Morgunblaðið - 26.01.2000, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIÐ
12 C MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000
f REYKJAVÍK- MENNINGARBORG EVRÓPU 2000
Fyrsta, annað
>og þriðja...!
Þjóðleikhúsió fækkar
fötum meö uppboði á
laugardag kl. 14 á Stóra
sviðinu. Allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Enginn aögangseyrir.
- í TILEFNI af hálfrar aldar afmæli
Þjóðleikhússins opnar leikhúsið nú
búningageymslur sínar og heldur
uppboð á fimmtíu völdum búningum.
Uppboðshaldari er enginn annar en
Örn Árnason leikari og mega gestir
því eiga von á góðri skemmtun því
ásamt honum bregða ýmsir leikarar
Þjóðleikhússins á leik, fara í búning-
ana og sýna þá og verður uppboðið
ski-eytt tónlist, lestri og leik.
„Hér gefst einstakt tækifæri til
þess að eignast minjagrip úr leikhús-
sögunni. Sumir hverjir þeirra hafa
leikhússögulegt gildi og eru hrein-
ustu listaverk sem sóma sér í hverri
stofu, aðrir geta nýst sem grímubún-
ingar, glæsilegur kvöldklæðnaður
eða bara til þess að spóka sig í á góð-
um degi,“ segir Guðrún Bachmann
leikhúsritari.
Bergur Þór Ingólfsson leikari hef-
ur umsjón með uppboðinu og dag-
skránni og Elín Edda Árnadóttir
leikmynda- og búningahöfundur hef-
ur yfirumsjón með vali búninga og
umgjörð uppboðsins.
„Meðal búninga sem boðnir verða
upp er búningur Kristján Jóhanns-
sonar úr Valdi örlaganna, búningur
Róberts Arnfinnssonar í hlutverki
Bastíans bæjarfógeta í Kardem-
ommubænum, skrautbúningur
Diddúar úr óperunni Ævintýri
Hoffmans, hattar úr My Fair Lady,
prinsessukjóll úr barnaleikritinu
Snædrottningunni, búningar Ingv-
ars E. Sigurðssonar og Sigurðar Sig-
urjónssonar sem Ormur og Ranúr í
Gauragangi, búningai’ Baltasars
Koi-máks og Halldóru Björnsdóttur í
hlutverkum sínum í Rómeó og Júlíu,
gellubúningur Selmu Björnsdóttur
úr Meiri gauragangi, ýmsir búningar
úr Lé konungi, Dansleik, Háskaleg-
um kynnum, Söngvaseiði og margt
fleira," segir Guðrún.
Morgunbíaöiö/Ámi Sæberg
Leikarar Þjóðleikhússins sýna bún-
inga á uppboðinu.
AIls verða boðnir upp fimmtíu
gripir, frá ýmsum tímabilum í fimm-
tíu ára sögu Þjóðleikhússins.
Uppboðið er framlag Þjóðleik-
hússins til opnunar Menningarborg-
ar 2000.
Beethoven og Chopin
Á vegum íslandsdeildar EPTA verða píanótónleikar í
íslensku óperunni 5. febrúar kl. 14.30. Martino Tir-
imo leikur sónötur op. 7 og op. 109 eftir Ludwig van
Beethoven og prelúdíur op. 28 eftir Chopin.
JKHONUM hefur verið lýst sem einum
af fremstu píanóleikurum samtímans.
Undrabarn sem hélt sína fyi’stu opin-
beru tónleika sex ára og stjómaði tólf
ára gamall flutningi á La Traviata
með söngvurum La Scala-ópemnnai’.
Martino Tirimo hefur hljóðritað
gríðarlegt magn af píanóverkum eftir
alla helstu meistarana, þar á meðal
allar sónötur Schuberts og píanósón-
ötur Beethovens, en hann mun flytja
þær allar á tónleikum á þessu ári auk
allra píanókonserta Mozarts og
stjóma jafnframt flutningi þeirra frá
hljóðfærinu eins og Mozart sjálfur
gerði..
Tirimo er fæddur á Kýpur inn í
mikla tónlistarfjölskyldu og hlaut
jnngöngu í Royal Academy of Music í
' London aðeins 13 ára gamall, útskiif-
aðist þaðan með hæstu einkunn og
sigi’aði síðan ömgglega í alþjóðlegu
píanókeppninni í Munchen og ári síð-
Martino Tirimo píanóleikari.
ar í Genf. Hann hefur komið fram
með flestum þekktustu hljómsveitum
heims.,
Efnisskrá tónleikanna í Islensku
ópemnni er glæsileg, tvær píanósón-
ötur Beethovens, op. 7 og op. 109, og
síðan flytur hann allar 24 prelúdíur
Chopins op. 28.
