Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1959, Blaðsíða 102
104
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
hæð, á mótum lang- og meðallanghöfða, með meðalstórt, frekar lágt
höfuð. Andlitið er langleitt, augnatóttir í meðallagi háar og nef-
stæðið í hlutfalli við lengd þess. Maðurinn hefur verið hryggskakkur.
E3: Hauskúpa, lítið sködduð, banakringla sem á við hauskúpuna
og 10 aðrir hryggjarliðir, sem sennilega eiga hér heima, þó það
verði ekki sagt með vissu, því næstu þrjá liði við banakringluna
vantar. Ennfremur eru talin til þessarar beinagrindar spjaldbein,
öll bein úr efri útlimum utan handarbein, hægri handleggur, báðir
sköflungar og dálkar og taísvert af fótbeinum. Tennur eru nokkuð
slitnar og 3 hefur maðurinn verið búinn að missa, er hann lézt, allar
E 3. Hálfmánalagað op
á aftanverðri haus-
lcúpu með hvassri aft-
ari brún, en brotinni
fremri brún. — Skull
which has received a
severe blow of an edgea
weapon from behind.
úr neðri góm (fyrsta jaxl vinstra megin og annan jaxl og forjaxl
hægra megin). I krónum beggja endajaxla í neðri góm er tannáta.
Kjálkagarður er enginn.
Aftantil á hvirflinum er hálfmánalaga op 4%X8 cm að stærð.
Aftari bogadregna brún opsins er hvöss eins og eftir beitta egg,
en fremri brún þess er með brotfleti og frá endum hans taka við
sprungur, sem ná fram að kranssaumnum (sutura coronaria). Inni
í hauskúpunni, sem var full af mold, var beinflipi, sem svaraði
til alls mið- og aftari hluta opsins og var hann alveg óveðraður.
Ytra borð hans hefur auðsjáanlega ekki orðið fyrir sömu áhrifum
og ytra borð kúpuhvolfsins.
Þessi bein eru úr fullorðnum karlmanni, 40—50 ára að aldri.
Líkamshæð hans hefur verið 165-—166 cm og hann hefur verið