Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1884, Blaðsíða 22

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1884, Blaðsíða 22
214 er aldrei hefðu sér til frægðar unnið í orustum, orðið að þola ójöfnuð og yfirgang útlendra þjóða, og að síð- ustu hefðu Danir lagt þá undir sig? Sækið hart fram og hlifizt eigi við, sigurinn eigið þér visan, og orðstír yðar berst um allan heim. |>egar komið var í nánd við þann stað, þar sem Englendingar sátu, reið einn af njósnarmönnum Vil- hjálms í móti honum, að segja honum, hvers hann hefði orðið visari. Spurði Vilhjálmur hann, hvar Haraldur sjálfur mundi vera. Maðurinn kvað hann mundu vera meðal hinna þéttskipuðu fylkinga uppi á ásnum, þvi að þar þóttist hann séð hafa konúngsmerkið. J>á hét Vilhjálmur því, að þar skyldi hann láta reisa klaustur guði til dýrðar, ef hann gæfi sér sigurinn. þ>ar var múnkur einn viðstaddur, er hlýddi á tal þeirra. Hann bað hertogann að veita sér þá bæn, að klaustrið yrði helgað hinum heilaga Marteini, Galliu postula. Játaði hertoginn því, og eigi miklu síðar stóð klaustur hins helga Marteins þar efst á Senlaks-hæðinni. Liði Vilhjálms hertoga var skift í þrjár deildir, hvort sem það var af hendingu, eða með vilja gjört, og farið eftir löndum þeim, er liðið var frá. í vinstra fylkingararmi voru menn frá Bretagne, Maine og Poitou, og þeirra foringi var Allan (Erlendur?) frá Bretagne. í hægra fylkingararmi var frakkneskt málalið, menn frá Boulogne og sveitum þar norður, fyrir því liði var Roger frá Montgommery, er varð mjög kynsæll maður á Englandi, og Vilhjálmur Fitz- Osbern (Ásbjörn?), aldavinur Vilhjálms hertoga og hinn frægasti maður. í miðið, milli Bretagne manna og Pikardi-manna, var aðal-styrkur liðsins, Normenn einir saman, eins og Normandí liggur milli Bretagne og Pikardíis. Yzt í hinum vinstra fylkingararmi voru menn af Cotantín-nesi, komnir af mönnum Haraldar blátannar, enn fremur menn af Saxlandi, er kalla mátti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.