Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Page 10

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Page 10
16 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS sem í fornöld er sagt að rekið hafi á þá fjöru sem hér er við sjóinn og enn nú heitir Krossfjara24 og þá hafi það flutt verið að Fannardal til að vama þar tröllagangi og reimleika af álfum og óvættum sem þá hafi minnkað. Annars hefi ég áreiðanlega vissu um að þetta bílæti hefur lengi vel, síðan pápiskur átrúnaður niðurlagðist, vakið nokkra hjátrú hér í kring og það jafnvel fram á vora daga, í því tilliti að ýmsir menn hétu á það í margs kyns neyðar tilfellum og leystist þá oftast nær ótrúanlega úr þeim vandræðum. Oftar bestóðu heit þessi í klútrýjum, kertum og lýsi svo lengi vel fram til minna daga þurfti bóndinn í Fannardal ei meira til lýsingar á heimili sínu en það sem krossinum gafst árlega. En nú er þetta so nær sem að öllu úrelt“. Þessi frásögn er fyrir margra hluta sakir hin merkilegasta. Upp- runi krossins er talinn vera „í fornöld" og hann hafi rekið á Kross- fjöru. Einnig eru við hann bendlaðar vættir í Fannardal þó að ekki sé rakin saga af þeim. Allt kemur þetta vel heim við þjóðsögur um krossinn sem skráðar eru í lok 19. aldar og á 20. öld. Sama er að segj a um ;trú manna og áheit á krossinn. Heimildir um það efni virð- ast vera óvéfengjanlegar þó að tilraun hafi verið gerð á þessari öld til að draga fjöður yfir þann átrúnað eins og vikið verður að síðar. Þess er vert að minnast að séra Benedikt kemur að Skorrastað þriggja ára gamall árið 1771 og hefur haft öll skilyrði til að muna eftir krossinum og sögnum um hann frá því um 1775—1780 eða jafn- vel fyrr. Það má því heita fullvíst að þjóðsögur hafa verið sagðar um krossinn og uppruna hans á ofanverðri 18. öld. Allar líkur eru til að þessi „hjátrú“, sem séra Benedikt talar um, sé miklu eldri, eins og hann gefur í skyn, ef til vill leifar af pápiskum átrúnaði. Skemmtilegast er þó að hinn lútherski klerkur treystir sér ekki til að neita því að mönnum hafi orðið að trú sinni og áheitin hafi gefið góða raun. Annars er krossmarkið í sjálfu sér jafnheilagt í lúthersk- um og kaþólskum sið, en sá er munurinn að áheit á helga dóma sam- rýmast ekki kenningum Lúthers eða lútherskum rétttrúnaði. Um það er órækast vitni hér á landi barátta Gissurar biskups Einars- sonar, sem „fyrirbauð alvarlega .... hjátrúaráheit og dýrkun“, sem tengd voru krossinum í Kaldaðarnesi í Flóa.25 24 Krossfjara er milli hleina í lítilli vík sem liggur undir svokölluðum Bökkum eða Bakkabökkum, kenndum við hjáleiguna Bakka frá Nesi, en Bakki hafði ekki sérstök landamerki fyrr á tímum (sbr. áður ívitnaða jarðamatsbók frá 1849, bl. 12). Krossfjara er nokkurn spöl utan við núverandi Neskaupstað, skammt frá grafreit norðfirðinga, og er þar viti í grennd. 25 Sjá Biskupasögui' Jóns Halldórssonar I, Reykjavík 1903—1910, bls. 61—62.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.