Lögberg - 01.06.1933, Síða 1
PHONE: 86 311
Seven Lines
Ruffís'
****
,4
For
cot>
Service
and Satisfaction
PHONE:
Seven
86 311
Lines
46. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN I.JÚNÍ 1933
NÚMER 22
Efoahagur Bœnda á
Islandi
Á Islandi, ekki síÖur en hér í
landi, hefir verðfallið á búnaðaraf-
urðum öllum leikið bændurna hart
nú síðustu árin. Það sem hér fer á
eftir er tekið úr grein, sem birtist
í aðalblaði Framsóknarflokksins,
Timanum, 29. apríl síðastl. Má gera
ráð fyrir að hér sé rétt með farið
og er því hér nokkru ljósi varpað
á efnahag bænda á Islandi, eins og
hann nú er. Greinarkaflinn er á
þessa leið:
Skuldir á móti eignum í einstök-
umhéruðum eru sem hér segir:
iBorgarfjarðarsýsla............52%
Mýrasýsla ...................52 %
Hnappadalssýsla .............64.4%
Snæfellssýsla ...,...........52.7%
Dalasýsla....................53-5%
Austur-Barðastrandarsýsla 40.1%
Vestur-Barðarstrandarsýsla 49.5 %
Vestur-Isafjarðarsýsla ......53-9%
Norður-Isaf jarðarsýsla ... .43.4%
Strandasýsla.................53-t%
Vestur-Húnavatnssýsla ....49.3%
Austur-Húnavatnssýsla ... .49.5%
Skagaf jarðarsýsla...........48.2%
Eyjafjarðarsýsla ............52.7%
Suður-Þingeyjarsýsla.......62.9%
Norður-Þingeyjarsýsla ....59.9%
Norður-Mú^asýsla ...........61 %
Suður-Múlasýsla..............52.7%
Austur-Skaptafellssýsla . .. .30.3%
Vestur-Skaptafellssýsla ... .58.5%
Rangárvallasýsla ............40.1%
Árnessýsla ..................61.6%
Gullbringusýsla .............42.9%
Kjósasýsla ..................50.8%
Sigluf jörður, Seyðisf jörður og
Vestmannaeyjar ...........9.1%
Eignir bænda alls á landinu:
a. Fasteignir ......31,741.083 kr.
b. Lausafé .........31,523,871
Samtals 63,264,954 kr.
Skuldir bœnda alls á landinu:
a. Veðskuldir ..........11,492,815
b. Lausaskuldir í bönkum 5,563,955
c. Verslunarskuldir .. ...8,3(53,014
d. Einstaklingsskuldir .. 7,680,653
Samtals kr. 33,100,437
Eignir fram yfir skuldir samtals:
30,164,517 kr.
Tala bænda: 6799.
Skuldlaus eiign hvers bónda til
jafnaðar 4,437 kr.
Skuldir á móti eignum til jafn-
aðar á öllu landinu 52,3%
Að þrotum komin
Bæjarfélögin í Manitoba, og lík-
legast viðast í Vestur-úSanada, virð-
ast nú nálega að þrotum komin, að
leggja fram það fé, sem nauðsyn-
legt er, til að hjálpa atvinnulausu
fólki. Kom þetta mjög greinilega
fram á fundi, sem fulltrúar frá ýms-
um bæjarfélögum og sveitafélögum
áttu með fylkisstjórninni, nú fyrir
fáum dögum. Þetta mál er altaf að
valda meiri og meiri vandræðum.
Þeiin er altaf að fjölga, sem hjálpa
þarf. I Winnipeg eru þær fjöl-
skyldur, sem hjálpa þarf nálega
þrjú þúsund fleiri nú, heldur en um
þetta leyti i fyrra. I Winnipeg og
nágrenninu, þiggur fimti hver mað-
ur fátækrastyrk; í St. Boniface
fjórði hver, í Transcona þriðji hver
og í Brooklands 60 per cent. af öllu
fólkinu. I Manitoba eru 90,000
manneskjur, sem þiggja framfærslu-
styrk, en voru í fyrra um þetta leyti
52,000. Það er búist við að fátækra-
styrkurinn á þessu ári muni nema
$4,000,000 í Manitoba, hér um bil
$700,000 meir en í fyrra. Lítur nú
ekki út fyrir að fylkið og bæirnir
og sveitirnar fái hér mikið lengur
rönd við reist.
