Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1897, Side 31

Eimreiðin - 01.05.1897, Side 31
111 Langt i burtu, lengst úti við hafsauga liða óljósar þokuslæður, dreym- andi, fram og aptur, og þær verða að hveifdum kvennmannsörmum og — kinnum og um þær liggur mjúkur mánasnærinn. Pað er eins og hann dreymi um líkamsmynd — óljósa eins og anda, hvíta, nakta. Hún speglast i sælygnunni og særinn verður skinandi hvítur, og hann sjer grannvöxnu limina hennar í freyðandi ljósbirtu. Og sko! — þarna kemur hún inn eptir, hægt og hægt líðandi 4 mjúkum silfurgárunum. Máninn lýsir á kinnar hennar og hún lyptir sjer upp og styður öðrum handleggnum á hina djúpu bólstra hafsins og opnar augun — þessi undarlegu dökkgrænu augu, og strýkur vota hárið frá föla enninu sínu. — —- — Jeg ávarpa hana, en ekkert hljóð heyr- ist; — það eru hugsanirnar, sem tala eins og i draumi. — — — Suleima, Suleima . . . nafn þitt er sem hvíslandi sönghljóð, er hljóma i kyrrþey og verða að þúsund smáum og bliðum unaðstónum ... Jeg hef heyrt rödd þina, og grát þinn hefur borið mjer að eyrum i hinum sorg- legu harmaljóðum haustsins. í »Síðustu nóttinni« lýsir hann ótta sjúka mannsins fyrir dauða og dómi og þrá hans eptir að losast úr spilltum heimi og óró lifsins, svo að hann heyrir Krist, friðarins guð, sem tekur hann í sinn náðarfaðm og gefur honum eilifan frið, og silfurniður gosbrunnsins berst að eyrum hans, sem klukknahljómur nýja ársins, er boðar nýja tið og nýtt líf, . . »þvi að úti á víðavangi sje jeg skinandi hvita veru. Hún kemur til mín og tekur með heitu höndunum sínum um veiku, visnu hendurnar minar og leggur arm sinn um mitt þreytta höfuð og hvislar i eyru mjer: Friður sje með sálu þinni!« Og friður líður inn í sálu mína og jeg halla höfði minu að armi hans og horfi inn í björtu friðaraugun hans, og spyr: »Ert þú Jesús Kristur?« Og veran svarar: »Jeg er hinn eilifi friður sálarinnar.« Pað er ekkert sem fremur má segja um hin yngstu skáld Norð- manna en það, að þau eru sjálfbirgingar, halda sina eigin braut, án þess að lita aptur eða til hægri eða vinstri, eru að því leyti »sig selv aldeles forbandet, sig selv og ikke det eneste andet.« Einkum eru það þó skáldsagnahöfundarnir, sem eru svo sjerstakir í sinni röð, svo fullir af sjálfsþótta og sjálfstæði, að þeir skeyta hvorki þeim bókmenntum, sem á undan þeim hafa farið, nje þeim, sem eru þeim samfara. Feir þjóta, þegar minnst varir, út af alfaraveginum, yfir holt og mela, þar sem slóð hefur aldrei fýr sjezt, og krækja niður í smávoga, þar sem lífið í þorp- unum drepur allar göfgar og andríkar sálir og leyfir enga sjálfstæði — eða út á yztu nes, þar sem jafnvel í einveru-friðnum og á einmana bænum allt í einu kemur skellur, skot og vitfirring. Þetta á ekki sizt við Gabriel Finne, refsidómara alls þess, sem gamalt er og úrelt, og einkum og sjer í lagi tekur hann ómjúkt á þeim eldri gagnvart þeim ungu. Hann segir, að það hatur, sem hinir eldri beri til hinna yngri manna, þeirra sem vilja sigla sinn eiginn sjó, svo að þeir eldri geta ekki fylgzt með, það hatur sje langtum sterkara og dýpra í mannseðlinu, en trúarhatur og stjórnarhatur. Fað er sá rauði þráður í hinni fyrstu bók hans (»Heimspekingurinn«), sem kom út árið 1889. Fá var Finne 22 ára, og þáerhann þegar orðinn þungbúinn og

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.