Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1905, Side 27

Skírnir - 01.12.1905, Side 27
Ýmsar tegundir trúarreynslunnar. 315 Enginn getur um það sagt, hye langt má komast með þessu lagi, en hitt er víst, að bjartsýni getur miklu áorkað. Það sýnir hin svo nefnda huglækningahreyf- ing (mindcure movement) sem komin er upp i Ameríku og hefur breiðst þar mjög síðastliðinn alðarfjórðung. Skoðanir huglækningamanna eru af ýmsum rótum runnar, bæði kristnum og heiðnum, trú og heimspeki. Mestu hefur það valdið um útbreiðslu þeirra, að þær hafa borið góða ávexti fyrir andlega og líkamlega heilbrigði manna, því menn lækna aðra og lækna sjálfa sig með trúnni einni saman. Blindir fá sýn, haltir ganga, menn, sem hafa verið aumningjar frá blantu barnsbeini, fá fulla heilsu. Þannig hljóðar vitnisburður þeirra, sem hafa kynt sér málið. Skoðanir huglækningamanna eru auðvitað nokkuð mismunandi í einstökum atriðum, en grundvallarskoðunin ■er sú, að það sé sálarástandið. sem ræður fyrir heilsu manna og velliðan, andi mannsins sé máttugur í veikleika líkamans. »Hugsanir eru hlutir«, segja þeir. Ef menn hugsi sí og æ um æsku, hreysti, heilbrigði og hamingju, þá verði menn óðar en varir ungir í anda, hraustir og hamingjusamir. Otti, kvíði, angist má aldrei festa rætur í huganum; aldrei ber að velta því sem ilt er í huga sér, heldur bægja á braut hverri liugsun um það, þá hverfur vald þess. Maðurinn stendur, ef hann vill, í sambandi við ótæmandi lífsuppsprettu tilverunnar; þaðan streymir hjálp og kraftur inn í hug hvers manns, sem á hana trúir og leitar hennar. Eykst böl, ef um er hugsað, og svo heilbrigðin, því »likur sækir líkan heim« og »oft kemur góður þá getið er«. Þannig eru þá skoðanir huglækningamanna. I þeim kemur bjartsýnin fram á hæsta stigi. Athyglin beinist •eingöngu að björtu hliðunum, og þeir halda þvi fram, að þær séu mergurinn málsins, og að hið illa hverfi því meir, sem því er minni gaumur gefinn, eða sé jafnvel sjón- hverfing ein. Eg get ekki hér minst að það sem James íilfærir um líkar skoðanir hjá öðrum frömuðum trúar-

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.