Morgunblaðið - 06.04.2000, Side 66

Morgunblaðið - 06.04.2000, Side 66
66 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ 4 Kynning a Nupo Súpum næstu daga fim. 6. apríl Apótekið Smiðjuvegi og Spönginni frá kl. 14-18. fös. 7. aprfl Apótekið Suðurströnd og Iðufelli frá kl. 14-18. lau. 8. apríi Apótekið Smáratorgi frá kl. 13-17. 20% 0/ kynningarafsláttur /0 ástaðnum! Apwtekið T ' * VI Nupo Supur fullkomin nœring T- T $ ' v : ■ .. ,l sniðnar að þínum þörfum. Cott verö á gœöavörum STIHL: www.mbl.is UMRÆÐAN Öruggar bifreiðir HVERT stefnum við í umferðarmálum? Fyrir nokkrum áratug- um voru íslendingar með hæstu dánartíðni í umferðarslysum á Norðurlöndum en við tókum okkur verulega á. Undanfarin ár hefur sigið á ógæfuhliðina og stefnir í óefni. Eitt af því sem hægt er að gera til að fækka dauðsföllum og minnka líkamstjón í umferðar- slysum er að aka ör- uggari bifreiðum. Árekstraprófanir Virtar stofnanir í Bandaríkjunum, Ástralíu og Evrópu hafa öryggis- prófað bifreiðir um árabil og gert strangari kröfur en reglugerðir hafa kveðið á um. Bandaríkjamenn voru leiðandi en nú virðist Evrópa vera komin í forystu í þessum efnum. Hjá Evrópsku prófunarstöðinni (Europ- ean New Car Assessment Program- me - EuroNCAP) er prófunarbifreið ekið á 64 km hraða á fyrirstöðu. Einnig er prófaður hliðarárekstur á 50 km hraða þar sem höggið kemur á hurð ökumanns. í bifreiðinni eru brúður og bifreiðinni er síðan gefin einkunn allt eftir því hversu lítið eða mikið hún skemmist og hvemig brúðunum farnast. í Evrópu er stjöraugjöf þar sem fjórar stjörnur tákna örugga bifreið, þrjár stjömur meðalútkomu, tvær sæmilega eða á mörkunum og ein stjarna táknar lé- lega útkomu eða nánast falleinkunn. Bandaríkin og Ástralía öryggis- prófa á svipaðan hátt en gefa bók- stafi í stað stjama, sjá töflu í. Ekki era gerðar neinar veltuprófanir. Á netinu veita þessar stofnanir um- fangsmikla umferðar- og öryggis- ráðgjöf, sjá töflu 2. Oruggar bifreiðir Fullkomið öryggi er ekki til. Stór- ar bifreiðir era að öllu jöfnu mun öraggari en litlar. Líkurnar á að láta lífið í umferðar- slysi eru meira en tvö- falt hærri í smæstu bif- reiðunum en þeim stærstu. í dag era framleiddar og fluttar inn margar fólks- bifreiðir sem komast í fjögurra stjömu eða G flokkinn. Rannsóknir hafa sýnt að í fjögurra stjömu bifreið era meira en 40% minni lík- ur á að láta lífið eða slasast alvarlega ef um- ferðarslys á sér stað en í bifreið sem fær lélega einkunn í árekstrarprófunum. Margir hafa trú á öryggi jeppa og pallbíla. Þar gætir misskilnings. Stærstu jepparnir koma almennt vel út miðað við fjölda látinna í umferð- arslysum samkvæmt rannsóknum en litlir jeppar, jepplingar og pallbíl- ar koma illa út þar sem mikið er um einbílaslys og veltur. Hugsanlega er það vegna þess að ökumaðurinn hef- ur ofurtrú á farartækinu og veit ekki að bifreiðin er valtari þar sem þyngdarpunkturinn er mun hærri en í fólksbílum. Einnig hefur öryggis- búnaði verið áfátt miðað við margar tegundir fólksbíla. Af innfluttum jeppum fá í dag aðeins tvær tegundir hæstu einkunn í öryggi, tveir jeppl- ingar en enginn pallbíll. Nýleg dæmi sanna að hópferða- bifreiðir eru ekki öragg tæki ef