Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1878, Blaðsíða 4
4
ÁI i t s s kj a I
nefndar þeirrar, er skipuð var með konungsúrskurði 5. nóvbr. 1877, í
brauða- og kirkna-málinu.
Samkvæmt konungsúrskurði 5. nóvemberm., f. á.
og bijefi ráðgjafans fyrir ísland 7. s. m. hefir lands-
höfðinginn yfir íslandi með brjefum, dagsettum 30. s.
m. kvatt oss undirskrifaða: amtmann Berg Thorberg,
biskup Pjetur Pjetursson, prófast J>órarinn Böðvarsson,
Dr. phil. Grím Thomsen og alþingismann Einar Ás-
mundsson til að ganga í nefnd, til að semja frumvörp
til laga um skipun brauða og kirkna og um gjöld til
prests og kirkju.
Eins og fyrirskipað er í nefndum konungsúrskurði,
hefir málefni þetta verið undirbúið á þann hátt, að
stiptsyfirvöldin hafa látið fara fram nýtt mat á öllum
brauðum á landinu, eptir þeim nákvæmari reglum, er
þau þar um settu, og sem sjá má af með fylgjandi
prentuðu eyðublaði. *
Eptir að þessu brauðamati var lokið og skýrslur
um það komnar til stiptsyfirvaldanna, sömdu þau til-
lögur sínar um þær breytingar, sem helzt kynni vera
ástæða til að gjöra, eða að minnsta kosti íhuga, hvort
ekki mætti gjöra á brauðaskipun og kirknaskipun í
landinu, og lögðu síðan fyrir prófastana í brjefum, dag-
settum 14. maí þ. á., að bera tillögur þessar undir fundi,
er halda skyldi í júnímánuði næst á eptir í hverju pró-
fastsdæmi, og allir prestar prófastsdæmisins skyldu
sækja til, og einn maður kjörinn úr hverri sókn í pró-
fastsdæminu; var próföstunum boðið, að skora á fundi
þessa, að segja álit sitt bæði um skipun brauða og
kirkna, og um gjöld til prests og kirkju.
f>areð álitsskjöl frá hinum umræddu fundum eigi
*) pessu eyðublaði er hjer sleppt fyrir stuttleiks sakir, enda er það i
margra manna höndum. Ú t g e f.