Vísir - 19.07.1968, Síða 5
5
VÍSIR . Föstudagur 19. júlí 1968.
„Biirt við höldum44
og bezta steikin
— Sælkerinn Maurice C. Dreicer gefur upp-
skrift af beztu steikinni i heiminum
Bezta steikin þarf aö fara undir stækkunarglerið og silfur-
smjörhnífinn hans Dreicers.
„Bandarískar konur eru vit-
lausar I matreiöslubækur en
latar í eldhúsinu". Þetta segir
Maurice C. Dreicer sá heiðurs-
maður, sem gert hefur það ,aö
ævistarfi sínu að leita uppi
beztu steikina í heiminum. Orða
leikurinn í setningunni, sem
höfð er eftir þessum herra-
manni kemst því miður ekki til
skila í þýðingunni, en von-
andi látum við það ekki á okk-
ur sannast eins og bandarísku
konurnar, sem herrann vitnar í,
að eiga 60 matreiðslubækur en
vilja ekki vera lengur I eldhús-
inu en 15 mínútur.
Dreicer, sem er staddur hér
núna ásamt einkaritara sínum
ungfrú Kimmioh (honum hefur
haldizt á henni í níu ár og vitn-
ar það ekki sízt um ágæti hans)
ætí»r m. a. að gæða sér á lamba
kjötinu og laxinum íslenzka auk
ýmissa sérrétta.
Þessi sælkeri hefur eytt
hvorki meira né minna en 22
árum í leit sinni að beztu steik-
inni. Hefur hann ferðazt um nær
alla heimskringluna og haft frá
mörgu að segja frá ferðalögun-
um.
AÖallega hefur áhugi hans
beinzt að matsölustöðum, og
þeim ekki aö verrataginu, íþeim
löndum, ,sem hann hefur komið
í. Reynslu sinni af þeim og
mat yfirleitt skýrir hann frá í
bókinni „The Dinner’s Comp-
anion“ með undirfyrirsögninni
„A Guide to the Fine Art of
Dining Out“ eða leiðarvfsi um
það hvernig og hvenær eigi að
boröa úti. Bókin er gefin út af
Crown útgáfunni í New York.
Þar er eflaust margar perlur að
finna og þar sem kímnigáfa
Dreicers er í bezta lagi má gera
þar ráð fyrir skemmtilegri og
um leið fræðandi lesningu.
Bezta matinn telur Dreicer,
að hægt sé að fá í Frakklandi
en eins og kunnugt er, hafa>
Frakkar um aldaraðir staö-
ið mjög framarlega í matar-
kúnstinni. Þótt Dreicer hafi oft
snætt afbragðsrétti hefur hon-
um samt ekki tekizt að finna
beztu steikina enn sem komið
er, enda eru kröfur hans miklar.
Hefur hann ýmis tæki hieðferðis
í pússi síhu til þess að rann-
saka meö ágæti steikanna og
eru þar á meðal stækkunargler,
silfursmjörhnífur og sjónauki,
sem hann notar sem myndavél.
En hér höfum við uppskrift-
ina að beztu steikinni og er auö-
vitað átt við nautasteik.
BEZTA STEIK HEIMSINS!
Kjötið á að vera af fjögurra
ára gömlum bolakálfi og fyrsta
flokks. Það á að hanga f 4—6
vikur áður en það er notað í
réttinn. Hæfilegt er eitt kfló
kjöts á mann í steikina.
Áður en lengra er haldið bregð
ur herra Dreicer stækkunargleri
sínu yfir kjötiö og ef litlir hvít-
ir blettir sjást í kjötinu vitnar
það um ágæti þess, að gripurinn
hafi verið alinn á korni en ekki
grasi einu saman.
Þá er komið að eldamennsk-
unni og vandast þá málið. Raf-
magnseldun er bannorð í sam-
bandi við matreiðslu þessa rétt-
ar. Eingöngu má steikja réttinn
yfir viðarglóð, og er viðurinn
hickory beztur til þeirra hluta.
Steikja á kjötið f 15 sekúndur
hverja hlið við 80 gráða hita.
Eftir það á steikin að vera svört
utan, ljósrauð innan og miðjan
dökkrauð. Réttinn á aö bera
fram á eikardiskum.
Þá er komið að þvi aö prófa
hvort silfursmjörhnífurinn geng
ur mjúklega í gegn, ef svo er
er kjötiö nógu meyrt, en til þess
hefur enn ekki komiö, að allar
þessar kröfur hafi verið upp-
fylltar.
Ef þið skylduð ekki treysta
ykkur til að fara alveg eftir þess
ari uppskrift en leggið leið ykkar
tii New York í framtíðinni þá
er til veitingastaður á 129, Sec-
ond Avenue, sem Dreicer full-
vissaði okkur um að byði upp
á mjög góðar steikur, þótt ekki
væru þær fullkomnar.
Annað áhugamál þessa herra-
manns eru sterkir drykkir. Til
gamans birtum við eina upp-
skrift hans, sem tekin er úr fyrr
nefndri bók um mat o. fl. Það
er hristingur, sem nefnist „Burt
við höldum" — og hvert getiö
þið ímyndað ykkur eftir að hafa
iesið uppskriftina:
y3 gin, l/3 ákavíti og V3 vodka.
Þes má geta að drykkurinn er
tileinkaður Jackie Gleason, sem
er kunnur bandarískur gaman-
leikari.
KRÍSUVÍK
Drekkið kaffi í Krísuvík.
heitar pylsur o. fl.
Öl, gosdryKkír,
Gróðrarstöðin Krísuvík.
Afrit -10 kr. stk
Tökum afrit af skjölum og bréfum, einnig úr
bókum og tímaritum. Ný vél.
SIGR. ZOEGA & CO.
Austurstræti 10.
Nokkrar íbúðir
af ýmsum stærðum til sölu. Aðallega í gamla
bænum. Einnig glæsilegur einkabíll Ford
Fairlane árgerð 1959. Uppl. í matartímum í
síma 83177.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að byggja fokhelt einbýlis-
hús í Breiðholti. Nánari upplýsingar í síma
2 45 22 eftir kl. 5 virka daga.
BSÉMl
SS^» 304 35
Tökum að okkur hvers konar múrbro'
og sprengivtnnu l húsgrunnum og ræs
um. Leigjum út loftpressur og vfbr&
sleöa Vélaleiga Steindórs Sighvats
ionai Álfabrekku við Suöurlands
braut, sfmi 10435
FRAMLEIÐENDUR:
TIELSA, VESTUR-ÞÝZK
GÆÐAVARA OG
JÓN PÉTURSSON
HÚSGAGNA'
FRAMLEIÐANÐI
láiálálalalálHláBlalalsIslHlalalalilalalH
B1
B1
B1
B1
Bl
B1
B1
B1
ELDHCS -
DcacaBtoM
Bllalalalalalalalalalalalalala
% KAUPIÐ Á FÖSTU VERÐI
% STAÐLAÐAR
ELDHÚSINNRÉTTINGAR
ERU ÓDÝRARI, FALLEGRI
OG ÖLL TÆK! fYLGJA
% HAGKVÆMIR
GREIÐSLUSKILMÁLAR
UMBOÐS-
OG HFILDVERZLUN
KIRKJUHVOLI
SlMI 21718 og 42137
FULLKOM1Ð SÝNINGARELDHÚS í KIRKJUHVOLI
i