McIntosh"bíður mikinn
ósigur
Aukakosningar fóru fram í Kin-
istino, Sask. á mánudaginn í vik-
unni sem leið og stóð þannig á þeim,
að Hon. Charles Mclntosh, sem var
frambjóðandi frjálslynda flokksins
1929 í þessu kjördæmi og hlaut þá
kosningu, leitaði nú endurkosninga
sem ráðherra. I vetur gekk Mclntosh
úr frjálslynda flokknum og gekk í
lið með Anderson og hans íhalds-
stjórn og tók Anderson hann þá i
stjórnina og gerði hann ráðherra,
en til að geta haldið því embætti,
v|irð hann að vera endurkosinn,
eins og aðrir ráðherrar. En Mc-
Intosh náði ekki kosningu. John
R. Taylor gagnsækjandi hans og
frambjóðandi frjálslynda flokksins
hlaut 4,192 atkvæði en Mclntosh
2,213. Var því Taylor kosinn með
1,979 atkv. meirihluta. Ekki taldi
Mclntosh sig íhaldsmann við þess-
ar aukakosningar, heldur “Inde-
pendent Liberal.” Flokkaskipunin
á Saskatchewan þing'inu er nú þann-
ig: Frjálslyndir 27; íhaldsmenn 24;
framsóknarmenn 5; óháðir 5 og tvö
sæti eru auð.
Kjördæmabreyting
Hverju reglulegu manntali, sem
fram fer á tíu ára fresti, fylgja á-
valt einhverjar breytingar á kjör-
dæmum. Nú að undanförnu hefir
%
sambandsþingið verið að fást við
þær breytingar og hefir ekki geng-
ið á góðu. Hefir lengi þótt sem það
vildi við brenna, að stjórnin, hver
sem hún er í það *og það sinnið,
vildi færa sér í nyt breytingarnar og
haga þeim þannig, að þær væru sín-
um flokk til hagsmuna, með það í
huga, að sjálfsögðu, að vinna sem
flest kjördæmi. Á síðari árum hef-
ir þó heldur lítið borið i'á þessu,
þangað til nú að mikil rimma út af
þessu hefir staðið í þinginu. Vildi
núverandi íhaldsstjórn ekki láta
þetta tækifæri ónotað; að vinna sér
dálítið í hag fyrir næstu kosningar
og þá jafnframt frjálslynda flokkn-
um í óhag. Það rná ýmislegt gera í
þessa átt, því hver flokkurinn um
sig þekkir sína og veit nokkurnveg-
inn hvar þeir eru.
Það liggur við að minsta kosti,
að töluverð illindi hafi orðið út af
þessu á þinginu. Forsætisráðherr-
ann var stórorður og vildi lítið taka
kröfur mótstöðuflokksins til greina,-
eins og hann á vanda til. Hinir voru
töluvert ónotalegir í orði lika. Hon.
W. R. Motherwell brá B'ennett um
það, að hann væri að sækjast eftir
orðum og titlum og ennfremur að
stuðningsmenn hans yrðu ekki yfir
fjörutíu eftir næstu kosningar, ef
ekki væri fyrir stuðning C.C.F., sem
væri vinstri vængurinn af íhalds-
flokknum. Náttúrlega rléði Ben-
nett og notaði valdið í þessu eins og
öllu öðru.
Engisprettur
Allmiklar líkur hafa verið til að
engisprettur mundu valda miklu
tjóni hér í Manitoba í sumar. En
vegna hinna miklu rigninga, sem
gengu fyrri hluta síðustu viku, er sú
hætta talin miklu minni en áður var.
Einmitt um þetta leyti eru engi-
spretturnar að unga út, og ungarnir
þola mjög illa mikla rigningu. Hefir
þvi þessi mikla rigning grandað
þeim í miljónatali. En eggin þola
betur rigninguna og það er tölu-
vert til af þeim enn og úr þeim geta
komið ungar. Engisprettu hættan
er því ekki um garð gengin, þó hún
virðist töluvert minni heldur en hún
var. Er því öllum ráðstöfunum til
að verjast þessari hættu haldið á-
fram enn, þrátt fyrir þetta mikla
regn.