Tónleikar Tirimos eru opnunartón-
leikar Pianóhátíðar Islandsdeildar
EPTA, sem era Evrópusamtök pí-
anókennara. Unnur Fadila Vilhelms-
dóttir, formaður Islandsdeildarinnar,
segir að það sé geysilega mikill feng-
ur að því að fá svo góðan og þekktan
píanóleikara hingað. „Efnisski’áin er
mjög spennandi, Beethovensónöt-
urnar em afskaplega fallegar, en
ólíkar, enda langt á milli þeima í höf-
undarverki Beethovens. Þá er ein-
stakt að fá tækifæri til að heyra allar
prelúdíur Chopins á sömu tónleikum.
Allir sem hafa heyrt Tirimo spila em
á einu máli um hversu frábær hann
sé. Þá er hann þeim óvenjulegu hæfi-
leikum gæddm- að vera einnig í
fremstu röð fræðimanna í tónlist og
hefur m.a. gefið út sónötur Schuberts
á vegum hins virta útgáfufyrirtækis
Wiener Urtext."
Tirimo mun leiðbeina píanóleikur-
um og lengra komnum nemendum á
námskeiði (masterclass) í sal Tónlist-
arskólans í Reykjavík daginn efth-
tónleikana, sunnudaginn 6. febrúar.
Morgunblaðiö/Þorkell
Heimsreisa Höllu
> Ljósið kemur langt og mjótt,
logar á fífustöngum.
Halla kerlingfetar fíjótt
framan eftirgöngum.
HEIMSREISA Höllu er stutt
dagskrá sem byggir á einu íslensku
þjóðlagi um ljósið langa og mjóa og
kerlinguna Höllu. Dagskráin er flutt
. og unnin af fjóram landskunnum
fcónlistarmönnum. Þeir Björn Thor-
oddsen, gítar, Egill Ólafsson, söng-
ur, Ásgeir Óskarsson, trommur og
Gunnar Hrafnsson, kontrabassi,
standa að þessu „tónlistarleikhúsi í
ferðatösku" sem gengur út frá því að
ávallt sé hægt að finna hliðstæður
eins og sama lagsins í ólíkum löndum
og þannig tengi tónlistin mannkynið
saman. Þeir félagar ferðast bæði í
tíma og rúmi á milli ólíkra menning-
arheima og undirstrika tíma og stað
með leikhúsgervum. Lagið er í
granninn alltaf það sama en tekur á
sig margar ólíkar myndir, s.s.
barokkstíl, rokk, tangó, afrískt
söngl, rapp o.fl.
Halla kerling verður víðföral á
menningarárinu og skýtur tvisvar
upp kollinum í Iðnó kl. 13 og 15 á
opnunardaginn 29. janúar.
Dagskráin tn
29. febrúar
1.1.-20.12.
Listamenn í skólum
Rúmlega 30 samvinnuverkefni
listamanna og nemenda verða
unnin í grunnskólum borgarinnará
árinu 2000. Fræðslumiðstöð
Reykjavíkurborgar í samvinnu við
menningarborg. www.reykjavik.is/
fmr
1.1.- 31.12.
50 ára afmælishátíð Húsavíkur
Listviðburðir og sérstök dagskrá
í hverjum mánuði allt áriö um
kring. www.husavik.is
29.1.
Opnunarhátíd menningarborg-
arinnar Á annað hundraö viðburðir,
opnanir, stjörnuieikurogopin hús.
29.1.-5.2.
íslensk heimildamyndahátíð í
Háskólabíói - frumsýningar
Kl. 17.00 í gegnum linsuna -
heimildarmynd um Ijósmyndarann
Sigríði Zoéga.
Örsögur í Reykjavík - stuttmynd-
ir byggðar á þremur frumsömdum
dansverkum.
Kl. 23.00 Rokk í Reykjavík - nýtt
og endurbætt eintak (einnig sýnd
5.2.).
4.2. Kl. 19.00 Fínbjalla - 8
stuttmyndir ungra kvikmyndagerð-
armanna frumsýndar.
Miðasala fer fram í Háskólabíói.
Myndirnar verða sýndar saman í
röð 29.1-4.2 frá kl. 17.00.
29.1.-6.2.
Fánar heims
Flnattrænt verkefni með við-
komu í Norræna húsinu þar sem
risafánar verða dregnir daglega að
húni.
29.1.-31.12.
Veitingahús mánaðarins
Klúbbur matreiöslumeistara,
veitingahúsagestir og VISA-ÍS-
LAND standa að vali besta staðar-
ins í hverjum mánuði menningar-
ársins.
Atkvæði greidd á www.icelandic-
chefs.is.
29.1.-31.12.
Getur þú leikið?
Farandsýning á nýju dans- og
tónverki fyrir börn eftir Láru Stef-
ánsdóttur og John Speight.
