Vísir - 16.06.1964, Blaðsíða 1
VÍSIR
54. árg. - Þriðjudagur 16. júní 1964. - 135. tbl.
211STUDENTAR
BRAUTSKRAÐIR
FRÁ M.
Menntaskólanum i Reykjavík var
sagt upp í gær. Voru 211 nýstúd-
entar brautskráöir, en það er Iang
hæsta stúdentatala við íslenzkan
menntaskóla. Hæstu einkunn við
stúdentspróf hlaut Jakob Ingva
son, 1. ágætiseinkunn 9,62.
í skólaslitaræðunni gat rektor
þess, að í haust yrði byggingu
bráðabirgðarhúsnæðis við Bók
hlöðustíg lokið. Þar verða 6 nýjar
kennslustofur, aðallega fyrir raun-
visindi og einnig bókasafn og mála
kennslu. Þrátt fyrir þetta nýja hús-
næði verður að nota Þrúðvang
við kennslu í vetur og verður svo
þar til hinn nýi Menntaskóli rís af
grunni f Litluhlið, en áætla má að
fyrsta áfanga þeirrar byggingar
verði Iokið haustið 1965. Þakkaði
R.
rektor sérstaklega forsætisráð-
herra, fjármála. og menntamálaráð
herrum, velvild þeirra, ríkisstjórnar
og alþingis í garð skólans.
í vetur hófu 903 nemendur nám
í Menntaskólanum, en 637 luku árs
prófum í vor. 573 stóðust árspróf,
en hæstu einkunn hlaut Borghild-
ur Einarsdóttir 5 bekk C, 1. ágæt-
iseinkunn 9,28. Stúdentsprófum
lauk 13. júní. Undir stúdentspróf
gengu 212 nemendur, 99 í stærð-
fræðideild og 112 í máladeild. Einn
Iauk ekki prófi nú. 5 hlutu ágætis-
einkunn, 93 1. einkunn, 97 2 eink-
unn og 16 3. einkunn. Hæstu eink-
unn í stærðfræðideild hlaut Jakob
Ingvason 1. ágætiseinkunn 9,62,
en í máladeild Sigurður Pétursson,
1. einkunn 8,90.
Þessar fimm blómarósir eru meðal þeirra 211 nýstúdenta, sem settu upp stúdentshúfuna í Háskóla-
bíói í gær. Stúlkurnar á myndinni heita Sigríður Ragna Sigurðardóttir, Margrét Schram, Sigríður E.
Magnúsdóttir, Margrét S. Sæmundsdóttir og Sigrún Dungal. Myndina tók I. M., ljósmyndari Vfsis á
Háskólalóðinni í gær, eftir að skólaslit Menntaskólans höfðu farið fram.
SILDIN:
mál veiddust síðustu
— en ekkert á sama tíma í fyrra
Bíllinn fór / loft-
köstum yfír ána
Fyrsta síldarskýrslan
hefur nú verið birt á
þessu sumri, og er það
viku fyrr en í fyrra. í
síðustu viku bárust á
land 154.262 mál og tunn
ur, en á sama tíma í
fyrra hafði ekkert veiðzt
Er það góð byrjun.
í skýrslunni segir, að um 250
skip stundi veiðarnar í sumar
og séu velflest þegar komin á
miðin. Hins vegar kemur afli
einstakra skipa ekki fram í
skýrslunni, svo sem venja hef-
ur verið. Er það samkvæmt til-
mælum samgöngumálaráðuneyt-
isins, byggt á tillögu Sjóslysa-
nefndar, sem óttast að hin
harða keppni um efstu sætin í
aflaskýrslunni geti dregið dilk
á eftir sér.
Utan 3500 tunna, hefur öll
síldin, sem veiðzt hefur, farið í
bræðslu. Hæstu löndunarhafnir
eru nú Siglufjörður með 42.143
mál og Raufarhöfn með 65.294
mál.
Bræla var enn á síldarmiðun-
um í gær og héldu flestir bát-
anna kyrru fyrir. Veður fer þó
skánandi og í morgun lóðaði
Sólfaxi á síld aðeins 60 mílur
frá Raufarhöfn. Var vitað um
allmarga báta, sem stefndu til
þess staðar nú í morgun.
Til Siglufjarðar komu eftir-
taldir bátar með síld f gær: Mar
grét 600, Jón Finnsson 522, Sig
fús Bergmann 400, Hafrún 440,
Sólfaxi 1200, Guðrún 548, Sif
500, Sigurbjörg 128, Hrafn Svein
bjarnarson II. 476, Áskell 322,
Guðbjörg 172, Hamarsvík 798.
Á sunnudagsmorguninn varð'bif-
reiðarslys í Leirársveit í Borgar-
firði og var aðkoman á slysstaðinn
svo ljót að hrein undur mega heita
að ekki skuli hafa orðið banaslys.
Slysið mun hafa skeð nálægt kl.
7 um morguninn við Geldingá eða
Skarholtslæk gegnt bænum Skar-
holti í Leirársveit. Ökumaðurinn,
sem var allmjög undir áhrifum á-
fengis hitti ekki brúna, mun þó
hafa lent á brúarstöplinum og við
það virðist bíllinn hafa tekizt á
loft og senzt yfir ána. Hafnaði
hann á toppnum hinum megin árinn
ar, sneri þá í sömu átt og hann
kom úr.
1 bifreiðinni voru þrír menn, allir
frá Akranesi. Höfðu þeir farið um
nóttina upp að Hvanneyri, en voru
á leið þaðan aftur þegar þeir lentu
Framh. á bls. 6
BLAÐLD I DAG
BIs. 3 Stúdentar útskrif-
ast.
— 4 Leikdómur um hið
nýja leikrit Odds
Björnssonar.
— 7 Kröfuhafar, leikrit
Þjóðleikhússins.
- 8 Heimsókn í Síldar-
verksmiðjuna
á Raufarhöfn.
- 9 Þrir áfangar í sjáif-
stæðisbaráttunni.
Brezkir togaramenn mótmæla veii-
um íslendinga / landhelgi
Fishing News segir að megn
óánægja og reiði sé nú ríkjandi
í Grimsby vegna þess, að menn
telja þar, að islenzkir togarar,
sem þangað koma hafi fengið
afla sinn innan íslenzkrar
landhelgi, það er af miðum,
sem brezkir togarar hafa verið
reknir af.
Sérstaklega segir blaðið að til
vandræða hafi horft í fyrri
viku, þegar togaramir Fylkir
Og Surprise seldu þar afla sinn.
Fylkir var með um 180 tonn
sem hann seldi á 13 þúsund
pund og Suprise með 120 tonn
sem seldist á 11 þúsund pund og
er það hátt meðalverð. Sérstak-
Iega er þess getið að Fylkir
hafi verið með um 90 tonn af
ýsu, sem skortur hefur verið á
í Englandi.
Formaður félags yfirmanna á
togurum í Grimsby John Hobbs
sendi við komu þessara Islenzku
togara mótmæli til brezka fiski-
málaráðuneytisins og um það
sagði hann m. a.: „lslendingar
Framhald á bls. 6
I