Dr. MARTEINSSON
Það er víst ekki vanalegt að feður skrifi um sýni sína í opin-
ber blöð; en vonandi segi eg skrumlaust og blátt áfram þá litlu
sögu, sem stendur í sambandi við myndina, sem hér birtist.
Brandur Thomas Hermann Marteinsson er fæddur að Gimli
í Manitoba, 5. dag janúar-mánaðar árið 1907. Foreldrar hans eru
þau hjónin Rúnólfur Marteinsson frá Gilsárteigi í Eiðaþinghá, í
Suður-Múlasýslu á Islandi og Ingunn Sigurgeirsdóttir Bardal,
fædd á Þingeyrum í Þingi í Húnavatnssýslu. Með foreldrum sín-
um fluttist drengurinn, sem vanalega hefir veriö nefndur Her-
mann, til Winnipeg haustið 1910, og þar hefir hann átt heima síðan.
I Winnipeg hefir hann fengið alla skólagöngu sína. Barna-
skólanám stundaði hann við alþýðuskóla borgarinnar, en að því
loknu fór hann í Jóns Bjarnasonar skóla. Þar var hann 4 ár og
lauk með því fyrsta bekk háskólanáms. Tvö árin þar var nafn
hans skráð á verðlaunabikar skólans, sem nefnist Arinbjarnar-
bikar. Næsta ár var hann í háskólanum og lauk við annan þekk.
Með þvi var lokið undirbúningi fyrir læknaskólanám. Næstu 6
ár stundaði hann nám í sambandi við læknaskóladeild háskólans.
I viðbót við það, sem vanalega er þar krafist varði hann einu ári
til efnafræðilegra tilrauna (Bio-chemistry). Var það undirbún-
ingur f'yrir stigið Bachelor of Science in Medicine. Margir sam-
bekkinganna áformuðu að búa sig undir það stig, en allir gáfust
þeir upp nema Hermann og annar ungur maður að nafni Donald
Williams. Báðir náðu þeir því stigi með heiðri (cum laude). Af-
koma Hermanns var, held eg, sæmileg í skólum. I læknadeildinni
féll hann aldrei í prófi. Vorið 1931 útskrifaðist hann af háskóla
Manitobafylkis sem Doctor of Medicine og Bachelor of Science.
Frá því hann var drengur hefir hann reynt að bjarga sér
við vinnu, eftir því sem tækifæri gafst. I Winnipeg bar hann út
blöð. Nokkur sumur var hann við bændavinnu úti á landi. Eitt
sumar vann hann daglaunavinnu við byggigu í St. Boniface og
nokkurn tíma í véladeild Almenna sjúkrahússins í Winnipeg. Þá
vann hann eitt sumar við rjómabú í fylkinu (cream grading). Tvö
sumur vann hann fyrir Canadian Chautauquas, og ferðaðist með
þeim allmikið um Vesturlandið, og enn vann hann eitt sumar sem
einn umsjónarmanna á geðveikrahælinu í Selkirk.
Þrjú ár hefir hann starfað við lækningar í Hinu almenna
sjúkrahúsi Winnipegborgar, fyrst eitt ár áður en hann útskrifað-
ist sem læknir og nú tvö ár síðan. Á þessum tíma hefir hanu
starfað í öllum deildum spítalans, lesið allmikið í læknisfræði og
fengið mikla æfingu í holskurðum.
Nú er hann að breyta til með verustað, flytja burt úr borg-
inni til Le Pas i Manitoba, þar sem hann starfar í sambandi við
lækni, sem heitir P. C. Robertson. Hann lagði á stað þangað í
gær (miðvikudag).
Rimólfur Marteinsson.
Sambandsþingið
Þvi var slitið á laugardaginn eftir
að hafa á rökstólum síðan í
október í haust. Samt tóku þing-
mennir'nir sér langa hvíld um jóla-
leytið í vetur. Þingið endaði með
ósamkomulagi út af kjördæmaskift-
ingunni og ósamkomulag var ekki
ótítt meðan þingið sat. Töluverðar
líkur þykja til að þingið verði aftur
kallað saman í haust. Erfiðasta við-
fangsefni þjóðarinnar nú sem stend-
ur er atvinnuleysið og viðskifta-
kreppan. Því miður verður ekki sagt
að þinginu hafi hepnast á nokkurn
hátt, að ráða bót á þeim vandræð-
um.
