Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1878, Blaðsíða 102
102
hentar söfnuðunum, en það snertir ætlunarvérk nefnd-
arinnar að því leyti, að hin tilætlaða breyting á skip-
un kirkna, sem er í nánu sambandi við skipun presta-
kallanna, gæti sumstaðar gengið greiðara, ef söfnuður-
inn tæki við kirkjunni. Verður og minni hlutinn að
álíta, að þeir söfnuðir sjeu til, sem sjeu vel færir um
að taka við kirkjum sínum. Af því nefndin öll var
á einu máli um það, að það væri eðlilegt og æskilegt,
að söfnuðirnir hefðu meiri afskipti og ábyrgð af hög-
um kirknanna, þar sem ætla má, að það yrði eitt hið
helzta meðal til þess að koma kirkjunum í prýðilegt
stand, og gæti haft menntandi áhrif á söfnuðina, þá
þótti minni hlutanum rjettara, að undirbúa þetta mál-
efni, og hlynna að því, og rjeði því af, að koma fram
með frumvarp þetta, en finnur eigi nauðsynlegt, að
gefa ástæður fyrir hinum einstöku greinum þess.
pess skal hjer getið, að áður en nefndin í síðasta
skipti átti fund með sjer, höfðu henni borizt fundar-
skýrslur frá þeim þrem prófastsdæmum (Stranda-, Norð-
ur-Múla- og Suður-Múla-), sem að ofan er getið um,
að hafi vantað.
Að síðustu lætur nefndin fylgja með þessu álits-
skjali sínu öll þau skjöl, er henni hafa verið fengin til
meðferðar, en það eru: brauðamats-skýrslur og skýrsl-
ur frá hjeraðsfundunum úr öllum prófastsdæmum lands-
ins.