Morgunblaðið - 06.04.2000, Síða 33

Morgunblaðið - 06.04.2000, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000 33 ERLENT Réttarhöldin yfír Sharif AP Kulsoom Sharif, eiginkona Nawas Sharifs, biður fyrir manni sínum í Karachi í gær. Líf á bláþræði Karachi, Lahore. AFP, Reuters. Stasi-gögn úr fórum CIA afhent þýskum stjórnvöldum Fyrsta skammti skilað til Berlínar Berlín. Morgunblaðið. AP Ur skjalasafni Stasi, austur-þýzku leynilögreglunnar, í Berlín. ÞÚSUNDIR stuðningsmanna Nawas Sharifs, fyrrverandi for- sætisráðherra Pakistans, ætla að safnast saman í dag við húsakynni réttarins í Karachi þar sem kveðinn verður upp dómur í máli hans. Sharif er ákærður fyrir mannrán og morðtilraun við núverandi ein- ræðisherra, Peivez Musharraf hershöfðingja. Sex manns að auki, þ. á m. bróðir Sharifs, eru ákærðir. Sharif er sagður hafa reynt í október í fyrra að koma í veg fyrir að flugvél með Musharraf og nær 200 aðra innan- borðs fengi að lenda í Pakistan og stofnað þannig lífi fólksins í hættu. Skömmu áður hafði ráðherrann rekið hershöfðingjann úr embætti forseta herráðsins. Vélin fékk að lenda og nokkrum stundum síðar hrifsaði herinn öll völd í landinu. Þyngsta refsing sem hægt er að veita fyrir umrædd afbrot er dauða- dómur. „Líf Sharifs hangir bókstaf- lega á bláþræði," sagði stjórnmála- skýrandinn Shamim Akhtar. En hann varaði við slíkri niðurstöðu sem myndi gera minningu Nawas ódauðlega og valda umróti á al- þjóðavettvangi. Árið 1979 tók her- foringjastjórn annan fyrrverandi forsætisráðherra, Zulfikar Ali Bhutto, af lífi og hefur hann síðan verið goðsögn meðal margra lands- manna. Á þriðjudag hvatti Sharif landsmenn til að gera uppreisn gegn „herforingjaeinræðinu". Verði Sharif dæmdur getur hann áfrýjað til hæstaréttar og loks hef- ur forseti landsins, Muhammad Raf- iq Tarrar, vald til að náða hann en Sharif tilnefndi á sínum tíma Tarr- ar í embættið. BANDARÍSK stjórnvöld hafa nú látið þýzkum stjórnvöldum í té fyrsta umsamda skammtinn af af- ritum af skrám utanríkisleyniþjón- ustu Austur-Þýzkalands, sem bandaríska leyniþjónustan CIA kom höndum yfir árið 1990, er Aust- ur-Þýzkaland var í upplausn eftir fall Berlínarmúrsins. Það tók þýzk yfirvöld mörg ár að telja Bandaríkjamenn á að skila þessum gögnum, sem meðal annars innihalda spjaldskrá yfir njósnara og uppljóstrara Austur-Þjóðverja í Vestur-Þýzkalandi og annars staðar á Vesturlöndum á síðustu áratugum kalda stríðsins. Mun vera um upp- lýsingar um yfii- 1.000 uppljóstrara að ræða, bæði undir dulnefnum og réttum nöfnum. Uwe-Karsten Heye, talsmaður þýzku ríkisstjórnarinnar, staðfesti í gær að sl. föstudag, hinn 31. marz, hefðu fulltrúar Bandaríkjastjórnar afhent á skrifstofu kanzlaraem- bættisins í Berlín tölvugeisladiska. A þeim væri að finna á bilinu 500- 600.000 skráningar. Með afhending- unni sagði Heye að tekizt hefði að standa við að fyrsti hluti gagnanna væri afhentur á fyrsta ársfjórðungi ársins 2000, eins og um hafði verið samið. Búizt væri við að samtals mvndu gögnin fylla yfir 1.000 CD- ROM- geisladiska. Bandaríkjamenn gerðu ráð fyrir að það tæki allt að tveimur ánim að ljúka afhendingu gagnanna. CIA hafði árum saman neitað að heimila fulltrúum leyniþjónustu sameinaðs Þýzkalands að skoða þessi gögn austur-þýzku leyniþjón- ustunnar, sem Bandaríkjamönnum tókst að komast yfir í svokallaðri „Rósaviðar-aðgerð" veturinn 1989- 1990. Heye sagði ennfremur í gær, að allar upplýsingar sem snertu bandaríska ríkisborgara yrðu strik- aðar út úr gögnunum áður en þau yrðu afhent. Joachim Gauck, yfirmaður stofn- unarinnar sem hefur umsjón með öllu því sem varðveitzt hefur af skjalasafni austur-þýzka öryggis- málaráðuneytisins, öðru nafni Stasi, sagðist vænta þess að gögnin frá Bandaríkjunum skiluðu sér í sína umsjá. Einn stærsti fengur kalda stríðsins Markviss stuldur útsendara CIA á njósnaraspjaldskrám Stasi er tal- inn vera einhver mesti „stríðsfeng- ur“ kalda stríðsins, en sá stríðs- rekstur mæddi að sjálfsögðu að mestu á leyniþjónustum stórveld- anna, Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna. Njósnastarfsemi Austur- blokkarinnai’ á Vesturlöndum var þó að miklu leyti skipulögð í gegn- um þá deild austur-þýzku leyniþjón- ustunnar, sem Markus Wolf stýrði („Hauptabteilung Aufklárung"). Lengi fram eftir tíunda áratugn- um neituðu Bandaríkjamenn að veita fulltrúum þýzkra yfirvalda nokkurn aðgang að gögnunum, að sögn vegna þess að þar með væri hætta á að flett yrði ofan af mönn- um sem einnig störfuðu fyrir CIA. Sérfræðingar leiddu hins vegar get- um að því, að hinnar raunverulegu ástæðu þessarar tregðu til sam- starfs við þýzk yfirvöld væri að leita í því, að CIA hefði tekizt að „snúa“ ófáum hinna skráðu útsendara Austur-Þjóðverja og fengið þá til að njósna fyrir sig í staðinn. Einkum eigi þetta við um fyrrverandi upp- Ijóstrara A-Þjóðverja í Vestur- Þýzkalandi. INGÓLFSSTRÆTI 5 • 101 REYKJAVÍK • SÍMI 551 5080
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.