Stubbs-málið
Þess hefir oft verið getið hér i
blaðinu og lésendum Lögbergs ekki
ókunnugt. Nú hefir stjórnarráðið í
Ottawa ákveðið að vikja Stubbs frá
embætti án eftirlauna, að þvi er
fréttir frá Ottawa fullyrða.
Chicago sýningin
Hin mikla sýning, sem haldin
verður í Chicago í sumar, er nú opn-
uð. Verða þar að -sjá mörg furðu-
verk þessa heims. Eitt er t. d. það,
að lýsa eigi sýningarsvæðið með
geislum frá stjörnu, sem svo er langt
frá jörðunni, að ljósið þurfi fjöru-
tíu ár til að komast þaðan til jarð-
arinnar, þó það fari 186,000 milur á
sekúndu hverri. Hvernig þetta má
verða, er að minsta kosti ekki auð-
skilið.
LOFTUR JÓNSSON
kaupmaður
í Vík i Mýrdal, fanst örendur í
flæðarmálinu í Vik í fvrradag;
hafði druknað, en ókunnugt, með
hverjum hætti slysið hefir orðið.
Loftur var bróðir Einars fyrrum
alþm. á Geldingalæk.
Mbl. 5. maí.
HVÍTASUNNA, 4. JÚNI
Kl. 11 f. h.—Fermingar-guðsþjónusta.
Kl. 7 e. h.—Altarisgöngu-guðsþjónusta.
Hádegis-messan á ensku; kvöldmessan á íslenzku.
Allir velkomnir.
Til Islendinga
Eg er einn af þeim mönnum, sem
hefir óbilandi trú á drenglyndi Is-
lendinga, og lika á þvi, að Islend-
ingar séu ekki aðeins þrautseigir
heldur líkat raungóðir menn þegar í
harðbakka slær, um þau atriði er
sæmd þeirra og velfarnan varðar.
Eg get að vísu búist við, að landar
mínir verði mér ekki sammála um
þörf og ágæti allra mála vorra, en
eg hefi aldrei mætt neinum, sem
ekki lær eyra máli því, sem fram er
borið af einlægni og á yfir þvi lífs-
afli áð ráða, að það verðskuldi hlý-
hug manna og stuðning.
Málið, sem eg í þetta sinn ber
fram fyrir íslendinga er ekki nýtt
mál, 'en það er þess eðlis, að það
ætti að ná, ekki aðeins eyra, heldur
líka að njóta velvildar og stuðnings
allra Islendinga um þvera og endi-
langa heimsálfuna og það er skóla-
málið.
Hátt upp í fjórðung aldar hefir
Jóns Bjarnasonar skóli nú lifað og
starfað. Á því tímabili hefir nem-
endatala skólans verið mismunandi
árlega—alt frá um tuttugu og upp í |
á annað hundrað. I alt er hún á |
annað 'þúsund. Efnaleg afkoma
skólans hefir líka verið mismunandi,
eins og allra annara slikra skóla i
landinu. I góðu árunum, meir en
viðunandi, og á mögru árunum oft
um frain allar vonir. Eg er sann-
færður um, að þegar efnaleg af-
koma Jóns Bjarnasonar skóla er
borin saman við efnalega afkomu
annara samslags skóla, og tillit tek-
ið til allrar afstöðu, þá sé hún alt
eins góð og þeirra, ef ekki betri og
fyíir það ber að þakka vinum skól-
ans og örlæti íslendinga í heild, þvi
frá þeim hefir skólinn ávalt fengið
sinn aðal styrk.
Misnnmandi skoðanir hafa átt sér
stað og eiga, í sambandi við tilveru-
rétt og nytsemi skólans, eins og eðli-
legt er, því ekkert málefni, jafn víð-
tækt og umfangsmikið og skólamál
Vestur-Islendinga er, getur náð
þroska og vexti án þess að um það
skapist mismunandi skoðanir, en
hvað sem um það mætti segja,'þá er
það sannfæring mín, að eðli máls-
ins og saga stofnunarinnar sanni
tvímælalaust, að þar sé um það
menningarafl að ræða, sem verð-
skuldi stuðning og umönnun íslend-
inga. 4
Kæru landar mínir I Árið sem er
að líða hefir verið erfitt ár fjár-
málalega fyrir alla, og skólann líka.
