Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1906, Qupperneq 13

Eimreiðin - 01.05.1906, Qupperneq 13
93 ef minsti andvari bærðist frá suðri. Einu sinni var óskírlífinu kent um, og haldið að það framar öllu öðru greiddi pestinni götu. Af því hlauzt mesta siðsemi um stund og sumir skildu jafnvel við konur sínar að borði og sæng. 011 böð áttu að vera óholl og forðuðust því margir allan þvott. Edik var alment notað eins og menn nú brúka karbólvatn. En eitt af þeim skringilegustu ráðum meðal hinna mörgu, sem áttu að koma í veg fyrir pestina, var það, að drekka þvag sitt daglega, og fylgdu margir því ráði grand- gæfilega og héldu vera heilsusamlegt, en beiskt læknismeðal, Pegar menn sáu, að hinar algengu bænir og helgiþulur ekkert dugðu, reyndu menn ýmsar nýjar eða breyttu hinum gömlu á allar lundir. Menn lögðu á sig föstur og ýmsar vandlætingar; létu taka sér blóð í ríkum mæli og neyttu daglega kröftugra hægðameðala. Lengi framan af var það algengt, að klerkar og nunnur gengu í skrúðgöngu með sakramentin og ýmsar helgileifar og sungu sálma. þá voru og bænagjörðir og messur mjög tíðar í kirkjunum. En þegar það kom í ljós, að allur sá mannsöfnuður virtist fremur stuðla að útbreiðslu veikinnar, var í flestum borgum bannað að halda messur og aðrar samkomur. Pegar t. d. pestin í Kaupmannahöfn 17II stóð sem hæst, var prestum fyrirskipað að láta sér nægja með eina bæn á viku gegn pestinni, í stað þess sem áður var á hverjum degi — »saasom det falder vidtloftigt i disse svage Tider«, þegar ekkert virtist duga til að blíðka reiði drottins, köstuðu menn trúnni og tóku það ráð, að njóta lífsins í fullum mæli meðan það entist. Einkum átti það sér stað á Ítalíu, og hefur skáldið Boccacio sagt frá því í hinni frægu bók sinni »Dekameron«. En sumir ákölluðu seinast í vandræðum sínum sjálfan fjandann, en fengu pestina engu að síður. þó sjaldgæft væri, kom það þó fyrir, að jafnvel þeir, sem mesta umgengni höfðu við sjúklinga, sluppu við veikina. þannig segir sagan, að þegar pestin gekk einhverju sinni í Norrköping í Svíþjóð, hafi förukarl einn, sem vanur var að leika á lírukassa á strætum og gatnamótum, fundist dauðadrukkinn á götunni. Menn héldu að hann væri dauður og óku honum ásamt pestarlíkum út á kirkjugarð. En þegar farið var að kasta hann moldum, vaknaði karl við vondan draum og var hinn hressasti. Hann lifði eftir þetta mörg ár og fékk aldrei pestina. í byrjun pestsóttanna voru líkin jörðuð með vanalegri viðhöfn,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.