29.1.-20.12.
Ljósbrot
Fleilsársdagskrá í Grafarvogi þar
sem menning og mannlíf leggja
grunninn að fjölbreyttri úttekt á
sögu hverfisins, þjóðsögum og
þjóðháttum, kirkju og trúarlífi,
íþróttum o.fl.
20.1.-9.12.
Mannlíf í Heiðmörk
Allt menningarárið verður dag-
skrá í Fleiömörk til að kynna lífríki,
umhverfi og útivist. 27. febrúar
verður skíðagöngumót á göngu-
stígum. www.heidmork.is
Vígslutónleikar tónlistarhúss
Karlakórs Reykjavíkur.
30.1.
Jóhannes S. Kjarval f Listasafni
Reykjavíkur. Opnun á yfirlitssýn-
ingu sem spannar allan feril Kjar-
vals og mun eiga sér fastan sess í
safninu til frambúðar. www.rvk.is/
listasafn
2.2.
FIND - finnsk hönnun 2000
Flönnunarsýning í Ráðhúsi
Reykjavíkur. End opnar samtímis í
öllum menningarborgunum 9.
www.2000.hel.fi/find
5.2.-28.2.
Roni Horn
Bandaríska listakonan Roni
Horn heldursýningu í Listasafni ts-
lands. www.listasafn.is
5.2.
Píanósniliingurinn Martino Tir-
imo.Tónleikar í ísiensku óperunni.
5.2 -6.2.
íslenska einsöngslagið
Tvennir Ijóðatónleikar í Gerðu-
bergi. Jónas Ingimundarson,
Signý Sæmundsdóttir og Bergþór
Pálsson flytja lög eftir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson. www.rvk.is/
gerduberg
8.2.-12.2.
Útvarp 2000
19.00 Upphaf alþjóðlegrar út-
varpsþáttahátíðar í Háskólabíói.
Miðasala í Háskólabíói.
www.strik.is
10.2./12.2.
Aida eftir Verdi
Sungin átónleikum í Laugar-
dalshöll Sinfónfuhljómsveit ís-
lands og Kristján Jóhannsson.
Kór íslensku óperunnar. Stjórn-
andi Rico Saccani. Miöasala hjá
Sinfóníuhljómsveitinni s: 562
2255 .www.sinfonia.is
Diaghilev: Goðsagnirnar
Danshöfundur Jochen Ulrich
Heimsfrumsýning hjá íslenska
dansflokknum í Borgarleikhúsinu.
Miðasala í Borgarleikhúsinu s.:
568 8000. www.id.is
12.2.
Hægan Elektra
Frumsýning í Þjóðleikhúsinu á
nýju íslensku verki eftir Hrafnhildi
Hagalín Guðmundsdóttur.
www.leikhusid.is
12.2.-19.4.
Sjónþing Önnu Líndal í Gerðu-
bergi. www.rvk.is/gerduberg
Óvæntir bólfélagar
Tilraunaeldhúsið stendurfyrir
mánaðarlegum uppákomum þar
sem listamenn ólíkra listgreina
og mismunandi kynslóða mætast
og sameina krafta sfna á sviðinu.
19.2.-12.3.
Norrút
Veflist og þrívíddarskúlptúrar.
Sýning á verkum fjögurra nor-
rænna listakvenna í Listasafni
ASÍ. Guðrún Gunnarsdóttir
(Reykjavík), Inger-Johanne
Brautaset (Bergen), Agneta Hob-
ins (Helsinki) og Ullu-Maiju Vik-
man (Helsinki).
20.2.
Tónleikar Kammersveitar
Reykjavíkur í Langholtskirkju.
Leikin veröa verk eftir Henryk Gór-
eski að tónskáldinu viðstöddu.
Miðasala hjá Máli og menningu,
Laugavegi 18.
27.2.-29.2.
Job - þjáning mannsins
Einleikur Arnars Jónssonar í
Neskirkju á Seltjarnarnesi í leik-
stjórn Sveins Einarssonar.
Sýningin hefst kl. 20.30.
28.2.
Danska útvarpssinfóníuhljóm-
sveitin. Tónleikar f Háskólabíói.
Miðasala hjá Sinfóníuhljómsveit-
inni s: 562 2255. www.sinfonia-
.is
29.2.-20.12.
Fögnuður
Margmiölunarvefur, Ijósmynda-
og kvikmyndasýningar og útvarps-
þættir veröa fluttir á Rás 1 um
fögnuð. Ljósmyndasafn Reykja-
víkur, Ríkisútvarpið og Kvik-
myndasafn íslands hafa tekið
höndum saman um þetta óvenju-
lega verkefni. www.ruv.is
www.reykjavik2000.is