Hann þarf nú nauðsynlega á $1,500
að halda til þess að geta mætt út-
gjöldunum fyrir skólaárið, sem er
að líða. Landar góðir! verið nú
stórir ,í erfiðleikunum og bætið úr
þessari þörf. Upphæðin frá hverj-
um einum þarf ekki að vera tilfinn-
anlega há, ef nógu margir taka þátt
—taka þátt í því að vernda þessa
menningarhugsjón vora og þjóðar
vorrar,og með henni þá stofnun,
sem lengst gripur inn í menningar-
og starfslíf þjóðanna, sem við bú-
um á meðal, af öllum stofnunum
vorum.
Svo fel eg drenglyndi og rausn
Islendinga þetta mál í fullri vissu
um að þeir sjái því borgið og beri
skólan nú eins og áður fram til meiri
Bretar og Islendingar
gera viðskiftasamning
Samkvæmt frétt frá London, hinn
24. f. m. hafa verið birtir við-
skiftasamningar, sem Bretar og ís-
lendingar hafa nú gert sín á milli.
Er það sjötti viðskiftasamningur-
inn, sem Bretar hafa nú fyrir
skömmu gert við aðrar þjóðir.
Aðalefni samningsins er það, að ís-
lendingar undirgangist að kaupa að
minsta kosti 77% af þeim kolum,
sem þeir þurfa á að halda af Bret-
um. Einnig lofa íslendingar að
lækka innflutningstoll á einstökum
vörum frá Bretlandi og eru það sér-
staklega bómullarvörur, og einnig að
hækka ekki tolla á ýmsum öðrum
vörum frá því sem nú er. Þar á
móti heita Bretar því að hækka ekki
innflutningstoll á fiski frá íslandi,
sem nú er 10%. Komi til þess að
Bretar ákveði hve mikið af fiski
þeir kaupi frá hverju landi lofa þeir
að kaupa ekki mir.na að íslending-
um en sem svarar 354,000 vættum
af nýjum og blautsöltuðum fiski.
Einnig að kaupa allmikið af kinda-
kjöti frá íslandi. Þessi samningur
gengur í gildi þegar Alþingi hefir
samþykt hann og er gerður til
þriggja ára.
Árslokabátíð Jóns Bjarna-
sonar skóla ,
Hún fór fram i Fyrstu lútersku
kirkju á þriðjudagskveldið hinn 23.
maí. Var hún allfjölsótt að vanda
og fór ógætlega fram. Nemendurnir
eru í þetta sinn fleiri heldur en þeir
hafa nokkurntíma áður verið. Söng-
flokkar skólans skemtu fólkinu
mjög vel með góðurn söng, bæði á
ensku og íslenzku. Hefir Miss
Salóme Halldórsson þar nú enn sem
fyr unnið mikið verk og þarff, að
æfa þessa söngflokka. Fimm af
nemendunum fluttu stuttar ræður
og má óhætt segja, að öllum hafi
þeim farist það vel. Nöfn fimm
nemenda voru skráð á Arinbjarnar-
bikarinn. Dr. W. T. Allison, pró-
fessor i enskurn bókmentum við há-
skóla Manitobafylkis flutti aöal-
ræðuna. Flutti hann gott erindi um
bækur og lestur. Séra Rúnólfur
Marteinsson skólastjóri stjórnaði
samkomunni.
Sex daga ferð
Samgöngurnar milli London og
Winnipeg eru nú þannig, að hægt
er að fara þá leið á sex dögum, og
það gerðu farþegar með Canadian
Pacific línuskipinu Empress of
Britain, hérna um daginn. Morg-
unverður í Londoti 19. maí og mið-
dagsverður í Winnipeg 26. maí. Hér
er ekki um neinar loftfarir að ræða,
heldur bara vanalegt ferðalag með
gufuskipum og iárnbrautum. En
það er haldið vel áfram.
þroska og víðtækari áhrifa.
L'pphæðin, sem nefnd er hér að
framan verður að nást inn fyrir 23.
júní n. k.
I fullu trausti og vinsemd,
Jón J. Bíldfell,
formaður skólaráðs
Jóns Bjarnasonar skóla.
*