Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1959, Síða 70
72
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Hengilás (507). — A padlock of
mcdiaeval shape, found in VI.
Kola (716). — A stone lamp, found
in II.
lampahlíf í lög'un og' með lágri bryggju í kringum augað að ofan. Fláinn á
neðra borði steinsins fer minnkandi út til jaðranna. Þvermál 39,2, hæð um
miðju, 9,0, þykkt jaðra misjöfn, mest 5,5, minnst 3,7, þ. e. yfirborð steinsins
hallast miðað við neðra borð. Vídd augans 7,2. Gat fyrir stand er 3 sm
frá brún 2,0 í þvm. og hallast talsvert út. Steinninn er úr straumflögóttu
líparíti, og mun sú bergtegund vera finnanleg á nálægum fjöllum. — II, ofan
á vikrinum rétt undir grasrótinni.
505. Brýnisbútur fastur í ryðkekki, 1. 5,0, ferstrendur, 1,1 x 1,6 í þverskurð.
í ryðkekkinum sést á litla látúnspjötlu, 1,5 í þverskurð. — II, stoðarhola, við
nyrðri setbrún vestarlega.
506. Tvær litlar látúnspjötlur, festar saman með hnoðnagla úr sama efni.
Mesta þvm. 3,3. — II, á sama stað og 505.
507. Hengilás, óvíst úr hvaða efni, en látúnslitur er á því hér og hvar.
Mjög líkur Rygh 452, en læsingarjárnið vantar. Bolur lássins er sívalur, og
utan á honum 9 bárur úr öðru efni, langsum. Lengd bols er 6,8, þvm. 3,5. Á
endum bolsins eru tvö eyru, 3 sm há, er annað 2,1 að breidd og á því þrjár
bárur, sem stefna þvert við bárurnar á bolnum, og gengur hin yzta í lykkju
utan um enda bolsins. Hitt eyrað er 1,5 sm breitt og á því aðeins tvær bárur
og liggur hin ytri utan um bolendann. Allur umbúnaður er horfinn innan úr
lásnum, og virðist sem hann hafi lent í eldi. Lásar af þessari gerð eru kunnir
frá Norðurlöndum. Er vafi á, hvort þeir geti verið frá víkingaöld, en algeng-
astir virðast þeir vera frá miðöldum (14. öld), en hafa jafnvel verið sums
staðar í notkun fram á 18. öld?4). — VI, gólf.
601. Snældusnúður úr leirsteini, þvermál 3,8, hæð 1,2, vídd gatsins að ofan
1,2 efst, en 1,4 neðst. — VI, gólf.