Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1878, Blaðsíða 95
95
hlutinn sjer að fara fám orðum um hinar einstöku
greinir frumvarpsins.
Um i. og 2. gr.
í greinum þessum er gjört ráð fyrir safnaðarfund-
um, og nær þeir skuli haldnir. þ>ykir sjálfsagt, að
presturinn, sem forstöðumaður safnaðarins, kalli þá
saman og stýri þeim. Eigi þótti fært, að binda fundi
þessa við kirkjuárið, vegna þeirra erfiðleika, sem eru
á því, að sækja fundi um það leyti árs, heldur þótti
hagkvæmast, að fara í þvi eptir fardaga-árinu. f>ótt
óttast megi, að slíkir fundir hafi eigi milcil áhrif fyrst
í stað, þykir eigi vonlaust um, að þeir geti leitt ýmis-
legt gott af sjer, þá er menn taka að venjast þeim.
Um 3. og 4. gr.
í greinum þessum er tekið fram, hverjir hafi at-
kvæðisrjett á safnaðafundum, og um kosningarrjett og
kjörgengi, og skyldu að vera í sóknarnefnd, og þ}rkir
eigi ástæða til, að gjöra frekari grein fyrir þvi.
Um 5., 6. og 7. gr.
í greinum þessum er greint verksvið sóknarnefnda,
og þykir eigi ástæða til, að fara um það fleiri orðum.
(Minni hlutinn).
Frumuarp
til laga um sóknargjald til prests.
1. gr.
Preststíund af fasteign og lausafje, dagsverk,
lambsfóður og offur skulu afnumin.
2. gr.
í staðinn fyrir preststekjur þær, sem taldar eru í
i.gr., skal koma sóknargjald til prests, er ákveðið sje
fyrir hverja kirkjusókn í landinu með fastsettri upp-
hæð að álnatali.