Skírnir - 01.12.1916, Blaðsíða 91
fikirnir]
Dómaskipun i fornöld.
427
Svo er annað höfuðatriði, sem hr. E. A. svo að
segja hleypir alveg úr. Hann getur að sönnu um (á bls.
LXXI) að ákvæðið um, hve fáir skyldu ganga til vefangs
(nfl. 6), sanni ekkert, »því að nákvæmlega sama regla
var um vefang á Vorþíngum, og er þó beint ákveðið, að
þar skyldu 36 menn sitja í dómi«. Þetta er satt, og jeg
skal ekki gera mikið úr því, að V. Einsen hefur álitið, að
talan »6« væri hjer röng (bls. 22, 5. athgr.) og þó er at-
hugasemd hans engan veginn að vettugi virðandi. Akvæð-
ið g æ t i verið hugsanlegt sem bein stælíng á því sem
átti sjer stað í alþíngisdómi, enda er og beinlínis vitnað
lil hans á þessum stað í Grágás, sem hjer er átt við. Þessi
staður er því harðla ómerkilegur.
En önnur ákvæði um aðferð í a 1 þ í n g i s - o: fjórð-
úngs- dómi tel jeg miklu merkilegri. Það eru þessi:
1, upphaíið á 29. grein um hlutföll: »Ef vi. dóm-
endr eru út komnir eða fleiri, at þat er rétt« o. s. frv.
(Grág. I a 53),
2, »ok sækja þat sumar í enn sama dóm þegar er
vi; dómendr eru út komnir í setur sínar eða fleiri, enda
verðr jafnfullr þá dómr þeira sem þeir dæmi allir«, (I a
75) sbr. (sst.): »verðr dómr þeira fullr þóat þeir dæmi
eigi fieiri um þar en ,vi.« o. s. frv. og (s. 75): »þá á jafnt
dómr þeira at standask, er um vilja dæmt hafa, ef þeir
eru .vi. menn eða fleiri, sem dómrinn sé fullr«.
Hjer er alstaðar ákveðið, að »minst 6« (það merkja
orðin »vi. menn eða fleiri«) dómendur skuli geta felt
löglegan dóm. Eru nú nokkur líkindi til, að menn,
sem annars bjuggu svo trúlega um alt, hafi farið svo illa
og ósæmilega að ráði sínu, að ekki nema 6 af 36 — einn
s j ö 11 i hluti af fjórðúngsdómurum — hafi verið nógu
margir til að leiða mál til lykta með dómi? Jeg get í
öllu falli ekki ekki hugsað mjer slíkt. Hins vegar verðnr
talan 6 að öllu leyti skiljanleg og skynsamleg, ef talan
var 9; það þurfti þá 2/3 til þess að dómur yrði dæmdur;
þetta atriði er í mínum augum lángmerkast og áriðamest
— og V. Finsen kallar það (bls. 21) »et sláende argument«.