Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1905, Side 74

Skírnir - 01.12.1905, Side 74
362 Meðalæfi íslendinga á síðari hluta 19. aldar. um töflunum ekki fyr en fyrir þriggja til fjögurra ára gömul börn. Dánarlíkurnar eru þannig: Hjer I Noregi A Englandi Á 3. ári deyja 1.40”/» 2.17°/o 2.34/«. Á 4. ári deyja 0.80”/o 1.67/» 1.53/» Á 5. ári deyja 0.71”/» 1.35/. 1.12/ Þetta kemur sjálfsagt af því, að vjer íslendingar erum að mestu leyti lausir við ýmsa skæða sjúkdóma, sem í útlóndum eru land- lægir og börnin deyja þar úr hópum saman, t d. mislingar, skarlatssótt o. fl. Eptir þessum reikningum ætti þá meðalæfi nyfæddra barna á tímabilinu 1890—-1901 að hafa verið 47—48 ár, og þannig að hafa aukist á síðari hluta aldarinnar um 13 ár eða þar í kring. Þessi mikli munur stafar einkum af því, hversu afarmikið barna- dauðinn hefur minnkað, og er það sjálfsagt mest að þakka betii læknaskipun og betri þekkiugu á meðferð ungbarna en áður var, en meðfram því, hversu vjer erum afskekktir, hversu samgöng- urnar eru litlar og því tiltölulega auðvelt fyrir dugandi lækna að verja landið fyrir næmum sjúkdómum, sem annarsstaðar eru algengir, og lítið verður ráðið við. Olafuk Daníelsson.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.