa innan marka mið-
borgarinnar, eins og þau eru skil-
greind í Aðalskipulagi Reykjavíkur
1996-2016. Til grundvallar við
ákvörðun styrkja, lágu tillögur hús-
verndunamefndar Reykjavíkur um
friðun og vemdun reykvísks byggð-
ararfs innan marka Snorrabrautar
og Hringbrautar.
efninu síðan, en flókinn og dýran
tækjabúnað þarf í slík yfirheyrslu-
herbergi. Innréttaður hefur verið
nýr dómsalur og sérútbúið herbergi,
sem nota á í þessu skyni. Gert er ráð
fyrir að skýrslutaka yfir barni eða
ungmenni fari fram í hinu sérútbúna
herbergi, en aðrir þeir sem koma að
skýrslutökunni geti fylgst með af
sjónvarpsskjá í dómsalnum. Yfir-
heyrslan er jafnframt tekin upp á
myndband.
„Röksemdin sem að baki liggur er
sú að börnum, sem grunur leikur á
að hafi orðið fyrir kynferðisbroti,
verði hlíft við því, eftir því sem kost-
ur er, að þurfa að gefa skýrslu í opin-
beru máli oftar en einu sinni. Eftir
þessar breytingar er óhætt að full-
yrða að réttarstaða bama og ung-
menna sem em brotaþolar í kynferð-
isbrotamálum hefur batnað til
muna,“ segir í fréttatilkynningu frá
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.
ÓLAFUR Öm Haraldsson, formað-
ur umhverfisnefndar Alþingis og
þingmaður Framsóknarflokksins,
sagði í fimmtudagsumræðunni í Rík-
issjónvarpinu í gærkvöldi að sér
fyndist ekki gerlegt að fara út í
virkjanaframkvæmdir við Fljóts-
dalsvirkjun í tengslum við álver á
Húsvemdunarsjóður var lánasjóð-
ur frá 1987 til 1997. Samkvæmt regl-
um sjóðsins, sem samþykktar vora í
borgarstjóm Reykjavíkur í aprfl
1997, er hlutverk hans að veita
styrki til endurgerðar eða viðgerðar
á húsnæði eða öðram mannvirkjum,
s.s. girðingum, í Reykjavík, sem sér-
stakt varðveislugildi hefur af list-
rænum eða menningarsögulegum
ástæðum, enda séu framkvæmdir í
samræmi við uppranalegan stíl húss-
ins og í samræmi við sjónarmið
minjavörslu.
NORRÆNA málflutningskeppnin
fer fram í Reykjavík um helgina og
verður Kalmarsambandið þar endur-
vakið í máli, sem snýst um mannrétt-
indabrot. Keppnin er árlegur við-
burður og skiptast Norðurlöndin á
gestgjafahlutverkinu, hún er nú
haldin í þriðja sinn hér á landi.
Keppnin er sprottin úr gömlum og
grónum jarðvegi norrænnar sam-
vinnu segir Ragnar Tómas Arnason
lögmaður, sem séð hefur um þjálfum
íslenska liðsins. Hann bendir á að
Norðurlöndin eigi sameiginlega
lagahefð og læri margt hvert af öðru.
Þrátt fyrir það er margt sem greinir
réttarkerfi landanna að og til þess að
norrænir laganemar gætu keppt í
málflutningi á jafnræðisgrandvelli
varð Mannréttindasáttmáli Evrópu
fyrir valinu. Öll Norðurlöndin hafa
staðfest sáttmálann og hann er því
kjörinn grundvöllur fyrir keppnina.
í keppninni eru norrænu ríkin
sameinuð í hið foma Kalmarsam-
band. Sambandið er í fyrirsvari fyrir
það sambandsland þar sem meint
brot á Mannréttindasáttmálanum
eiga sér stað. Ragnar Tómas segir
þetta til þess fallið að vekja sam-
stöðu meðal keppenda, þeir eigi sam-
eiginlega hagsmuni að verja.
Tólf lið eigast við í keppninni um
helgina en hún felst að vanda í því að
settur er á svið málflutningur fyrir
Mannréttindadómstóli Evrópu.
Keppnin fer íram á dönsku, norsku
og sænsku en Ragnar Tómas segir
að reglur hennar séu hannaðar til
þess að öll liðin sitji við sama borð,
þannig sé þess gætt að takmarkaðri
tungumálafæmi Finna og Islendinga
verði þeim ekki fjötur um fót og þótt
málsatvikin gerist í landi gestgjafans
á hann ekki að njóta góðs af því.
Reyðarfirði án þess að virkjunin
fengi það mat á umhverfisáhrifum
sem lögin um umhverfismat gera ráð
fyrir. Hann sagði ennfremur að
menn þyrftu að skoða aðra mögu-
leika á rekstri í stað álvers.