þær velta og era ekki útbúnar öryggis- beltum. Ein af forsendunum fyrir auknu öryggi í hópferðabifreiðum er að farþeginn haldist í sæti sínu spenntur í öryggisbelti og að yfir- byggingin leggist ekki saman ef svo illa vill til að bifreiðin veltur. Öryggisbelti og loftpúðar Öryggisbeltin era mikilvægasta vömin ef bifreið lendir í umferðar- Öryggi Ut frá öryggíssjónar- miði er rangt að hafa lægsta vörugjaldið á minnstu bifreiðirnar að mati Brynjólfs Mogensens, sem segir þær hafa langhæstu slysatíðnina ef illa fer. óhappi. Þau hafa bjargað mörgum mannslífum og minnka mikið líkurn- ar á alvarlegum slysum. Það er þvi mikilvægt að allir spenni beltin. Það á að vera skylda hvers einasta öku- manns að leggja ekki af stað fyrr en allir í bifreiðinni hafa spennt beltin. Loftpúðamir era mjög góð viðbót við öryggisbeltin en koma ekki í staðinn fyrir þau. Á síðustu áram er farið að setja hliðarloftpúða í bifreið- ir og veitir ekki af þar sem allt að helmingur dauðsfalla og alvarlegra slysa er vegna hliðaráreksturs eða einbílaslysa. Hliðarpúðarnir verja aðallega brjóst- og kviðarhol. í nokkram tegundum bifreiða eru komnir loftpúðar sem vemda höfuð- ið sérstaklega. I mörgum tegundum bifreiða er ekki hægt að fá hliðar- púða sem aukabúnað sem ætti í raun að vera staðalbúnaður. Þar sem ein- bílaslys og veltur era algengari í jeppa-, jepplinga- og pallbílaflokkn- um skýtur skökku við að þeir eru yf- irleitt ekki útbúnir með fjóram loftpúðum en hliðarpúðarnir vernda líka í einbílaslysum og veltum. Enn sem komið er era fjórir loftpúðar að- eins staðalbúnaður í fáum jeppum en engum jepplingi eða pallbíl. Sumar nýjar bifreiðir era aðeins með loftpúða fyrir ökumann. Verður þess vonandi sem skemmst að bíða að það komi líka hliðarloftpúðar fyrir aftursætisfar- þega í allar bifreiðir. Ef loftpúði er fyrir farþega í framsæti verða börn- in án undantekningar að sitja í aft- ursæti. ABS-bremsur Margir hafa trú á ABS-bremsum og halda að þær bjargi öllu þegar í óefni er komið. ABS-bremsur hafa ekki staðið undir væntingum í Bandaríkjunum. Á það líka við um norðursvæðin þar sem menn búa við rigningu, snjó og hálku hluta úr ári. Líklegasta skýr- ingin er sú að fólk þurfi tíma til þess að læra á AB-bremsurnar. Þær era til bótá ef þæreru rétt notaðar. flBwilfiiii■N>, Árekstrarprófanir Evrópa www.fia.com Bandaríkin www.highwaysafety.org Einkunn * * * * G Bestir * * * A í meðallagi * * M Sæmilegir * P Lélegir Brynjólfur Mogensen Kynningarafsláttur! 5 bragðtegundir Citrin hefur áhrif á matarlyst - dregur úr löngun í sætindi. Inniheldur m.a. carcina cambogia og chromium picolinate. ,íA" 1 f í Upplýsinga- ' * -'iWt - ■ bæklingur á íslensku! Bráðhollur trefjadrykkur. Fullur af vítamínum og steinefnum. Minna en 200 hitaeiningar í einni máltíð. Fyrir þá sem vilja heilbrigða þyngdarstjórnun. Fyrir þá sem vilja bragðgóða og holla máltíð. Góður heima, í vinnunni, í ferðalagið eða hvar og hvenær sem er. .CITRIN 'OWfíi KYNNINGAR: Fimmtudag og föstudag: Hagkaup Skeifunni kl. 14-18 Laugardag: Lyfja Lágmúla kl. 13-17. Mánudag: Lyfja Hamraborg kl. 14-18. Þriójudag: Lyfja Setbergi kl. 14-18.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.