Uppi hugmyndir fyrir
nokkrum árum
„Það vora uppi hugmyndir fyrir
nokkram árum og ég hygg að svo sé
enn, að koma með annan rekstur
þama, þ.e.a.s. olíuhreinsunarstöð. Þá
þarf ekki að virkja. Við skulum gera
okkur grein fyrir því að ef við fóram
af stað með olíuhreinsunarstöð
þama þá er hætta á umhverfisslysi
vegna olíumengunar og olíuhreins-
unarstöð er mjög lítið fyrir augað,“
sagði Ólafur Örn. Hann sagði að ef
rekstur olíuhreinsunarstöðvar í sam-
vinnu við Rússa væri möguleiki, sem
hann telur að mætti skoða til botns,
þótt hann hefði efasemdir um að af
því gæti orðið. íslendingar ættu þó
að skoða þann möguleika.
Athygli vekur að íslenska liðið er í
ár eingöngu skipað kvenmönnum.
Liðið skipa Elva Ósk Wium, Hólm-
fríður Kristjánsdóttir, Jóhanna Bryn-
dís Bjamadóttir, Margrét Gunnars-
dóttir og Telma Halldórsdóttir.
Mikill undirbúningur
og umfang
Liðið var valið í febrúar og hefur
varið drjúgum tíma til undirbúnings,
það hefur þegar skilað inn greinar-
gerðum og fengið þær metnar en síð-
ustu vikur hefur liðið nýtt til að
semja málflutningsræður og æfa
flutning þeirra. Liðið, sem hlotið hef-
ur heitið Club Lögberg, hefur notið
góðrar aðstoðar lögfræðinga og lög-
manna við undirbúninginn.
Flestir þeirra sem standa að und-
irbúningi keppninnar hér á landi era
fyrrverandi keppendur. Kristín Ed-
wald lögmaður stýrir móttökunefnd.
Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, staðfesti við
Morgunblaðið hinn 5. júlí 1997, að
rússneskir og bandarískir aðilar
hefðu sýnt því máli áhuga að hag-
kvæmt gæti verið að reisa olíu-
hreinsistöð hér á landi.
Bandarískir og níssneskir
aðilar hafa sýnt málinu áhuga
Hefur málið verið lítilsháttar at-
hugað á vegum Fjárfestingarskrif-
stofu Islands og embættismanna ut-
anríkisráðuneytisins.
Samkvæmt upplýsingum Halldórs
Ásgrímssonar utanríkisráðherra,
sem fram komu í frétt Morgunblaðs-
ins hinn 6. júlí yrði um mikla fjár-
festingu að ræða ef hugmyndir um
olíuhreinsistöð yrðu að veraleika.
Sagði Halldór þá að fjárfestingin
gæti numið 3EÚ40 milljörðum ís-
lenskra króna. Halldór staðfesti í
sömu frétt að umrædd olíuhreinsi-
stöð yrði reist á Austfjörðum ef hug-
myndin yrði að veraleika.
Hún segir hátt á annað hundrað
manns koma hingað til lands í
tengslum við keppnina; keppendur,
aðstoðarmenn og dómara. Erlendir
dómarar keppninnar starfa ýmist við
Mannréttindadómstól Evrópu eða
hæstarétt í heimalandi sínu. Þór Vil-
hjálmsson, dómari við EFTA-dóm-
stóhnn, Garðar Gíslason og Guðrún
Erlendsdóttir, hæstaréttardómarar,
era fuhtrúar íslendinga í dómgæsl-
unni.
Keppnin er opin almenningi og
hefst á morgun, laugardag. Þá
stendur hún frá klukkan níu árdegis
og fer fram í Dómshúsi Héraðsdóms
Reykjavíkur. Úrsht fara fram á
sunnudag í Hæstarétti Islands og
hefjast klukkan hálftíu.
Andlát
JÓN SIG-
URÐSSON
JÓN Sigurðsson; sem var m.a. fram-
kvæmdastjóri Islensks markaðar,
Miklagarðs og Rammagerðarinnar,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur í
fyrradag. Hann var á 58. aldursári.
Jón Sigurðsson fæddist á Ólafsfirði
8. desember 1941. Hann lauk prófi frá
Verzlunarskóla Islands árið 1962 og
frá The London School of Foreign
Trade ári síðar. Jón stundaði í fyrstu
ýmis skrifstofustörf en gerðist fuUtrúi
hjá Verslunarráði árið 1967 og starf-
aði hjá Sameinuðu þjóðunum í Genf
árin 1968 til 1970. Eftir það varð hann
framkvæmdastjóri íslensks markað-
ar tfl ársins 1982, Miklagarðs frá 1982
til 1988, íslenska sjónvarpsfélagsins
næstu tvö árin, frá 1990 fram-
kvæmdastjóri Rammagerðarinnar og
starfaði síðan hjá Landssímanum.
Jón gegndi ýmsum störfum á veg-
um Sjálfstæðisflokksins, var vara-
þingmaður árin 1974 til 1978 og átti
sæti í stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík. Hann var um
tíma formaður sóknarnefndar Hóla-
brekkusóknar, starfaði innan sam-
taka radíóamatöra og gegndi ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir Rotary-hreyf-
inguna.
Eftirlifandi eiginkona Jóns er Ólöf
Jóna Sigurgeirsdóttir og eignuðust
þau fjögur börn.
NY SIMANUMER
5401400
033 7-9-13
+ ••
Olafur Orn Haraldsson
Olíuhreinsimarstöð í
stað álvers fyrir austan?
Styrkur til 48 húsa